Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 74
Engin ein kvikmynd stal senunni við afhendingu Golden Globe-verð- launanna á sunnudagskvöld og kom ýmislegt á óvart í vali erlendra blaða- manna í draumaverksmiðjunni að þessu sinni. Björn Ingi Hrafnsson í Los Angeles skrifar að ekki hafi þurft að koma á óvart að Björk og Sjón hafi lotið í lægra haldi fyrir tveimur stórstjörnum sem hvort í sínu lagi áttu salinn. ÞAÐ er gömul saga og ný aðhvort tveggja tilnefningarog svo endanleg niðurstaðaGolden Globe verð- launanna eru prýðileg vísbending um það hvers sé að vænta á Óskars- verðlaununum í Hollywood eftir ríf- lega tvo mánuði. Oft hefur erlendum kvikmyndablaðamönnum í Holly- wood, sem afhenda Golden Globe verðlaunin ár hvert, verið legið á hálsi fyrir að fara troðnar slóðir og vera íhaldssamir með afbrigðum. Kannski af þessum sökum vekja nokkrir verðlaunahafanna á sunnu- dagskvöldið sérstaka athygli. Þeir áttu sumsé ekki að fá verðlaunin, samkvæmt spám spekinganna. Björk okkar Guðmundsdóttir lék að flestra mati stórkostlega í Myrkradansa Lars von Triers og ekki fór á milli mála dagana fyrir af- hendinguna að gagnrýnendur og fjölmiðlafólk hér vestra telur að þar hafi verið um að ræða einstaka frammistöðu. Hins vegar verður líka að segjast eins og er að alltaf lá fyrir að Julia Roberts hreppti verðlaunin fyrir túlkun sína á baráttukonunni Erin Brockovich í samnefndri mynd Stevens Soderberghs. Roberts hefur ekki hlotið náð fyrir augum Ósk- arsakademíunnar, en að þessu sinni reyndist happadrjúgt að státa af hvort tveggja virtum leikstjóra og mótleikara (Albert Finney) og ekki síður svimandi háum aðsóknar- og gróðatölum. Leikkonunni var geysi- vel fagnað þegar niðurstaðan lá fyrir og eru sérfræðingar þegar farnir að spá Roberts Óskarsverðlaununum í marslok. Hið sama má segja um besta frumsamda lagið, en þar var Björk tilnefnd fyrir lagið „I’ve Seen It All“ ásamt Sjón og leikstjóranum Trier. Í þeim flokki var ekki við mann að eiga þar sem var Bob Dylan með nýja meistarasmíð úr kvikmyndinni Wonder Boys. Fór saman að ný lög frá Dylan eru álíka algeng og logn í vesturbænum og að erlendu blaða- mennirnir eru þekktir fyrir stjörnu- daður. Ekki fór heldur á milli mála að niðurstaðan féll í frjóan svörð á Beverly Hilton-hótelinu; gestir risu úr sætum og klöppuðu meistaranum vel og lengi lof í lófa. Stjörnurnar utangátta Að þætti Íslendinga slepptum er hins vegar þess að geta að sverða- glamur, eiturlyf og kannski fyrst og fremst skrautlegur klaufagangur settu mark sitt á verðlaunaafhend- inguna að þessu sinni. Hvað síðast- talda þáttinn áhrærir má ekki á milli sjá hvort var eftirminnilegra og jafn- framt neyðarlegra; að Renée Zellweger var á klósettinu þegar henni hlotnuðust verðlaun fyrir besta leik kvenna í gamanmynd og söngleik og Hugh Grant sem hugðist afhenda verðlaunin spurði salinn í kímni hvort ske kynni að hún væri drukkin undir borði eða að gyðjan Elizabeth Taylor birtist utangátta á sviðinu við afhendingu síðustu verð- launa kvöldsins, gleymdi að telja upp tilnefndar myndir og ætlaði þess í stað af skýra þegar frá nið- urstöðum dómnefndarinnar. „Ég er ný í þessu,“ sagði frúin af- sakandi við gesti sem héldu niðri í sér andanum í vandræðalegri þögn. „Venjulega fæ ég svona verðlaun.“ Eiturlyf voru líka áberandi í um- ræðunni fyrir margra hluta sakir; stórmyndin Traffic sem tilnefnd var til marga verðlauna þykir sýna á raunsæjan hátt úr heimi eiturlyfja- sala og fíkla, og Robert Downey yngri áskotnuðust verðlaun fyrir gestaleik í gamanþáttunum vinsælu um Ally McBeal. Downey hefur margoft komist í kast við lögin vegna eiturlyfjafíknar sinnar, setið mánuðum saman bak við lás og slá og var síðast tekinn höndum á þakk- argjörðardaginn í vímu á rölti um götur Malibu. Sjálfur gerði leikarinn grín að öllu saman og um leið og hann tók við verðlaununum sagði hann notalegra að þurfa ekki að liggja undir borðum allan tímann, eins og stundum áður á hátíðum sem þessum. Í viðtölum síð- ar um kvöldið var þó alvarlegri tónn sleginn. „Ég vil þakka almenningi fyrir stuðninginn. Sjálfstraust mitt fer vaxandi og það er fólkinu að þakka.