Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 28
ERLENT 28 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ „ÉG svaf afbragðsvel,“ sagði Ge- orge W. Bush á sunnudag, eftir að hafa varið fyrstu nóttinni í Hvíta húsinu í Washington. Það er óhætt að segja að helgin hafi verið anna- söm hjá hinum nýja forseta Banda- ríkjanna. Bush sór embættiseið á hádegi á laugardag, sótti að því búnu níu veislur og dansleiki, og tók á sunnudag á móti gestum í Hvíta húsinu – sem hafði tekið nokkrum breytingum á þeim sólar- hring sem liðinn var frá því Bill Clinton flutti út. Embættistakan fór að venju fram á tröppum þinghússins í Washington, en þrátt fyrir rign- ingu og kuldalegt veður hafnaði Bush því að athöfnin yrði færð inn í þinghúsið. Bush hafði embættiseið- inn eftir William Rehnquist, for- seta hæstaréttar, og studdi hönd á Biblíu frá árinu 1767, þá sömu og faðir hans sór embættiseið við fyrir tólf árum. Að embættistökunni lok- inni faðmaði forsetinn eiginkonu sína, Lauru, og kyssti dæturnar tvær, Jennu og Barböru. Meðal þeirra sem fylgdust með á tröpp- unum voru George Bush eldri, sem gegndi forsetaembætti frá 1989 til 1993, Bill Clinton, fráfarandi for- seti, og Al Gore, fráfarandi vara- forseti og keppinautur Bush í for- setakosningunum. Táraðist við flutning innsetningarræðunnar „Það er mér heiður og vekur með mér auðmýkt að standa hér, þar sem svo margir leiðtogar Bandaríkjanna hafa staðið á undan mér og svo margir munu fylgja á eftir,“ sagði Bush í innsetningar- ræðu sinni, sem bar merki þeirrar „umhyggjusömu íhaldsstefnu“ sem hann boðaði í kosningabaráttunni. „Ríkisstjórnin ber mikla ábyrgð, á öryggis- og heilbrigðismálum, á því að einstaklingsréttindi og almenn menntun séu tryggð. En umhyggja er þrátt fyrir það í verkahring allr- ar þjóðarinnar, ekki aðeins stjórn- valda,“ sagði Bush, og lagði áherslu á að trúfélög og líknar- stofnanir hefðu einnig hlutverki að gegna í vel- ferðarmálum. Bush hét því að tryggja varnir landsins og gaf til kynna að Bandaríkin yrðu eftir sem áður at- kvæðamikil á al- þjóðavettvangi. „Óvinir frelsisins og þjóðar okkar þurfa ekki að velkjast í vafa um að Bandarík- in munu áfram hafa áhrif á þró- un mála í heiminum ... Við munum verja bandamenn okkar og hags- muni. Við munum sýna stefnufestu án hroka. Við munum svara árás- um og svikum með festu og styrk.“ Forsetinn óskaði þess að borg- ararnir væru virkir þátttakendur í samfélaginu. „Ég bið ykkur um að vera samborgarar. Samborgarar, en ekki áhorfendur. Samborgarar, en ekki þegnar.“ Að sögn The New York Times táraðist Bush tvisvar á meðan hann flutti ræðuna, en hann þurfti 14 sinnum að gera hlé á flutningn- um vegna lófaklapps. Sóttu níu dansleiki Strax að innsetningarathöfninni lokinni innti forsetinn fyrstu emb- ættisverk sín af hendi, en hann gaf meðal annars út tilskipanir um endurskoðun og frestun gildistöku nokkurra af síðustu reglugerðum Clinton-stjórnarinnar. Bush hélt þvínæst til hádegis- verðar með helstu leiðtogum Bandaríkjaþings. Í ávarpi sínu þar viðurkenndi hann að vegna þess hve mjótt var á munum í kosning- unum teldu margir að stjórn hans yrði ekki mikið framgengt á kjör- tímabilinu. „En ég er hingað kom- inn til að færa þjóðinni þau skila- boð að málum verður hrint í framkvæmd,“ sagði Bush. Forsetahjónin sóttu níu dans- leiki í tilefni embættistökunnar á laugardag, og bandarískum fjöl- miðlum taldist