Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 51
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 51
Fanney Sigtryggs-
dóttir fæddist á Stóru-
Reykjum í Reykja-
hverfi 23. janúar 1911.
Foreldrar hennar voru
Sigtryggur Hallgríms-
son og Ásta Lovísa Jón-
asdóttir. Systkini
Fanneyjar voru Lauf-
ey, f. 2. júní 1905, Garð-
ar, f. 15. mars 1909, og
Óskar, f. 29. september
1914, öll látin.
2. júlí 1967 giftist
Fanney Páli H. Jóns-
syni kennara á Laug-
um. Hann lést 1990.
Þau bjuggu fyrst á Laugum, en þegar
Fanney hætti kennslu fluttu þau til
Húsavíkur. Nú býr hún á Dvalar-
heimilinu Hvammi.
Fanney nam í Laugaskóla og Hús-
mæðraskólanum á Laugum og sótti
handavinnunámskeið á Siglufirði og
Reykjavík. Handavinnukennari á
Staðarfelli 1944–1946 og síðan við
Húsmæðraskólann á Laugum til árs-
ins 1975.
Hún fór í ársfrí veturinn 1956 til
1957 og tók þá handavinnukennara-
próf frá KÍ.
Elsku Fanney frænka. Í tilefni af
afmælinu þínu langar mig til að senda
þér kveðju frá okkur héðan að vestan.
Margs er að minnast. Þú varst alltaf
einn af föstu punktunum í lífi okkar
frændsystkinanna sem ólumst upp í
nágrenni við þig, ömmu og afa á
Stóru-Reykjum.
Lítilli stelpu þóttu veturnir sem þú
varst á Staðarfelli lengi að líða, en eft-
ir að þú fórst að kenna á Laugum var
ekki jafn langt á milli funda. Á sumr-
in varstu oftast heima á Reykjum,
enda stoð og stytta ömmu og afa við
búskapinn. Það var heyjað með
hestavinnuvélum, og oft man ég þig
sitjandi á rakstrarvélinni, stjórnandi
Stjörnu, Þyt eða Litlu-Gránu.
Þá var gaman að ganga með þér
um tún og móa, þú varst óþreytandi
að svara spurningum um jurtir,
steina og annað sem ég vildi fræðast
um, fyrir utan allar sögurnar sem þú
sagðir frá liðinni tíð. Grasa- og berja-
ferðir voru líka ævintýri. Stundum
FANNEY
SIGTRYGGSDÓTTIR
buðuð þið mér með í
lengri ferðir. Sérstak-
lega man ég ferð í Mý-
vatnssveit þar sem ég
fékk að sjá Stórugjá,
Höfða og margt annað í
fyrsta sinn. Þegar ég
var í Laugaskóla átti ég
mörg spor til þín í
„Kvennó“, oft til að fá
hjálp við handavinnu
eða þá bara í heimsókn,
og alltaf var jafn gott að
koma til þín.
Við vorum líka sam-
tíða í Reykjavík þegar
þú varst í Kennaraskól-
anum og þá fórum við saman í leik-
hús, bíó o.fl.
Í „Kvennó“ kenndir þú fatasaum
og handavinnu, og þar lærði ég margt
af því sem best hefur nýst mér í lífinu.
Árin liðu og það lengdist á milli
okkar. En þegar við komum norður
var sjálfsagt að heimsækja ykkur
Pál. Strákarnir muna ennþá hvað
það var gaman að leika sér í kringum
Holt og fá að gefa silungunum í
tjörninni með Páli. Eftir að þið flutt-
uð til Húsavíkur lá jafnvel ennþá
beinna við að líta inn til ykkar, hvort
sem var í íbúðinni ykkar í innbænum
eða í Litla-Hvammi. Þar bjóst þú ein
í nokkur ár eftir að Páll dó, en nú
býrð þú í litla herberginu í Hvammi
og alltaf er jafn notalegt að líta inn til
þín.
