Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 35
- Í FAÐMI FJALLA
Fagurt umhverfi, glæsilegir
salir, ljúffengur matur,
fullvissa um ljúft kvöld,
Sími. 567 2020
fyrir stærri sem smærri hópa
að hætti Skíðaskálans í Hveradölum
Borðapantanir í síma 567 2020
Frábært tækifæri fyrir vina-og vinnustaðahópa til að
gera sér dagamun í frábæru umhverfi
R a m m í s l e n s k t
K
O
R
T
E
R
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frá-
bærar aðstæður á suðurströnd Spánar í rúmar 4 vikur á ótrúlegum
kjörum. Beint flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem þú nýtur
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um
spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Vorin eru falleg-
asti tími ársins á suður-Spáni og hvergi er betra að dvelja en í þess-
um yndislega heimshluta og á báðum áfangastöðum bjóðum við þér
okkar bestu íbúðarhótel með frábærri aðstöðu fyrir farþega.
Vorferðir
Heimsferða
til Costa del Sol
og Benidorm
22. og 23. apríl
frá 51.500
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð frá kr. 57.300
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
Timor Sol, 32 nætur, 22. apríl. Skattar
ekki innifaldir.
Verð kr. 72.500
M.v. 2 í studio, Timor Sol,
22. apríl, 32 nætur.
Völ um aukaviku. Skattar
kr. 2.530, ekki innifaldir.
Costa del Sol
Verð frá kr. 51.500
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
El Faro, 32 nætur, 23. apríl.
Verð kr. 67.400
M.v. 2 í íbúð, El Faro, 32 nætur,
23. apríl.
Skattar kr. 2.530 ekki innifaldir.
Benidorm
Í HEIMI Dario Fo er öllu einatt
snúið á haus, viðteknum gildum
hafnað, reglurnar í valdatafli mann-
anna teknar til endurmats og fals-
myndir þjóðfélagsins skoðaðar aft-
anfrá svo skín í beran strigann. Í
Nöktum manni og öðrum í kjólfötum
eru lögmál gamanleiksins líka end-
urskoðuð. Í hefðbundnum farsa væri
maðurinn sem slapp með naumind-
um undan eiginmanni ástkonu sinn-
ar og húkir nú nakinn í ruslatunnu
aðalpersónan. Fo beinir hins vegar
athyglinni að götusóparanum sem
ber ábyrgð á nefndri tunnu, og því
hvernig tilveru hans er kollsteypt
við að verða á vegi farsans.
Leikslokin, þegar kjólfataklædd-
ur götusóparinn hefur öðlast lífs-
gleðina meðan strípaður ríkisbubb-
inn forðar sér undan lögreglunni,
segja okkur hvorttveggja í senn að
fötin skapi manninn og að í þjóð-
félagi byggðu á stéttskiptu ofbeldi
sé einblínt á yfirborðið og ekkert til-
lit tekið til mannkosta og innri eig-
inleika. Boðskapur sem kannski
stendur félögum í Halaleikhópnum
nærri, en hópurinn samanstendur að
mestu leyti af líkamlega fötluðu
fólki.
Sú fallega hugsun sem birtist í
leikskrá sýningarinnar, að enginn sé
fatlaðri en hann vill vera, leiðir hug-
ann að því hvað felst í að vera þeim
vanda vaxinn að skila listrænu verki
á borð við leiksýningu til viðtakenda.
Allir búa við takmörk á getu sinni til
allra hluta og fánýtt að gera kröfur
um að slík takmörk verði yfirstigin.
Fötlun er einfaldlega ein tegund
slíkra takmarka, ekkert eðlisólík
öðrum tegundum.
Kröfurnar sem gerðar verða eru
einfaldlega tilfinningin fyrir að allir
beiti sér til ítrustu marka sinnar
getu.
Líkamleg fötlun leikara setur
sviðsetningu auðvitað ýmsar skorð-
ur, aðrar skorður en önnur einkenni
myndu setja. Og vissulega njóta
ýmsir eiginleikar verksins sín ekki
af þessum sökum, snerpa þess og
farsakenndustu atriðin. Á hinn bóg-
inn stendur fötlun auðvitað ekki í
vegi fyrir því að hægt sé að skila
hlýrri skopathugun Fos á mann-
skepnunni og þar tekst leikhópnum
iðulega ágætlega upp. Allir leikar-
arnir eiga sönn andartök sem verða
fyndin af því þau eru sönn, en varla
er á nokkurn hallað þó Jón Þór
Ólafsson sé nefndur sérstaklega fyr-
ir að gera götusóparanum fyrr-
nefnda prýðileg skil.
Leikstjórinn, Björn Gunnlaugs-
son, hefur skilað góðu verki, ef und-
an er skilin tónlistin sem er að mínu
viti aldeilis snertipunktalaus við
verkið og stemmningu þess. Nýting-
in á rýminu er prýðileg, leikmynd
smekkleg og innskot í textann sem
tengja sýninguna við nútímann og
þau mál sem helst brenna á öryrkj-
um þessa dagana launfyndin og al-
gerlega í anda Nóbelsskáldsins
ítalska sem aldrei hefur þreyst á að
nota leikhúsið sem hrossabrest til að
vekja fólk til umhugsunar um þjóð-
félagslegt óréttlæti af öllu tagi.
Fötin skapa manninnn
LEIKLIST
H a l a l e i k h ó p u r i n n
eftir Dario Fo. Þýðandi: Sveinn
Einarsson. Leikstjóri: Björn Gunn-
laugsson. Laugardagur 20. janúar.
NAKINN MAÐUR OG
ANNAR Í KJÓLFÖTUM
Þorgeir Tryggvason
KARLAKÓRINN Heimir í
Skagafirði hefur nú opnað heima-
síðu á Netinu og er slóðin
www.heimir.is. Í tilkynningu frá
kórnum segir að á síðunni sé að
finna margvíslegan fróðleik um
Heimi, svo sem sögubrot, frásögn
frá heimssýningunni í Hannover
sl. haust, þar sem kórinn kom
fram, grein um starfsemi kórsins,
umsagnir, tónleikadagskrá ársins,
tónbrot úr nokkrum lögum ásamt
nýjustu fréttum af kórnum. Þar er
einnig hægt að leggja inn pantanir
fyrir geisladiska kórsins og sitt-
hvað fleira.
Þrettándaskemmtun karla-
kórsins var haldin í félagsheim-
ilinu Miðgarði í Skagafirði nýlega.
Í tilkynningu frá kórnum segir að
skemmtunin hafi tekist í alla staði
mjög vel og mikil ánægja meðal
hinna fjölmörgu gesta sem troð-
fylltu húsið. Gestur kvöldsins var
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra sem þykir hafa farið á
kostum í „þrumandi ræðu sinni
um Skagfirðinga og fleira fólk“.
Karlakórinn Heimir mun halda
í venjubundna söngferð á suðvest-
urhorn landsins 22. mars næst-
komandi en þá verður sungið á
Akranesi og í Grindavík og
Reykjavík.
Heimir með heimasíðu
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
ÞURÍÐUR Sigurðardóttir sýn-
ir verk í Búnaðarbankaglugg-
anum, nemendaglugga Búnað-
arbanka Íslands við Hlemm.
Sýningunni lýkur 2. febrúar.
Nemanda-
verk í banka-
glugga
HEILSUHRINGURINN
VILT ÞÚ FRÆÐAST?
Tímarit um holla næringu og
heilbrigða lífshætti.
Áskriftarsími 568 9933
Síðumúla 27 • 108 Rvík
Veffang: http:www.simnet.is/heilsuhringurinn/