til að þau hefðu að meðaltali dansað í 48 sekúndur á hverjum stað. Bush gantaðist með þetta við fréttamenn á sunnudags- morgun og sagðist vera „úrvinda eftir að hafa dansað svo mikið“. Þrátt fyrir að Bush sé heimavan- ur í Hvíta húsinu, eftir að faðir hans gegndi forsetaembætti um fjögurra ára skeið, fékk hann leið- sögn um húsið á sunnudag. Ef til vill er ekki vanþörf á, því í húsinu eru hvorki meira né minna en 132 herbergi. Síðar um daginn sýndi Bush 2.200 gestum Hvíta húsið, en venja er að nýr forseti geri það daginn eftir embættistökuna. Breytingar gerðar á forsetaskrifstofunni Nýir forsetar reyna iðulega að setja svip sinn á innviði Hvíta hússins, og eru Bush-hjónin engin undantekning. Aðeins sólarhring eftir að Bill Clinton flutti á brott með sitt hafurtask var búið að fjarlægja dökkbláu mottuna, sem prýddi for- setaskrifstofuna í valdatíð hans, og ljósbrúna teppið frá árum Ronalds Reagans var komið í staðinn. Clin- ton hafði röndótta silkisófa í skrif- stofunni, en Bush valdi tvo íburð- arminni rjómalita sófa í þeirra stað. Brjóstmyndir af demókrata- forsetunum Franklin D. Roosevelt og Harry S. Truman eru einnig á bak og burt, en strax á sunnudag var búið að stilla upp innrammaðri mynd af embættistöku Bush. Sömuleiðis var búið að koma fyrir árituðum hornaboltum, minjagrip- um frá Texas og myndum af for- eldrum forsetans, eiginkonu og dætrum. Nýi forsetinn mun þó notast við sama skrifborð og forveri hans, en forsetinn Rutherford Hayes fékk það að gjöf frá Viktoríu Englands- drottningu árið 1880. Þess má geta að fræg mynd var tekin af John F. Kennedy yngri, þar sem hann leik- ur sér undir borðinu á meðan faðir hans sinnir embættisverkum. Laura Bush mun hafa umsjón með breytingum á vistarverum for- setahjónanna, en að hennar sögn verða þær ekki umfangsmiklar þar sem herbergin voru gerð upp fyrir skömmu. Að sögn Andrew Card, starfs- mannastjóra Hvíta hússins, mun Bush helga fyrstu viku sína í emb- ætti umræðum um menntamál, en forsetinn átti í gær fundi með leið- togum repúblikana í þinginu, þar sem hann kynnti stefnu sína þar að lútandi. Í næstu viku mun Bush einbeita sér að því að kynna til- lögur sínar um að einstaklingar og trúfélög verði hvött til að taka að sér góðgerðarstörf, sem að öðrum kosti myndu vera á höndum stjórn- valda, og þriðju viku sína í embætti mun hann helga áformum stjórn- arinnar um skattalækkanir. Card sagði ennfremur að líklegt væri að fyrsta opinbera heimsókn Bush verði til Mexíkó í næsta mán- uði. Auk þess er búist við að forset- inn fari til Kanada í apríl. George W. Bush, 43. forseti Bandaríkjanna, sver embættiseið í höfuðborginni Washington „Svaf afbragðsvel“ fyrstu nóttina George W. Bush sver embættiseið. Forsetahjónin taka sveiflu á einum innsetningardansleiknum. Bush-feðgarnir takast í hendur eftir embættistökuna. AP AÐ lokinni embættistöku George W. Bush á laugardag héldu Bill Clinton og Hillary eiginkona hans til nýs heimilis síns í Chappaqua í New York-ríki. En forsetinn fyrrverandi yfirgaf ekki Washington þegjandi og hljóðalaust. Áður en Clinton steig upp í flugvél sína á Andrews-herflugvellinum hélt hann ávarp að viðstöddum stuðn- ingsmönnum og fjölmiðlafólki. Hing- að til hafa fráfarandi forsetar hins vegar látið lítið fyrir sér fara fyrst eftir að þeir láta af embætti. „Ég hef yfirgefið Hvíta húsið, en ég er enn í fullu fjöri,“ sagði Clinton í ávarpi sínu, sem hann flutti í þétt- skipuðu flugskýli. „Þið veittuð mér bestu stundir lífs míns og ég reyndi að endurgjalda það.