Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Blaðsíða 8
8
t’orv. Thoroddsen
heföu legiö undir Egyptakonung, en þau voru fyrir löngu
gengin undan aftur. Voldugur konungur á Egyptalandi
Thutmosis III., sem ríkti 1515 —1461 f. Kr., braut 1493
undir sig alla strandlengju MiÖjarðarhafsins norður undir
Iskanderunflóa og gerði alla höföingja í Kanaan, Fönikíu
og Sýrlandi skattskylda sjer. Eðlilega varð altaf að halda
slíkum þjóðum niðri með hervaldi, atinars brutust þær
undan og hættu aö borga skatt. Eftirkomendur Thutmosis
III. höfðu annað að starfa heima fyrir og sintu lítt
þessum fjarlægu hjeruðum, en þó átti svo að heita,
meðan þeir ríktu Amenophis III. og IV. (1427—1874),
að flest þessi smáríki enn lytu Egyptalandskonungi, en
altaf var þar órói og uppreisnir. Amenophis IV. hafði
við öðru að snúast en líta eftir þessum fjarlægu undir-
sátum sínum, og mátti ekki missa margar af hersveitum
sínum til þess að taka í hnakkadrambið á smákongum,
sem óþekkir voru. Fá var umbrotaöld á Egyptalandi og
trúbragðadeilur; Amonsprestar í höfuðbænum Theben
rjeðu þá og síðar mjög miklu í landinu og var Amon
dýrkaður sem aðalguð Egypta í mörgurp dýrðlegum
musterum (Karnak, Luxor o. fl.). Amenophis IV. snerist
á móti þessari Amonsdýrkun og vildi láta dýrka sólina
sem hinn eina og sanna guð; tókst konungi að halda
uppi þessari trú meðan hann lifði, en eftir fráfall hans
urðu Amonsprestar yfirsterkari og hin forna þjóðtrú var
aftur innleidd í landið og stranglega fylgt öllum gömlum
helgisiöum, en allar leifar sóltrúarinnar voru upprættar.
Amenophis konungur IV. virðist hafa verið gáfaður um-
bótamaður og unni mjög listum og vísindum, blómguðust
þau mjög mikið um hans daga, var þá framför og gróður
í mörgu, en það kulnaði alt út aftur; er prestarnir náðu
völdum, listin tók eftir það engum framförum, alt var
sniðið eftir gömlum reglum, trjenað og líflaust. Amenophis
IV. þóttist ekki geta haldist við í sínum forna höfuðbæ