Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Einstakt tækifæri Verslunin Veiðisport er til sölu Verslunin er í miðbæ Akureyrar Góður tími framundan Upplýsingar veitir Páll í s. 462 2275/462 2116 SIGURRÓS Kristinsdóttir, fyrrum húsfreyja á Hálsi í Öxnadal, varð 100 ára í gær, mánudag. Sigurrós fæddist að Gili í Öxnadal hinn 22. janúar 1901, dóttir hjónanna Guð- rúnar Maríu Sigurðardóttur og Kristins Magnússonar. Dóttir Sig- urrósar, Sigríður Ásgrímsdóttir, verður sjötug hinn 30. janúar nk. og í tilefni þessara tímamóta var þeim mæðgum haldin vegleg af- mælisveisla á Hótel KEA sl. sunnu- dag. Sigurrós er ágætlega hress en sjón og heyrn eru þó farin að dapr- ast. Sigurrós flutti 5 ára gömul að Geirhildargörðum í Öxnadal og dvaldi þar til 17 ára aldurs. Þá fór hún að Ytri-Kotum í Skagafirði og dvaldi þar í 3 ár en flutti þá að Bakkaseli í Öxnadal og var þar í vinnu til 24 ára aldurs. Í Bakkaseli hitti hún mann sinn Ásgrím Hall- dórsson en þau eignuðust sex börn. Sigurrós og Ásgrímur keyptu jörðina Háls í Öxnadal árið 1925, sem þá var í niðurníðslu og byggðu hana upp af myndarskap. Þau hjón bjuggu á Hálsi til ársins 1963 en fluttu þá til Akureyrar og bjuggu þar í 3 ár. Þá fóru þau aftur heim í Háls og bjuggu þar til ársins 1973, er þau hættu búskap endanlega og fluttu aftur til Akureyrar. Ásgrím- ur lést í janúar árið 1980. Sigurrós er ánægð með að hafa haft búskap að lífsstarfi, enda þótti henni gaman að umgangst skepnur. Hún var mikill göngugarpur enda snerist hún mikið í kringum sauð- féð. Og sjötíu ára að aldri lét hún sig ekki muna um að ganga upp úr Eyjafirði og inn í Nýja bæ. Sigurrós Kristins- dóttir 100 ára Morgunblaðið/Kristján Mæðgurnar, Sigríður Ásgrímsdóttir og Sigurrós Kristinsdóttir, í af- mælisveislu sinni á Hótel KEA. Sigurrós átti 100 ára afmæli í gær, mánudag, en Sigríður verður sjötug þann 30. janúar nk. BROTIST var inn í Umferðarmið- stöðina á Akureyri aðfaranótt sunnudags og stolið þaðan 100 kílóapeningaskáp og vöruvagni sem trúlega hefur verið notaður við þjófnaðinn. Í peningaskápnum voru um 50.000 krónur í peningum og bókhaldsgögn. Þá var brotist inn í húsnæði Endurvinnslunar við Réttar- hvamm enn einu sinni um helgina og stolið þaðan dýru verkfæra- setti. Innbrotsmál þessi eru til rann- sóknar hjá rannsóknardeild lögegl- unnar á Akureyri. Tvö innbrot um helgina TÆPLEGA fimmtugur karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra til að greiða 60 þúsund króna sekt til ríkissjóðs auk þess sem hann var sviptur ökurétt- indum í eitt ár vegna ölvunarakst- urs og að hafa ekki meðferðis öku- skírteini við aksturinn. Þá var honum og gert að greiða verjanda sínum 50 þúsund krónur í máls- varnarlaun. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis frá Svalbarðsströnd og til Akureyrar uns lögregla stöðvaði akstur hans á Drottningarbraut. Blóðsýni sem tekið var úr honum reyndist inni- halda 2,68% alkóhóls. Viðurkenndi maðurinn að hafa ekið umrædda leið en neitaði að hafa fundið til áfengisáhrifa við aksturinn. Hann játaði þó að hafa verið að drekka áfengi. Skýrði hann svo frá að eftir að akstri lauk og hann var kominn inn í lögreglu- bifreiðina hafi hann byrjað að neyta áfengis úr fleyg sem hann hafði með sér og hafi hann sopið á frá því hann var handtekinn og að lög- reglustöð. Ennfremur sagðist hann hafa drukkið úr fleygnum í yfir- heyrsluherbergi þegar tóm gafst til. Lögreglumenn sem handtóku manninn báru aftur á móti að hann hefði verið allölvaður þegar hann var handtekinn. Sá er ók lögreglu- bifreiðinni kvaðst ekki hafa orðið þess var að maðurinn væri að neyta áfengis í bílnum. Sérfræðingur á þessu sviði bar og fyrir dómi að úti- lokað væri að svo mikið magn áfengis mældist í blóði eftir svo skamma drykkju sem maðurinn staðhæfði. Kemst dómurinn að þeirri nið- urstöðu að frásögn mannsins af vín- neyslu hans í lögreglubifreið og yf- irheyrsluherbergi sé fremur ótrúverðug. Ekki sé útilokað að hann hafi drukkið áfengi í bifreið- inni á leið á lögreglustöð, en ekki verði með skynsamlegum rökum efast um að maðurinn hafi gerst sekur um þau brot sem hann hon- um voru gefin að sök. Dæmdur í Héraðsdómi vegna ölvunaraksturs Bar að hafa byrjað drykkju í lögreglu- bifreiðinni SNÖRP vindhviða varð þess valdandi að vír í stólalyftunni í Hlíðarfjalli fauk út af hjólunum