Eimreiðin - 01.05.1921, Blaðsíða 125
EIMREIÐIS]
HITSJÁ
253
Petta hefti er 112 blaðsiður í fremur litlu broti. En á pessum
112 blaðsíðum lyftir höfundurinn tjaldinu upp fyrir hvorki meiru
né minnu en heilli heimsskoðun, og henni vist hér um bil eins
nýrri og nokkurn tíma hefir birt verið mannkyninu.
Öll trú og öll dulspeki er nú á enda, og vísindi komin í stað-
inn. Trúin kemst hvergi fyrir, pvi að visindin hafa ráðið gátuna
miklu og »dularfult« er ekkert lengur, pví andar og aðrar vitranir
eru íbúar pessa sama mikla heims, er vér byggjum. En pó hefir
petta, sem menn hafa verið að glíma við í trúarbrögðum og dul-
fræðum, ekki verið ósalt eða skvnvillur, heldur bláberir »náttúr-
legir« viðburðir, en að eins skort skynsemdiua að skilja pað.
Því vér erum ekki einangraðir á jörð vorri. Enginn kimi ver-
aldar er einangraður. Botnlaust rúmið er margbrúað af öflum,
er tengja saman alla tilveruna, og ná með áhrifum sínum tak-
markalaust. Vér hér á jörð erum að stjórna rás viðburða, jafn-
vel á öðrum vetrarbrautum, og paðan ná áhrif einnig til vor.
En áhrifin eru margvísleg, og falla öll í tvo höfuðstrauma, er
leiða sinn í hvora áttina, fram á við, guðsrikisleiðin, diexelixis
og aftur á við, norður og niður, vitisleiðin, dysexelixis. í pessar
tvær áttir er stefnt um víða veröld. En pað fer eftir pvi, hvern
veg vér stillum oss, eins og móttökustöð, hvor áhrifin vér fáum.
Sé agg og kuldi, drápsfýsn og kærleiksleysi vor á mcða), fáum
vér fararbeina á peirri leið, er niður stefnir, og pykir höf. nokk-
uð agalega stefnt i pá áttina yfirleitt á vorri jörð, par sem morð-
vargar eru í mestum heiðri hafðir og hrottar eru tignaðir mest.
— En vilji menn nú láta sér skiljast pennan sannleik, og hverfa
með cinum hug að pvi, sem til lífsins leiðir, er enn timi að snúa
við. Mun pá ekki standa á áhrifum og »magnan« í pá átt, pekk-
ingu á miklu hærra stigi en nú er til vor á meðal, pví pekking
er víða stórum lengra á veg komin en hér, og með pekkingunni
krafti peim er gerir oss náttúruna undirgefna. Pað sem nú er
kallað kraftaverk verður pá á valdi voru, sjúkdómar og annað
böl verður að lúta í lægra haldi, og jörð vor á fagra framtíð
byggjum sinum. Þetta er diexelisis og hún má byrja á landi hér,
pví pá tæki ísland umsvifalaust forystu i heiminum og af pvi
mundu svo »allar pjóðir jarðarinnar blessun hljóta«. En verði
«kki bráðlega að pessu horíið bíður mannkynsins hryllileg fram-
tíð, ógurlegri en allar vítis lýsingar hafa getað út málað.
Þetta er »hið mikla samband«, sem um fjallar í 1. hefti Nýals.
Alt stefnir að pessu sambandi og nær fyrir pað, ef rétt er stefnt,
proska. Munurinn er mikill á peirri tilveru, sem er aðeins ein
fruma.fyrstlingnum, og svo hinum fullkomnasta Iíkama, sem mynd-
aður er fyrir samband fjölda fruma. En eins og frumurnar drag-
ast saman, svo dragast og frumfélögin saman og geta myndað
ný og miklu fullkomnari kerfi. En pað háir, hve hin stefnan,