Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Blaðsíða 156
*52
Bækur Fræðafjelagsins og Fóstbræður
Orðakver einkum til leibeiningar um rjettritun eftir
Finn Jónsson. Upplagið selt Arsæli Ámasyni bóksala.
Afmælisrit til dr. phil. Kr. Kálunds, með 8 myndum, æfisögu
dr. Kálunds og 6 ritgjörðum. 2,00.
Árferði á Íslandí í þúsund ár eftir forvald Thoroddsen,
1. h. 5 kr., 2. h. 6 kr. Öll bókin 11 kr.
Handbók í Islendinga sögu eftir Boga Th. Melsteð, 1. b.
verð 3,75-
Ársrit hins íslenska fræðatjelags, með myndum, 5. ár. 6 kr.;
1. og 2. ár 1,50 hvort; 3. ár 2 kr.; 4 ár 4 kr. Ársritið er í ár með fleiri
myndum en nokkuru sinni áður. Pappír og myndagerð er rúmlega fimm
sinnum dýrari en 1915 og prentun fjórfalt dýrari. Margar bækur eru nú
seldar á 8 kr., sem eru á stærð við Ársritið í ár. II eimili sfastir
ájskrifendur á Islandi geta þó til 1. nóvbr. 1921 fengið 5. ár Árs-
ritsins ifyrir einar fjórar krónur. Ársritið er eftir stærð og frá-
gangi hin langódýrasta bók sem út kemur á íslensku í dýrtíð þessari. En
et það fær fleiri [kaupendur og ef prentunarkostnaðurinn lækkar, verður
það ódýrara.
Lýsing Vestm annaeyja sóknar eftir Brynjólf Jónsson, prest
í Vestmannaeyjum, ásamt 2 myndum og ágætum uppdrætti eftir herfor-
ingjaráðið danska. Verð 5 kr. Fáein eintök á mjög vönduðum og
sterkum pappír 8 kr.
íslenskt málsháttasafn. Finnur Jónsson setti saman. Mjög
merkilegt safn, nýútkomið; málsháttunum raðað eftir efni. Verð 12 kr.;
fáein eintök með númeri á skrautpappír 20 kr. eintakið.
Fræðafjelagið gerir sjer far um að vanda allan frágang á bókum
sínum, og vonar að það hafi góð áhrif á 'slenska bókagerð.
Gunnar Gunnarsson, Fóstbræöur. Saga frá land-
pámsöld. Jakob Jóh. Smári íslenskaði. Bókaverslun Gylden-
dals, Kmh. og Kristjania 1919, 311 bls. Verð 8,50. í’á
er jeg 1918 las frumritið af sögu þessari, datt mjer í hug að
hún mundi falla íslendingum best í geð af sögum Gunnars
Gunnarssonar. Ef þýðingin er eins góð og frumritið, mun
saga þessi eflaust ná miklum vinsældum á íslandi. Efnið í
henni þekkja menn, og það er ágætt fyrir skáld sem Gunnar.
Saga þessi er nú komin út á ensku, og hefur enskur ritdóm-
ari sagt um hana, að hún mundi verða eitt af hinum »klass-
isku« ritum á Englandi. B. Th. M.
í>rjár nýjar bækur um Rússland. Víða eru ástæð-
ur manna svo erfiðar í Norðurálfunni, að þeir eiga við sult
og seyru að búa, en hvergi er hagur manna nú eins illur í
Norðurálfunni eins og á Rússlandi. I’ar geysar innanlands