“ Verðlaun fyrir besta handrit fell í skaut ungs nýliða Stephen Gaghan fyrir Traffic. Kom berlega í ljós í þakkarávarpi hans að lýsingar á miskunnarleysi eiturlyfjaheimsins voru ekki síst byggðar á eigin reynslu. Bush og Sheen í Vesturálmunni Sumpart má líka segja að stjórn- mál hafi sett mark sitt á verðlauna- afhendinguna að þessu sinni, ekki síst fyrir þær sakir að George W. Bush sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna deginum áður í Washington. Martin Sheen sem leik- ur einmitt forseta Bandaríkjanna í sjónvarpsþáttunum West Wing eða Vesturálmunni hreppti einmitt verð- laun fyrir bestan leik í gamanþáttum í sjónvarpi, auk þess sem þátturinn var valinn besti dramatíski fram- haldsþátturinn. Sheen hefur marga fjöruna sopið og þykir afar pólitískur, en þegar blaðamenn spurðu eftir afhend- inguna hvaða ráð hann gæti gefið hinum eina og sanna nýja forseta í Hvíta húsinu, sagði hann: „Hann verður að hlýða hjarta sínu.“ Um verðlaunin sagði Sheen og vísaði enn til bandarísku forsetakosninganna: „Ég er viss um að þetta eru stór mis- tök, en ég ætla að halda þessum verðlaunum þar til endurtalning hef- ur farið fram.“ Í flokki gamanþátta stal Sarah Jessica Parker enn og aftur senunni með Sex and the City, eða Beðmál í borginni. Þátturinn sá, sem fjallar á opinskáan hátt um samskipti kynjanna, nýtur gríðarlegra vin- sælda, ekki síst meðal kvenþjóð- arinnar, og hlaut verðlaunin annað árið í röð rétt eins og aðalleikkonan Parker. Kelsey Grammer hélt einnig ánægðir heim með enn eina styttuna að verðlaunum fyrir túlkun sína á geðlækninum taugaveiklaða, Fras- ier Crane. Rokk og skylmingar Stórmyndin Gladiator eftir Ridley Scott hreppti verðlaunin fyrir bestu mynd ársins í flokki dramatískra kvikmynda. Kannski er ekki hægt að segja að það val komið algjörlega á óvart þar sem kvikmyndin hlaut alls fimm tilnefningar, en augu flestra höfðu beinst að annarri kvikmynd Stevens Soderberghs, Traffic, síð- ustu dagana og spáðu því margir henni verðlaununum. Enn meiri athygli vakti þó að kvikmyndin Almost Famous hreppti hnossið þegar kom að flokki gaman- og söngvamynda. Á bak við hana er þó enginn annar en leikstjórinn og handritshöfundurinn Cameron Crowe, en flestir höfðu þó átt von á annarri niðurstöðu. Almost Famous er reyndar byggð á reynslu leik- stjórans frá því hann var blaðamað- ur við tónlistartímaritið Rolling Stone og fékk það verkefni sem sextán ára tónlistarskríbent að fylgja stórsveitinni Led Zeppelin á tónleikaferðalagi. Um leið og hann þakkaði fyrir verðlaunin, beindi Crowe orðum sín- um til móður sinnar og þakkaði henni fyrir að hafa hleypt sér svo ungum á tónleikaferðalag með rokk- urum og fylgifé þeirra. „Ég taldi henni trú um að þeir væru hin bestu skinn,“ sagði leikstjórinn glaðbeitt- ur. Mesta athygli af öllu vakti þó kannski að besti leikstjórinn var val- inn Ang Lee, frá Taívan, fyrir mynd- ina Crouching Tiger, Hidden Dra- gon. Ekki svo að skilja að þar sé á ferðinni einhver viðvaningur, Lee er margverðlaunaður leikstjóri (Eat Drink Man Woman, The Ice Storm, Sense and Sensibility) en fyrir fram þótti ekki líklegt að leikstjóri kvik- myndar á kínversku hreppti svo mikið hnoss. Ekki síður fyrir þær sakir að sami leikstjóri, Steven Sod- erbergh, var tilnefndur fyrir tvær kvikmyndir, Erin Brockovich og Traffic, en slíkt er fáheyrt. Það hef- ur enda líklega orðið honum að falli, því sérfræðingar telja að atkvæða Soderberghs hafi dreifst of jafnt á báðar myndir hans. Lee