“ Clinton óskaði George W. Bush velfarnaðar í starfi, en lét jafnframt í ljós nokkurn sökn- uð. „Því verkefni að stjórna landinu lýkur aldrei og enginn fær heldur að gegna því starfi endalaust.“ Svaf út á sunnudag Um 2.000 stuðningsmenn forset- ans fyrrverandi tóku á móti Clinton- hjónunum er þau lentu á John F. Kennedy-flugvellinum í New York síðdegis á laugardag. Að sögn The New York Times naut Clinton þess á sunnudag að geta sofið út og að þurfa ekki að lesa dagblöðin og fylgjast með pólitískum umræðuþáttum í sjónvarpinu. Eins og hver annar óbreyttur borgari fór hann ásamt Chelsea dóttur sinni á matstofu í Chappaqua og keypti kaffi og bakkelsi til að taka með heim. Clinton var hinn afslappaðasti og stoppaði til að gefa eiginhandarárit- anir og svara spurningum frétta- manna. Hann kvaðst ætla að nota næstu vikur til að hvíla sig vel, koma sér fyrir á nýja heimilinu og hugleiða bókaskrif og önnur störf. Hillary Clinton sneri aftur til Washington í gær til að taka sæti á þingi, en eins og kunnugt er var hún kjörin til setu í öldungadeildinni fyr- ir New York-ríki. Fjölskyldan mun þó taka sér frí saman í byrjun febrú- ar, þegar hlé verður gert á þingstörf- um. Samkvæmt venju notaði Clinton heimild forseta til að veita nokkrum fjölda brotamanna sakaruppgjöf á síðasta degi sínum í embætti. Umdeildar náðanir Meðal þeirra 140 sem hlutu sak- aruppgjöf voru Susan McDougal, fyrrverandi viðskiptafélagi Clinton- hjónanna sem var sakfelld fyrir fjár- svik í Whitewater-málinu svokallaða, og Patty Hearst, dóttir auðkýfings- ins Williams Randolphs Hearst, sem gekk til liðs við hryðjuverkahóp eftir að henni var rænt á 8. áratugnum. Hearst var árið 1975 dæmd til sjö ára fangelsisvistar fyrir þátttöku í bankaráni, en Jimmy Carter veitti henni lausn úr fangelsi árið 1979. Clinton náðaði einnig bróður sinn, Roger, sem hlaut dóm í fíkniefnamáli árið 1984. Sakaruppgjöf Marc Rich hefur vakið mesta gagnrýni, en hann var ákærður árið 1983 fyrir mestu skatt- svik sem uppvíst hefur orðið um í Bandaríkjunum. Rich flúði til Sviss og hefur aldrei komið fyrir dóm, en hann hefur haldið áfram að auðgast og hefur varið milljónum dollara til góðgerðarmála. Athygli vakti að Clinton náðaði ekki nokkra menn, sem líklegt þótti að fengju sakaruppgjöf. Þeirra á meðal eru Michael Milken, sem hlaut dóm fyrir verðbréfasvik, Webster Hubbel, sem starfaði með Hillary Clinton á Rose-lögmannsstofunni í Little Rock, og James McDougal, fyrrverandi eiginmaður Susan McDougal, sem var sakfelldur í sama réttarhaldi en lést á meðan hann afplánaði fangelsisvist. Clinton varði sakaruppgjafirnar í samtali við fréttamenn á sunnudag. „[Með sakaruppgjöf] er ekki verið að segja að þetta fólk hafi ekki framið lögbrot, heldur að það hafi tekið út refsingu sína og sýnt fram á að það sé nýtir borgarar. Það ætti því að hljóta tækifæri til að fá full borgara- réttindi á ný,“ sagði Clinton, en í vissum tilvikum missa brotamenn í Bandaríkjunum kosningarétt. Bill Clinton yfirgefur Washington og flytur til New York eftir átta ár í forsetaembættinu Óskaði Bush velfarnaðar í starfi AP Bill Clinton, fyrrverandi forseti, heilsar stuðningsmönnum sínum sem fögnuðu honum á John F. Kennedy-flugvelli í New York á laugardag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.