Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Qupperneq 126
124
Sjera Jón Jónsson að Grenjaðarstað
4. Thyra Frederikke Jantzen, f. 8. ágúst 1878,
gift 1902 Iækni, dr. med. August Henrik Stephan Petersen í
Gentofte, eiga tvö börn.
Sjera A. Jantzen ritaði meðal annars allmikla bók um
ætt sína : »Efterretninger om Familien Jantzen fra Drenderup-
gaard* (Kbh. 1911, prentuð sem handrit).
Þau hjónin Jakob og Hildur Johnsen fluttu búferlum til
Kaupmannahafnar 1856. Jakob andaðist 1870, en Hildur
1891. Hún var mesta merkiskona, góð og vinsæl, sjá Matth.
Jochumsson, Ljóðmæli, IV, 201. Myndin af frú Hildi er ágæt.
Annar sonur sjera Jóns að Grenjaðarstað var MagTlús,
prestur, sem hjer er mynd af, en því miður er hún eigi vel
skýr. Hann var fæddur að Auðbrekku, eins og flest systkyni
hans, 6. janúar 1809. Hann kom í Bessastaðaskóla 1826
og útskrifaðist þaðan 1832. Síðan var hann eitt ár við versl-
un hjá Sigurði kaupmanni Sivertsen í Reykjavík, og því næst
þrjú ár kennari á Eskifirði. Hann vígðist 1838 til Miðgarðs
í Grímsey og var þar prestur til 1841, er hann fekk Garð í
Kelduhverfi. Þar var hann 10 ár, en síðan prestur að Ási í
Fellum (1851). I’aðan fór hann 1854 til föður síns, og var
ábyrgðarkapellán hjá honum til dauðadags hans, Árið eftir
fráfall föður síns fekk hann Grenjaðarstað, og þjónaði því
prestakalli til 1875. Sjera Magnús var mætur maður, og
þafði erft tilhneigingu föður síns til lækninga. Hann tók
fyrstur manna upp »homöopatiskar« lækningatilraunir hjer á
landi, og þótti mönnum honum heppnast það vei. Var þess
getið í Norðra 1856, og reis þá upp Jón Hjaltalín landlæknir
og ritaði á móti »hornöopatiskum« lækningum. Sjera Magnús
svaraði honum þá aftur og gaf út bækling, sem heitir: »Dr.
Hjaltalín og vísindin, eða svar upp á rit hans: »Vísindin,
reynslan og »homöopatharnir«, Akureyri 1857, 67 bls.
Mörgum árum síðar þýddi sjera Magnús ásamt sjera Jóni
Austmann »Homöopaþiska lækningabók eða leiðarvísir í með-
ferð sjúkdóma handa leikmönnum« eftir Dr. Bernhard
Hirschel, og gaf sjera Jón Austmann hana út á Akureyri 1882
(326 bls.). Sjera Magnús var vinsæll maður. Kona hans
hjet Þórvör Skúladóttir prests í Múla. Þau áttu mörg börn.
Einn sonur hans var Jón Magnússon kaupmaður á Eski-
firði, sem andaðist 24. septbr. 1907 i Kaupmannahöfn. Hann
átti Guðrúnu (d. io. júlí (?) 1910) dóttur Ásgeirs Ásgeirssonar,
hins eldra, kaupm. á ísafirði, og voru börn þeirra Ásgeir Magnús-
son, f. 2. ágúst 1884, kaupmaður; Garðar Magnús Magnússon,
f. 5. júní 1887, cand. phil., aðstoðarmaður á skattaskrifstof-