Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Blaðsíða 157
Nýjar bækur um Kússlanci, Kinnlarul og írland 153
hernaður. Bolsjevikar halda völdum með herveldi og hinni
grimmustu harðstjórn; harðstjórn hafa Rússar átt áður, en
eigi með svo fögru yfirskini. Iðnaður og allir atvinnuvegir
eru þar komnir í hið mesta ólag, og hungursneyð afskapleg,
einkum í öllum bæjum. En hjer er ekki rúm til að rita um
það, heldur skaleinungis bent á þrjár hinar fróðlegustu bækur,
sem út hafa komið í ár um Rússland, hag landsmanna og
ástæður. Hin fyrsta af bókum þessum er eftir rússneskan
mann, Gregor Alexinsky og heitir »Rusland og Europa«,
197 bls. í allstóru broti, verð 8,75. Höfundurinn var þing-
maður og gaf út bók þessa 1917 á frakknesku og ensku til
að fræða jum Rússland og viöskifti þess við önnur lönd.
Bókin er þýdd úr frakknesku og hefur höfundurinn bættdálitlu
við um Mensjevika og Bolsjevika.
2. Prófessor A. H. Hollmann, »Revolutionen og
Bondespörgsmaalet i Rusland«, 84 bls., verð 4,75. Höfund-
urinn er þýskur landbúnaðarráðanautur stjórnarinnar, hefur
dvalið lengi í Danmörk og á Rússlandi. Bók þessi er fróð-
leg um landbúnaðarmál, og það einnig eftir að Bolsjevikar
brutust til valda. Bókin er samin 1919.
3. Henning Kehler, Russiske Krönikcr, 150 bls., verð
6,75. Höfundurinn er danskur málfræðingur, er hefur lagt
stund á rússnesku, og var því 1917 sendur til Rússlands til
þess að hjálpa föngum og í opinberum erindum. Hann var
lengi í Simbirsk, borg milli Kasan og Saratoff austur við
fljótið Volga. í bókinni segir hann frá ýmsu er fyrir hann
bar og einkennilegt er fyrir Rússland. Bókin er rituð ( fyrra
og í ár (allar þrjá hjá Gyldendal).
Eva Moltesen, Det flnske Finland, Kmh. 1920
(Gyldendal), 8 -þ 157 bls. Verð 5 kr. — í Danmörk og
1 Noregi hefur lítið verið ritað um Finnland, allrasíst um hið
finska Finnland. Bók þessi er bæði fróðleg og vel rituð.
Hún er sögulegt yfirlit yfir menningu Finna. Höfundurinn er
finsk kona, cand. mag.
Irland. C. J. Hambro, Irske strejftog og studier, Kria.
1920, 8 + 160 bls. 7.50 (Aschehoug). Höfundurinn er
norskur og hefur dvalið lengi á írlandi og Englandi. Bókin
er rituð 1910, 1916 og mesti hlutinn 1920. Lengsti þátt-
urinn er um Sinn Fein og írska þjóðveldið, ritað í ár. Rit
þetta er eflaust eitt hið fróðlegasta, sem samið hefur verið
um írland á Norðurlöndum. íslendingar ættu að lesa það.