Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Blaðsíða 149
Færeyjar
145
misjöfn. Sumir fagurfræðingar hafa þann sið, að nota margs
konar samiíkingar og málskrúð, svo frásögn þeirra verður eigi
svo einföld og ljós sem æskilegt væri. Aðrir þeirra rita ljóst
og lipurt. Svo er í bók þessari. Um íslenskar bókmentir
hefur sjera Arne Möller ritað, og er það alt af hlýjum hug.
Frásögn hans er líka lipur og ljett, en eftir fyrirmælum út-
gefanda bókarinnar hefur hann aðallega ritað um þann nú-
tíðar skáldskap íslendinga, sem annaðhvort hefur komið út á
dönsku eða hefur verið þýddur á dönsku, og allar hinar
norrænu þjóðir geta lesið. þátt hans hefur Dansk-íslenska
fjelagið látið sjerprenta og sent fjelögum sínum ókeypis.
Rit þetta kemur út 1 heftum og kostar hvert þeirra 2
kr. Fyrra bindið er 6 hefti, og er líklegt að hitt bindið verði
eins stórt.
Færeyjar. Daniel Bruun hefur ritað ágætan leiðar-
vísi um ferðir á Færeyjum, Turistruter paa Fœröerne, 130 -f-
148 bls. Kmhöfn 1919 (Atlantshafseyjafjelagið, Gyldendal);
verð 5 kr. Bók þessi er lík þeim leiðarvísi, sem Bruun hefur ritað
um ísland. Hún getur orðið íslendingum að allmiklu gagni vegna
þess, að t henni er nákvæm leiðbeining um leiðina milli Kaup-
mannahafnar og Færeyja. Edinborg er lýst, og þar er leið-
beining, ef menn viija bregða sjer til hinna merkustu staða á
Skotlandi í nágrenni Edinborgar eða fara upp í Hálöndin.
Einnig er um Orkneyjar og Hjaltland i bókinni. f’ar eru og
margar góðar myndir og uppdrættir yfir Færeyjar, Hjaltland,
Orkneyjar og Edinborg.
Gerhard Schöning', rektor í þrándheimi, en síðar pró-
fessor í Sórey og að lokum leyndarskjalavörður í Kaupmanna-
höfn, var einhver hinn atkvæðamesti og hinn merkasti maður
( norskum bókmentum á hinum síðari æfiárum sínum. Hann
lærði íslensku af Jóni Eiríkssyni, og voru þeir vinir. Schöning
var 6 árum eldri en hann og dó sjö árum fvr(i78o). Hann
sá um útgáfuna af Ferðabók þeirra Eggerts og Bjarna, og
gaf út tvö fyrstu bindin af hinni miklu útgáfa af Heímskringlu
1777—1778. Um Schöning og helstu samtíðarmenn hans í
bókmentasögu Norðmanna hefur nú á ófriðarárunum komið
út fróðleg bók eftir Francis Bull, sem nú er orðinn pró-
fessor í bókmentasögu við háskólann í Kristjaníu. Hún heitir
»Fra Holberg til Nordal Brun«, 247 bls. Verð 5 kr.
J. C. Christensen, Naar Klokkerne ringe — (H. Ha-
gerups forlag). Bók þessi kom út um þær mundir, sem jeg
ritaði um höfundinn í Ársritið, 4. árgang. Jeg gat þá ekki
lesið hana áður en grein mín kom út, en hef nú gert það,
10