Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 26
ÚR VERINU
26 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÆR 20 bátar voru á loðnumiðun-
um fyrir austan land í gær en bræla
gerði mönnum erfitt fyrir. „Hér er
bræla eftir brælu og erfitt að eiga við
loðnuna í nótina,“ segir Eggert Þor-
finnsson, skipstjóri á Oddeyrinni
EA.
Eggert segir að aðfaranótt mánu-
dags, skömmu eftir miðnætti, hafi
veðrið aðeins skánað en engu að síð-
ur hafi erfiðlega gengið að ná
loðnunni. „Tveir bátar fengu þá sín
100 tonnin,“ segir hann og bætir við
að hann hafi aðeins fengið nokkur
tonn. „Þetta mislukkaðist hjá okk-
ur.“
Í gær hafði verið tilkynnt um land-
anir á um 55 þúsund tonnum af loðnu
á vetrarvertíðinni og hefur megnið
farið í bræðslu en frysting á Rúss-
landsmarkað hófst víða fyrir austan í
nýliðinni viku.
Oddeyrin landaði um 750 tonnum í
bræðslu í Grindavík á laugardag en
Eggert segir að þaðan sé um 30 til 35
tíma sigling á loðnumiðin, sem séu út
af Reyðarfirði, um 55 til 60 mílur frá
landi. „Það er erfitt að eiga við hana í
svona haugasjó. Samt virðist vera
dálítið af henni en mér finnst það
ekki vera eins mikið og í fyrra. Hins
vegar gengur betur í trollið á daginn,
því hún er þéttari þarna niðri, en það
verður ekkert fjör í þessu hjá okkur
fyrr en hún kemur upp að landinu í
febrúar.“
Bræla á loðnumiðunum fyrir austan land
Morgunblaðið/Garðar P. Vignisson
Oddeyrin kom með fyrstu loðnuna til Grindavíkur á vertíðinni, landaði þar 750 tonnum í bræðslu á laugardag.
„Ekkert fjör fyrr
en í febrúar“
FISKAFLINN í desembermánuði
síðastliðnum var 52.522 tonn sam-
anborið við 56.748 tonn í desem-
bermánuði árið 1999, og dróst því
saman um rúm 4 þúsund tonn á
milli ára. Botnfiskaflinn dróst sam-
an um rúm 7 þúsund tonn. Þennan
samdrátt má líkt og fyrri mánuði
aðallega rekja til minni þorskafla,
en hann dróst saman um rúm 6.500
tonn á milli ára. Kolmunnaaflinn
jókst aftur á móti um rúm 3 þús-
und tonn og síldveiðin jókst lítil-
lega milli desembermánaða 1999
og 2000, um tæp þúsund tonn.
Skel- og krabbadýraafli dróst sam-
an, fór úr 2.675 tonnum árið 1999 í
1.957 tonn nú.
Heildaraflinn í íslenskri lögsögu
á árinu 2000 var samkv. bráða-
birgðaniðurstöðum 1.680.440 tonn
sem er mun meira en árið 1999
(1.461.355). Þessi aukning er að-
allega tilkomin vegna aukinnar
veiði á loðnu og kolmunna, en báð-
ar þessar tegundir hafa veiðst
töluvert betur í ár en í fyrra. Botn-
fiskaflinn dróst hins vegar saman
um tæp rúm 27 þúsund tonn og er
meginuppistaðan í þeim samdrætti
minnkandi þorskafli, en hann
dróst saman um tæp 27 þúsund
tonn á árinu 2000. Þá dróst skel-
og krabbadýraaflinn einnig saman,
um rúm 9 þúsund tonn á milli ára.
Meiri afli
innan
lögsögu
F já rmá la fö l l i n
Sumi f
Count i f
Subto ta l
Sumproduct
Lookup
P ivo t tab les
o . f l .
Kennari er Baldur Sveinsson sem meðal
annars hefur gefið út veglega bók um
Excel, sem fylgir með í námskeiðinu.
Baldur Sveinsson
Bíldshöfði 18, sími 567 1466
EXCEL
Framhaldsnámskeið
Hnitmiðað námskeið fyrir fjármálastjóra og þá sem auka
vilja við þekkingu sína í Excel. Farið er í gerð fjárhags- og
rekstraráætlana og kynnt hin ýmsu reikniföll sem nota
má til hagræðingar við útreikninga.
www.mbl.is