Morgunblaðið - 23.01.2001, Side 2

Morgunblaðið - 23.01.2001, Side 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isJórdanar óska eftir landsleik í knattspyrnu/B8 Dómarar sendir heim frá HM í handknattleik/B16 16 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM Þjónustusamningar við einka- aðila um rekstur heimila Barnaverndarstofu bárust hátt í hundrað umsóknir um meðferðar- vistun barna og ungmenna árið 1999. Sótt var um vistun vegna hegðunar- erfiðleika, afbrota og vímuefna- neyslu. Þar er um tæpa fjórðungs- ÁRIÐ 1999 bárust barnaverndar- nefndum landsins tilkynningar vegna tæplega 2.700 barna eða að meðaltali 7 barna á hverjum einasta degi ársins. Hátt í 40% þessara til- kynninga voru vegna háttsemi barnanna sjálfra, og hefur það hlut- fall farið ört hækkandi á síðustu ár- um. Afskipti nefnda vörðuðu tæp- lega 3.000 börn sama ár eða 39 börn af hverjum þúsund. Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðfaraorðum Braga Guð- brandssonar, forstjóra Barnavend- arstofu, í skýrslu um starfsemi henn- ar og barnaverndarnefnda á Íslandi árin 1996 til 1999. Skýrslan er unnin upp úr tölum ársskýrslna barna- verndarnefnda landsins sem Barna- verndarstofa innheimtir. aukningu frá árinu 1997 að ræða en það ár var ákvörðun um hækkun sjálfræðisaldurs tekin. 117 börn voru í meðferð á vegum Barnaverndar- stofu árið 1999 og 65 voru vistuð í neyðarvistun. Börnum í meðferð hafði þannig fjölgað um 43% og börnum í neyðarvistun fjölgað um 36% miðað við árið 1997. Nýrri skipan í meðferðarmálum barna hefur verið hrint í framkvæmd þar sem rekstrarformi hefur verið breytt, ríkisrekstur minnkaður og þjónustusamningar við einkaaðila gerðir. Í upphafi starfs Barnavernd- arstofu runnu 24% af heildarrekstr- arkostnaði vegna meðferðar barna til einkarekinna heimila en 76% til ríkisrekinna. Þetta hlutfall hefur nú snúist við og á árinu 1999 var 70% heildarrekstrarkostnaðar ráðstafað til heimila sem starfrækt voru sam- kvæmt þjónustusamningi við Barna- verndarstofu. Nú eru aðeins Stuðlar, meðferð- arstöð ríkisins fyrir unglinga, ríkis- reknir en öll átta langtímameðferð- arheimilin rekin samkvæmt þjón- ustusamningum. Barnaverndarnefndum bárust erindi vegna 2.700 barna árið 1999 Sjö tilkynn- ingar á dag IÐNAÐARMENN hafa síðustu daga slegið upp fyrir útveggjum á flug- turninum við Reykjavíkurflugvöll þar sem áður voru svalir. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri sagði að- spurður að verið væri að færa út sjöundu hæðina, sem áður var inn- dregin. Þar sem framundan voru viða- miklar viðgerðir á þaki hússins á sjöttu hæðinni var ákveðið að stækka þá sjöundu og gera hana jafna hinum hæðunum. Sjötta hæð- in hefur staðið auð nokkur undan- farin ár vegna mikils leka og því verða í raun tvær hæðir nothæfar en ekki ein þegar byggingu lýkur. Inngangur í turninn verður einnig lagfærður og er kostnaður við við- gerðirnar og nýbygginguna 40 milljónir. Þorgeir segir aukið rými vera vel þegið þar sem þrengsli á skrif- stofum hafi verið mikil og sumir starfsmenn Flugmálastjórnar þurft að leita yfir í slökkvistöð eftir skrif- stofuhúsnæði. Áætluð verklok eru í maí. Aukið rými kemur sér vel Morgunblaðið/Árni Sæberg HAFIST verður handa við að stöðva olíuleka úr El Grillo í Seyðisfirði á þessu ári. Ólafur Sigurðsson bæjar- stjóri segir að útboðsgögn verði tilbú- in í byrjun næsta mánaðar og verkið boðið út 10. febrúar. Á næstu dögum hefst kynning á framkvæmdunum á Netinu, sem stendur yfir í um hálfan mánuð. Gert er ráð fyrir að tilboðin verði opnuð um miðjan mars og á tím- anum 5.