Handavinna hefur alltaf verið þitt
stóra áhugamál, enda hefur þú skap-
að mörg listaverk, saumuð, flosuð eða
máluð, og þær flíkur sem þú saum-
aðir eru óteljandi. Kennslan var þó
þitt stóra lífsverk, og ég veit að þær
eru óteljandi stúlkurnar sem eru þér
eilíflega þakklátar fyrir að hafa leitt
þær fyrstu sporin í saumum og
handavinnu.
Elsku frænka, það hefði verið gam-
an að geta hitt þig á afmælisdaginn,
en þess í stað sendi ég þér hjartanleg-
ar afmæliskveðjur og hamingjuóskir
frá okkur Gísla og okkar fólki. Von-
andi hittumst við áður en langt um
líður. Líði þér alltaf sem best.
Þín frænka
Svanhildur.
KIRKJUSTARF
FIMMTUDAGINN 25. janúar
næstkomandi kl. 14–16 hefjast eft-
irmiðdagar fjölskyldunnar í safn-
aðarheimili Dómkirkjunnar, Lækj-
argötu 14a (gengið inn Vonar-
strætismegin). Gerður Bolladóttir
söngkona ætlar að stjórna spenn-
andi tónlistarnámskeiði fyrir börn
á aldrinum 0–2 ára og á miðhæð
hússins verður kaffihlaðborð á
mjög vægu verði. Bolli Pétur
Bollason, fræðari safnaðarins, hef-
ur umsjón með stundunum. Verið
velkomin.
Áskirkja: Opið hús fyrir alla ald-
urshópa í safnaðarheimilinu kl. 10–
14. Skemmtiganga kl. 10:30. Létt-
ur hádegisverður framreiddur.
Mömmu- og pabbastund í safn-
aðarheimilinu kl. 14–16.
Grensáskirkja: Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12:10. Orgelleikur, ritning-
arlestur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina. Æfing barna-
kórs kl. 17–19.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10:30. Beðið fyrir
sjúkum.
Háteigskirkja: Fermingarfræðsla
kl. 16. Fundur í Æskulýðsfélagi kl.
20. „Body language.“ Kristin
„mystik“ kl. 20. Námskeið Leik-
mannaskóla Þjóðkirkjunnar.
Laugarneskirkja: Kl. 20. Fullorð-
insfræðsla. Sóknarprestur fjallar
um afstöðu kristinnar trúar til
auðs og fátæktar. Kl. 21. Þriðju-
dagur með Þorvaldi. Lofgjörðar-
stund þar sem Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir söng, Gunnar
Gunnarsson leikur á flygil og sr.
Bjarni flytur Guðs orð og bæn. Kl.
21.30 fyrirbænaþjónusta.
Neskirkja: Tíðasöngur kl. 12. Litli
kórinn, kór eldri borgara kl.
16:30–18. Stjórnandi Inga J. Back-
man. Foreldramorgunn miðviku-
dag kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Seltjarnarneskirkja: Foreldra-
morgunn kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Fríkirkjan í Reykjavík. Bæna-
stund í kapellunni í safnaðarheim-
ilinu 2. hæð kl. 12. Koma má bæn-
arefnum á framfæri áður en
bænastund hefst eða með því að
hringja í síma 552 7270 og fá bæn-
arefnin skráð. Safnaðarprestur leið-
ir bænastundirnar. Að bænastund
lokinni gefst fólki tækifæri til að
setjast niður og spjalla. Allir eru
hjartanlega velkomnir til þátttöku.
Árbæjarkirkja: Foreldramorgunn
í safnaðarheimilinu kl. 10–12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Langholtskirkja: Langholtskirkja
er opin til hljóðrar bænagjörðar í
hádeginu. Endurminningafundur
karla er kl. 13–14.30. Ath. breyttur
tími í þetta
eina skipti.
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl.18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM & K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja: Kirkjustarf aldr-
aðra. Leikfimi ÍAK kl. 11:20. Sam-
vera, léttur málsverður og kaffi.
Æskulýðsstarf KFUK og Digra-
neskirkju fyrir 10–12 ára stúlkur
kl. 17:30.