hafi því komið „bakdyramegin“ og hirt verð- launin. Lee var reyndar ekki hættur, því mynd hans var einnig valin besta er- lenda kvikmynd ársins, en hún hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og ekki síður almennings. Meðal þeirra sem fengu Golden Globe verðlaun í fyrsta sinn voru Reneé Zellweger fyrir túlkun sína á hamslausum stjörnudýrkanda í Nurse Betty og Benicio Del Toro fyrir Traffic. Eins og áður sagði var Zellweger að sinna brýnum erindum þegar nafn hennar var lesið upp og þurfti hún að þjóta út af snyrtingunni og inn í sal- inn á mettíma til að missa ekki af herlegheitunum. „Ég var á klóinu því ég var með varalit á tönnunum,“ sagði leikkonan til út- skýringar, heldur skömmustuleg. „Þetta er stund sem ég mun aldrei gleyma. Stund sem ég var næstum búin að missa af.“ Kate Hudson, dóttir leikkonunnar Goldie Hawn, fékk verðlaun fyrir leik sinn í Almost Famous og George Clooney fyrir frammistöðu sína í nýjasta stykki þeirra Coen- bræðra, O Brother Where Art Thou? Tom Hanks hlaut svo hnossið fyrir leik sinn í Cast Away, enn ein rósin í hnappagat þessa farsæla leik- ara. Clooney fór á kostum er hann tók við verðlaununum og vakti athygli á að ekki minni menn en Jim Carrey, Robert DeNiro, Mel Gibson og John Cusack hefðu verið tilnefndir í þess- um sama flokki. „Það þarf ekki annað en renna augum yfir þennan lista til að sjá að í raun og veru kom aðeins ég til greina sem sigurvegari,“ bætti hann við brosandi. Sérstök heiðursverðlaun kvölds- ins, sem kennd eru við Cecil B. DeMille, féllu að þessu sinni í skaut Al Pacino. Flutti stórleikarinn af því tilefni magnað erindi um listina að leika og listina að kenna. Pacion fór níu mínútur fram úr leyfilegum flutningstíma og notaði óspart hend- urnar til að leggja áherslu á mál sitt. Ekki fór þó á milli mála að ein helsta stjarna kvöldsins var Julia Roberts. Vinsælasta leikkona heims og sú eina sem stendur jafnfætis vin- sælustu karlleikurunum hvað kaup og kjör varðar. Hún lagði mikla áherslu á þátt leikstjórans Soder- berghs. „Ég myndi lesa upp síma- skrána, bæði hann mig um það, sagði hún og bætti við: „Ég er yfir mig ánægð. Og ég skammast mín ekkert fyrir það. Og hví ætti hún líka gera það? Umdeild verðlaunahátíð Hitt er svo annað mál að margir hér í Hollywood dæma Golden Globe verðlaunin eins og hverja aðra fjað- urvigt og segja þau ekkert annað en vinsældakeppni. Á það hefur verið bent að af þeim 80 erlendu blaða- mönnum sem skráðir eru í Samtök erlendra blaðamanna í Hollywood séu margir aðeins í lausamennsku og sumir jafnvel fyrir löngu hættir að skrifa fréttir úr kvikmyndaborg- inni heim. Markaðssinnaðir kvikmynda- mógúlar láta sér slíkt hins vegar í léttu rúmi liggja, enda fá verðlaunin jafnan mikla athygli, þannig að að- eins Óskar gamli gerir betur. Þannig er talið að um 300 milljónir manna um víða veröld hafi fylgst með af- hendingunni beint í sjónvarpi að þessu sinni. Hætt er einnig við að verðlauna- hafarnir verði auglýstir rækilega í kvikmyndaauglýsingum næstu átta vikurnar, eða þar til Óskarsverð- launin komast í brennidepil. En það er önnur saga. Gladiator og Almost Famous kvikmyndir ársins á Golden Globe-hátíðinni Björk var viðstödd hátíðina. Kate Hudson, dóttir Goldie Hawn, var útnefnd besta leik- konan í aukahlutverki fyrir Almost Famous. Julia Roberts er í mestu uppáhaldi leikkvenna hjá erlendum blaðamönnum í Hollywood.                                                                                !                       ""              !       !" " ""           #                            $              %  "             #$             "   & #$                   Stjórnmál og skraut- legur klaufagangur Al Pacino fékk Cecil B. DeMille- heiðursverðlaunin. FÓLK Í FRÉTTUM 74 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.