–10. apríl verði tekin ákvörð- un um að hvaða tilboði verði gengið. 20. apríl er stefnt að því að ganga frá verksamningi við verktaka. Verkið er boðið út víða um heim og er m.a. búist við tilboði frá fyrirtæki í Kanada. Ólafur segir að gangi allt að óskum gætu framkvæmdir við fiskeldi í firð- inum hafist á þessu ári en þó í litlum mæli í fyrstu. Olía í El Grillo verði fjarlægð löngu áður en fiskeldi hefjist þar. Gert er ráð fyrir að það taki um einn mánuð að fjarlægja olíuna úr tönkum skipsflaksins. Ráðgert er að hefja verkið í september nk. 100 milljónum króna er ráðstafað til verksins á fjáraukalögum. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar barst á dögunum nafnlaust bréf þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna olíuleka úr skipsflakinu El Grillo og áforma um laxeldi í firðinum. Afrit af bréfinu var sent Morgunblaðinu. Ólafur Sigurðs- son, bæjarstjóri á Seyðisfirði, segir að orðsendingar sem berist óundirrit- aðar séu ekki teknar til afgreiðslu hjá bæjarstjórninni. Auk þess sé málið í sínum farvegi og hreinsun flaksins verði boðin út 10. febrúar nk., eins og áður segir. Í orðsendingunni segir m.a. að gerðar séu miklar kröfur til allrar matvælaframleiðslu, ekki síst þær að umhverfið sé hreint og ómengað. Ekki sé víst að olía frá El Grillo hafi áhrif til hins verra fyrir matvæla- framleiðslu í sjó á Seyðisfirði en vandamálið sé fyrir hendi og skemmi ímynd sjávar í firðinum. Ímynd sé farin að skipta afar miklu máli í þess- um efnum. Fiskeldi í Seyðisfirði gæti því hæglega haft slæm áhrif á annað fiskeldi á Íslandi vegna markaðs- mála. Ólafur kveðst helst hallast að því að orðsendingin sé runnin undan rifj- um náttúruverndarsinna sem vilji koma höggi á bæjarstjórnina á Seyð- isfirði. Bæjarstjórnin hafi látið að því liggja að hún hafi ekki fengið stuðn- ing slíkra samtaka til að fjarlægja olíuna úr El Grillo. Hreinsun El Grillo boðin út 10. febrúar ÓSKAÐ var eftir aðstoð lög- reglunnar í Hafnarfirði á laug- ardag en þar hafði villiköttur komist inn í íbúðarhús og ráð- ist á húsbóndann. Eftir talsvert umstang tókst lögreglumönnum að handsama köttinn. Kötturinn var síðan aflífað- ur en húsbóndinn þurfti að leita sér læknisaðstoðar eftir átökin. Villikött- ur réðst á mann FORRÁÐAMENN Íslenska ál- félagsins, ÍSAL, í Straumsvík vilja ekki tjá sig um atkvæðagreiðslu starfsmanna fyrirtækisins sem felldu nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins í síðustu viku. Samningurinn kvað á um 21% hækk- un launa á samningstímanum, en auk þess var samið um nýja launa- þætti sem gætu gefið starfsmönnum allt að 10–15% viðbótarhækkanir. Haldnir voru um 50 samningafundir frá því í lok september sl. Trúnaðarmenn og forystumenn stéttarfélaganna héldu innbyrðis fund í gær og til stendur að fundur verði milli deiluaðila nk. fimmtudag. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. „Hugsanlega hefur gefist of lítill tími til kynningar á kjarasamningn- um. Það leið einungis vika frá því undirritað var þar til atkvæða- greiðslu átti að ljúka. Þar sem í samningnum er að finna nokkur flókin atriði hefði mátt gefa þessu lengri tíma,“ segir Hannes. Kjaradeila ÍSAL og Samtaka atvinnulífsins Stefnt að samningafundi næsta fimmtudag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.