Fella- og Hólakirkja: Foreldra-
stundir kl. 10–12. Starf fyrir 11–12
ára stúlkur kl. 17–18. Æskulýðs-
félag fyrir 8. bekk kl. 20–22.
Grafarvogskirkja: Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13:30. Helgi-
stund, handavinna, spil og spjall.
Alltaf eitthvað gott með kaffinu.
Kirkjukrakkar í Rimaskóla kl. 18–
19 fyrir börn á aldrinum 7–9 ára.
Fyrirlestur í Grafarvogskirkju um
sorg og sorgarviðbrögð. Gunnar
Matthíasson sjúkrahúsprestur
verður með fyrirlestur um sorg og
sorgarviðbrögðí Grafarvoggskirkju
í kvöld þriðjudag 23.janúar kl. 20.
Allir velkomnir.
Hjallakirkja: Bæna- og kyrrðar-
stund kl.18.
Kópavogskirkja: Foreldramorg-
unn í dag kl. 10–12 í safnaðarheim-
ilinu Borgum.
Seljakirkja: Foreldramorgnar. Op-
ið hús milli kl. 10–12. Kaffi og
spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir 10–12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17–18.30 fyrir 7–9 ára börn.
Vídalínskirkja. Helgistund í
tengslum við félagsstarf aldraðra
kl. 16. Starf fyrir stúlkur 10–12
ára í samstarfi við KFUK kl. 17.30
í safnaðarheimilinu.
Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg-
unn í safnaðarheimili Þverholti 3,
3. hæð frá kl. 10–12.
Fundur hjá kirkjukrökkum frá kl.
17.15–18.15. Safnaðarheimilið opn-
að kl. 17.
Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur
opinn kl. 13–16 með aðgengi í
kirkjuna og Kapellu vonarinnar
eins og virka daga vikunnar.
Gengið inn frá Kirkjuteig. Starfs-
fólk verður á sama tíma í Kirkju-
lundi.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. TTT-starf
kl. 17 í umsjá Ástríðar Helgu Sig-
urðardóttur og undirleikari er
Tone Solbakk. Starfið er ætlað
börnum 10 til 12 ára.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT, tíu – tólf
ára starf, alla þriðjudaga kl. 17–18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15–19.
Útskálakirkja. Safnaðarheimilið
Sæborg. NTT (9–12 ára) starf er
hvern þriðjudag í vetur kl. 17. All-
ir krakkar 9–12 ára hvattir til að
mæta.
Hvalsneskirkja. Safnaðarheimilið
Sandgerði. NTT (9–12 ára) starf
er hvern þriðjudag í vetur kl. 17 í
safnaðarheimilinu. Allir krakkar
9–12 ára hvattir til að mæta.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30 kirkjuprakkarar, ratleik-
ur í umsjón unglinga.
Boðunarkirkjan. Annað kvöld kl.
20 heldur áfram námskeið dr.
Steinþórs Þórðarsonar „Lærum að
merkja biblíuna“. Mjög spennandi
efni verður tekið fyrir og biblían
verður aðgengilegri.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
Kefas, kristilegt samfélag. Almenn
bænastund kl. 20:30.
Eftirmið-
dagar fjöl-
skyldunnar
Safnaðarstarf
INNLENT
HEYRNARSKERTIR nemendur
og kennarar í Vesturhlíðarskóla
eru nú komnir með nýjustu þráð-
lausu samskiptatæknina í sína
þjónustu. Um er að ræða tvo
GPRS-/GSM-síma sem eru sí-
tengdir Netinu og tvær lófatölvur
sem tengjast símtækjunum og
gera notendum þar með kleift að
vera í þráðlausu netsambandi hvar
sem er.
Þessi nýjasta þráðlausa sam-
skiptatækni er gjöf til Vesturhlíð-
arskóla frá Tali. Þórólfur Árnason,
forstjóri Tals, afhenti gjöfina í til-
efni af flutningi HópTALs, fyr-
irtækjaþjónustu Tals, í ný húsa-
kynni. Berglind Stefánsdóttir,
skólastjóri Vesturhlíðarskóla, tók
við gjöfinni fyrir hönd nemenda og
kennara.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Tal hlutast til um að efla mögu-
leika heyrnarskertra barna á að
vera í sambandi við umheiminn.