við næstefsta lyftustaurinn. Kári Sigurðsson var einn í lyftunni á nokkuð löngum kafla en hann var fyrir neðan staurinn þar sem vír- inn fór út af. „Ég fann að það fór að taka verulega í stólinn og hann svignaði mikið, en ég kippti mér ekkert upp við það, taldi að allt væri fullkomlega traust og leiðin upp var að taka enda,“ sagði Kári, en hann vaknaði skyndilega upp við þann vonda draum að stólinn féll niður um eina fimm metra og flaug upp aftur af sama hraða. Í þessari „flugferð“ rann Kári úr sæti sínu og hékk á höndunum á grindinni framan á stólnum með fæturna dinglandi í lausu lofti, en þá var hann í um tveggja metra hæð frá jörðu. „Ég hékk þarna í smástund, furðu lostinn, en náði svo áttum og spennti af mér skíðin og henti frá mér stöf- unum. Í sömu andrá bar fólk að, bæði starfsfólk og gesti á skíða- svæðinu, mjög elskulega náunga sem spurðu um líðan mína. Ég náði svo að setja grindina upp og stökk niður,“ sagði Kári og bætti við að honum hefði ekki orðið meint af. Eftirminnileg skíðaferð Kári sagði að illa hefði getað farið bæði ef börn hefðu verið í þessum stólum og eins taldi hann það lán í þessu óláni hversu fáir voru í lyftunni þegar vindhviðan skall á, hefðu fleiri verið þar á ferð er alls óvíst að stólarnir hefðu togast upp aftur eins og raunin varð í þessu tilviki. „Ég er hræddur um að þá hefðu fleiri stólar getað hrokkið af vírnum og þeir hefðu lent á jörðinni,“ sagði Kári. Hann sagði starfsfólk á skíða- svæðinu hafa brugðist skjótt við og var snarlega tekið til við að bjarga því fólki sem í lyftunni var úr stólunum. Kára voru afhent þrjú dagskort í lyfturnar í Hlíð- arfjalli eftir þessa lífsreynslu og hann sagðist staðráðinn í að not- færa sér þau, en gerði ráð fyrir að velja lygna daga til skíðaiðk- unar á næstunni. „Mér varð ekki meint af þessu og þessi lífsreynsla gerir að verk- um að skíðaferðin var eftirminni- leg,“ sagði Kári sem kom með hópi fólks af höfuðborgarsvæðinu til að renna sér á skíðum norðan heiða um helgina. Nýlega búið að yfirfara öryggisþætti Valgeir Guðmundsson, starfs- maður Vinnueftirlitsins á Norður- landi eystra, skoðaði lyftuna í gærdag, en hann sagði síðdegis að rannsókn væri ekki að fullu lokið. Svo virtist þó sem afar snörp og skyndileg vindhviða úr suðri hefði valið því að vírinn fór út af hjólunum. Þetta gerðist á tveimur stöðum, í öðru tilvikinu virkaði öryggisbúnaður á þann veg að vírinn féll ofan í járnsæti til hliðar við hjólin og kom í veg fyrir að hann fór út af. Af einhverjum ástæðum gerðist þetta ekki í hinu tilvikinu og sagði Valgeir að verið væri að fara yfir ýmsa þætti til að kanna hvað hefði valdið. Hann sagði að um væri að ræða viðurkenndan staðalbúnað og að nýlega væri búið að hálfu Vinnueftirlits að yf- irfara öryggisþætti í stólalyftunni og ekkert athugavert komið í ljós. Stólalyftan er um þrjátíu ára gömul en vírinn í henni er nýr og í góðu lagi að sögn Valgeirs. Lyftan var lokuð í gær vegna rannsóknarinnar, en Valgeir átti von á að hún yrði opnuð að nýju í dag, þriðjudag. Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðastaða, sagði að menn væru að skoða hvað hefði farið úrskeiðis. Hann sagði að ör- yggisbúnaðurinn hefði virkað að öðru leyti og lyftan stöðvaðist. Þá var tekið til við að bjarga fólki sem var í stólunum, en til þess var notaður sérstakur stigi sem festur er við snjótroðara. Alls voru 12 manns í lyftunni þegar atvikið átti sér stað. Ekki er vitað hversu sterk vindhviðan var sem feykti vírnum út af. Hann sagði að í yfir þrjátíu ára saga lyftunnar væri óhappalaus og farið væri yfir öll öryggisatriði einu sinn á ári, nú síðast fyrir um hálfum mánuði. „Ég tel að röð til- viljana hafi ráðið því að svona fór, en stólalyftur eru almennt mjög öruggar og fólk þarf ekkert að óttast,“ sagði Guðmundur Karl. Snörp vindhviða úr suðri feykti vír í stólalyftunni í Hlíðarfjalli út af sporinu Hékk á höndunum á grind- inni með fæturna dinglandi Morgunblaðið/Kristján Valgeir Guðmundsson, starfsmaður Vinnueftirlitsins í Norðurlandsumdæmi eystra, skoðar verksummerki þar sem vírinn í stólalyftunni í Hlíðarfjalli hafði farið út af hjólunum upp við lyftuhúsið. Vírinn féll þó ekki niður þar sem þarna eru sérstök öryggissæti við hjólin en hann féll niður á næsta mastri fyrir neðan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.