Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1920, Blaðsíða 114
Kristian Kálund
íi4
mannahöfn (»Præmieselskabet for Plejemödre i Köben-
havn<), sem systir hans haföi stutt eða verið í stjórn
fyrir í mörg ár, til þess aö stofna með sjóð, er bæri nafn
hennar (»Emilie Kaalunds Legat«).
Háskólasafnið bað hann um að velja það af bókurn
sínum, sem það hefði þörf á, og nánasta ættingja sínum,
systurdóttur móður sinnar, og hálfbræðrum hennar gaf
hann af búsgögnum sínum og þeim hlutum, sem hann sjálfur
hafði notað, það er þau vildu eiga. Alt annað, sem hann
átti, peninga og það, sem kynni að koma inn fyrir eigur
hans, bækur og húsgögn, gaf hann Hinu íslenska fræða-
fjelagi í Kaupmannahöfn. Ef fjelag þetta yrði algjörlega
afnumið, óskaði hann þess, að kirkju og kenslumálaráða-
neytið skifti fjárupphæð þeirri, sem hann ljeti eftir sig, á
milli tveggja stofnana, annarar á íslandi, en hinnar í Dan-
mörku, sem vilja taka að sjer að verja höfuðstól sjóðs-
ins til þjóðlegra, málfræðislegra og sögulegra rannsókna,
fyrst og fremst til rannsókna á örnefnum.
Arfleiðsluskrá þessi ber ljósast vitni um, hve dr.
Kálund unni íslenskum bókmentum og hve trygð hans til
íslands var bjargföst. Jeg býst við að íslendingar gleymi
honum eigi heldur, á meðan þeir halda uppi bókmentum
sínum og varðveita tungu sína.
Fræðafjelagið gerði upp bú hans og kom því í pen-
inga. Pað varð nærri 14000 kr. Síðan samdi það skipu-
lagsskrá um gjöf hans og fer hún hjer á eftir.
liogi Th. Meisteð.