Við skólaslit Vesturhlíðarskóla
vorið 1999 færði Tal öllum út-
skriftarnemum að gjöf GSM-síma
með titrarahringingu og SMS. Við
athöfnina hjá HópTALi fimmtu-
daginn 18. janúar skýrði Berglind
Stefánsdóttir frá því að notkun
GSM-síma væri mikil hjá heyrn-
arskertum, en þeir nota einkum
SMS-skilaboðamáta símtækjanna.
Hún sagði að tilkoma GPRS-/
GSM-símanna með sítengdu net-
sambandi gerði heyrnarskertum
kleift að koma flóknari og ítarlegri
skilaboðum viðstöðulaust sín á
milli og væri því kærkomin viðbót,
segir í fréttatilkynningu.
Tal gefur skóla
heyrnarskertra tæki
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals, afhendir Berglindi Stefánsdóttur,
skólastjóra Vesturhliðarskóla, GPRS/GSM símtækin og lófatölvurnar
og Tryggvi Jónsson, aðstoðarforstjóri Baugs, fylgist með.
NÁUM ÁTTUM – fræðsluhópur
stendur fyrir morgunverðarfundi
mánudaginn 5. febrúar kl. 8.30–10.30 í
Sunnusal Hótel Sögu.
Á fundinum flytur Óttar Guðmunds-
son geðlæknir erindi sem nefnist
„Blekking og þekking“ og fjallar m.a.
um sjúkdómshugtakið, meðferð og AA
sem úrræði fyrir ungt fólk. Lára
Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykja-
víkurborgar, fjallar um eftirmeðferð
fyrir unglinga á vegum borgarinnar.
Fundarstjóri verður Anna Björg
Aradóttir, hjúkrunarfræðingur hjá
Landlæknisembættinu.
Þátttökugjald 1.500 kr. með morg-
unverði, Morgunverðarfundurinn er
öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Þátttaka skráð hjá: iae@rvk.is og
bryndis@bvs.is
Náum áttum – er opinn samstarfs-
hópur um fræðslu- og fíkniefnamál
með þátttöku: Áfengis- og vímuvarn-
aráðs, Heimilis og skóla, Íslands án
eiturlyfja, Vímulausrar æsku, Götu-
smiðjunnar, Barnaverndarstofu,
Landlæknis, fulltrúa framhaldsskól-
anna, samstarfsnefndar Reykjavíkur
um afbrota- og fíkniefnavarnir, Lög-
reglunnar í Reykjavík, Stórstúku Ís-
lands, Rauðakrosshússins og Geð-
ræktar.
Fundur um vímuefnaneyslu
unglinga og meðferð
SKÁTAFÉLAGIÐ Garðbúar í
Reykjavík bauð nú í haust í
fyrsta skipti upp á 13 vikna æv-
intýranámskeið fyrir krakka á
aldrinum 8 til 10 ára. Undirtektir
voru góðar, segir í fréttatilkynn-
ingu, og nú eru næstu námskeið
að hefjast.
Hópur reyndra skátaforingja
sér um námskeiðin en þau byggj-
ast upp á skátafundum einu sinni
í viku. Auk þess verður farið í
tvær dagsferðir og fyrir þá sem
vilja er boðið upp á útilegu að
Úlfljótsvatni. Námskeiðin eru
unnin upp úr sumarútilífsnám-
skeiðum Garðbúa en við þau er
blandað hefðbundnu skátastarfi
sem gerir námskeiðin skemmti-
lega blöndu af fróðleik og
skemmtun, segir í tilkynningunni.
Öll börn fá ylfingaplakat með sér
heim og safna á það sérstökum
límmiðum.
Skráning stendur nú yfir í
skátaheimili Garðbúa í Hólmgarði
34.
Ævintýra-
námskeið
fyrir 8-10
ára gömul
börn