Frjáls verslun - 01.04.1999, Page 65
FJÁRMÁL
meðal eigna í litlum fyrirtækjum; sem er
þó ekki líklegt. Hér mætti beita þeirri
reglu að fá upplýsingar um endurnýjunar-
verð sambærilegra eigna en afskrifa þær
síðan vegna úreldingar og aldurs.
Tæmandi listi yfir skuldir Um skuldir er
það að segja, að oftast er um að ræða
skammtímaskuldir og því má tíunda þær á
nafnverði. Rétt þykir að benda á að fyrir
kaupanda er þýðingarmikið að tæmandi
listi yfir skuldir sé gerður svo að hann
þurfi ekki að sæta því að greiða skuldir
sem ekki var gert viðvart um. Séu lang-
tímaskuldir í efnahagsreikningi fyrirtækis
væri sjálfsagt að meta þær miðað við mark-
aðsvaxtakjör.
Þegar þessu verkeihi er lokið og fyrir
liggur einstaklingsbundið matsverð á eign-
um og skuldum — ef svo má segja — geta
kaupandi og seljandi farið að takast á um
hvort eigi að greiða hærra verð en sem
nemur þessari nettómatstölu eigna og
skulda. Kaupandinn hlýtur að spyrja sig
þessarar spurningar: Af hverju skyldi ég
greiða hærra verð fyrir fyrirtækið en end-
urmetið eigið fé segir til um? Svar við
þeirri spurningu má fá með því að leggja
mat á rekstur fyrirtækisins. Ef vænta má
þess að reksturinn gefi góðan arð á næstu
árum kynni kaupandinn að vera reiðubú-
' 'd\
*
1
^ 1'
Q aíl
m ua B! G2
p m* obl
c c c c
1 m
Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoðandi og dósent við Háskóla íslands, hefur tekið að sér
að skrifa reglulega um endurskoðun í Frjálsa verslun. Hérfjallar hann um kaup á litlum fyr-
irtækjum og hvað beri að varast. Hvernig á að verðmeta lítil fyrirtœki? Er einhver viðskipta-
vild í þeim — eins og flestir virðast halda? FV-mynd: Geir Ólafsson.
litlum fyrirtækjum?
fjallar hér um þaö hvernig eigi aö verömeta lítil fyrirtæki — og ekki síst
lesefni fyrir þá sem hafa áhuga á eigin jyrirtœkjarekstri!
inn til að greiða hærra verð en endurmetið
eigið fé fyrirtækisins segir til um. En
hvernig fer kaupandinn nú að?
Hvernig hefur reksturinn gengið? Eðlileg-
ast er að byrja á því að athuga hvernig
rekstur fyrirtækisins hefur gengið á síð-
ustu misserum eða árum. Hafi reksturinn
gengið vel, þ.e. arðsemi verið há og hærri
en gengur og gerist í viðkomandi atvinnu-
grein, er líklegt að seljandinn vilji fá hærra
verð en endurmetið eigið fé, enda fælist þá
í fyrirtækinu viðskiptavild. Samkvæmt
þessu er viðskiptavild til staðar í fyrirtæki
og ástæða til þess að greiða fyrir hana ef
ávöxtun fyrirtækisins er mjög góð og
vænta má að hún verði það áfram á næstu
árum. Af þessu má ráða að viðskiptavild er
hagnaðarhugtak en ekki aðeins það —
heldur er viðskiptavildin háð framtíðar-
hagnaði fyrirtækis.
En það er ekki nóg
að vænta megi
hagnaðar á næstu
árum, heldur
verður hann að
vera hærri en
genguroggeristí
viðkomandi at-
vinnugrein. Rétt
er að taka fram að engin formúla er til fyr-
ir viðskiptavild. Hún er iðulega metin sem
núvirði nokkurra ára hagnaðar umfram
hæfilega ávöxtun. Það fer síðan eftir
áhættu í viðkomandi rekstri hversu mörg
ár af umframhagnaði kaupandi er reiðubú-
inn að greiða fyrir.
Af hverju til sölu? Fyrst
því er svo farið að við-
skiptavild er hagnaðar-
hugtak, vaknar eðlilega
þessi spurning hjá kaup-
anda fyrirtækis: Af hveiju
er fyrirtækið til sölu úr þvi
65