Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Blaðsíða 124
22
Sjera Jón Jónsson að Grenjaðarstað
kennara við læknaskólann í Reykjavík, og sjerajónas, prest
og prófast að Kolfreyjustað, og tvær dætur, Þorgerði, er
átti Valdemar Christian Bohn Olivarius, sýslumann í Suður-
Múlasýslu, en lengst bæjarfógeta í Rönne á Borgundarhólmi,
og Þuríði, konu Jóns sýslumanns Johnsens á Eskifirði. Er
margt manna frá þeim komið eins og kunnugt er á íslandi
um þá menn, sem þar búa. Frú Þorgerður (d. 22. júlí 1918)
og Olivarius bæjarfógeti (d. 14. júní 1912) áttu 5 syni. I. Elstur
þeirra var Johann Hallgrímur Olivarius, fæddur á Eski-
firði 31. mars 1871, dáinn 7. maí 1916. Hann las lögfræði
við háskólann í Kaupmannahöfn og var fyrst aðstoðarmaður,
síðan fullvaldúr og afgreiðsluritari í innanríkisráðaneytinu; 1906
og 1913 var hann settur dómari í yfirdóminum í Viborg og
Kaupmannahöfn, 1914 amtmaður í Ringköbingamti og 1 ýms-
um stjórnarnefndum, 1913 sæmdur riddarakrossi. Hann ritaði
nokkrar lögfræðisbækur, eina um danskan fæðingarrjett (Dansk
Indfödsret), aðra um stofnanir (sjóði og sjúkrahús), þriðju um
kviðdóma (Nævningsret).
2. Christian Frederik Olivarius, f. 17. júní 1872 á
Eskifirði, er nú yfirrjettarmálaflutningsmaður í Kaupmannahöfn,
ógiftur.
3. ValdemarOlivarius, f. 19. september 1873 í Rönne,
nú læknir í Kaupmannahöfn, giftist 1901 Gerdu Rönne, kaup-
mannsdóttir frá Rönne. Þau eiga eina dóttur,
4. Egill Olivarius, fæddur 16. júlí 1875 í Rönne, yfir-
læknir við Karmilianer-lækningastofnunina í Álaborg og her-
læknir, giftist 1915 Hariiet Klingenberg, dóttur kaupmanns
og etatsráðs Klingenbergs í Álaborg.
5. Sigurd Olivarius, f. 17. apríl 1877 í Rönne, sóknar-
prestur í Bandholm og prófastur í Fuglsehjeraði á Lálandi,
gifiist 1907 Helgu Thorsen, kaupmannsdóttur frá Rönne.
Pau eiga einn son og eina dóttur.
Myndin af frá Kristrúnu er tekin á efri árum hennar, og
er hún ekki góð, þótt hún sje dálítið skýrari en myndin af
Birni bróður hennar.
f’riðja systirin, Hildup, var fædd 21. október 1807 og
átti hún fyrst Pál Þorbergsson, sem var þá fyrir skömmu
(21. júlí 1830) skipaður fjórðungslæknir á Vestfjörðum. Litlu
eftir brúðkaup þeirra druknaði hann 9. júlí 1831 á Breiða-
firði. Hjer um bil ári síðar giftist Hildur aftur og eignaðist
þá Jakob Þórarinsson Johnsen. sem var verslunarstjóri
fyrir Orum og Wulf, lengst á Húsavík, dugnaðarmann mikinn
og gætinn, Hann var Þingeyingur eins og hún. Þau eign-