Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 54
UMRÆÐAN
54 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR hugað er að ritun sögu
Háskóla Íslands kemur fljótt í ljós
að þrátt fyrir miklar heimildir í
Skjalasafni Háskólans um stjórn-
sýslu skólans skortir á vitneskju
um hluta háskólasamfélagsins.
Litlar sem engar heimildir eru til
sem vitna um líf stúdenta. Því hef-
ur verið ákveðið að ráðast í það
verkefni að fá stúdenta til að halda
dagbók einn dag og skila inn til
varðveislu á handritadeild Lands-
bókasafns Íslands – Háskólabóka-
safns. Miðvikudagurinn 24. janúar
varð fyrir valinu. Ef vel tekst til er
markmiðið að gefa út úrval dag-
bókanna í tilefni af 90 ára afmæli
Háskóla Íslands.
Dagbækur eru skemmtilegar og
oft líflegar heimildir og eru þær
mikilvægar við söguritun. Dag-
bækur sem þessar kunna því að
hafa mikið heimildargildi. Þær
gætu dregið upp raunsanna mynd
af daglegu lífi hins dæmigerða há-
skólanema. Styðjast mætti við
dagbækurnar við ritun sögu Há-
skóla Íslands. Einnig kynnu þær
að nýtast við sjálfstæðar rann-
sóknir um líf og störf háskólastúd-
enta. Síðast en ekki síst yrðu bæk-
urnar háskólanemum
jafnt nú sem síðar
skemmtileg lesning.
Dagbókarformið
hefur ýmsa mögu-
leika að bjóða. Dag-
bækur geta verið allt
frá einföldum upp-
talningum á viðburð-
um dagsins til hug-
leiðinga um daginn
og veginn. Óskandi er
að fjölbreytnin verði
sem mest.
Nemendur skulu
senda dagbækur sín-
ar í tölvupósti og er
netfangið dagbok@-
hi.is. Einnig verður að
finna sérstaka kassa á háskóla-
svæðinu fyrir þá sem ekki hafa tök
á að nýta sér tölvutæknina. Þeir
sem kjósa að skrifa undir nafn-
leynd eru beðnir um að greina frá
kyni og aldri. Heimasíða verkefn-
isins hefur verið sett upp á slóð-
inni www.dagbok.hi.is og er þar að
finna nánari upplýsingar. Tíu dag-
bókarritarar verða dregnir út og
hljóta bókaverðlaun frá Háskóla-
útgáfunni að launum fyrir þátttök-
una.
Mikilvægt er að sem flestir
nemendur Háskóla Íslands taki
þátt í verkefninu svo tilætlaður ár-
angur náist og dagbækurnar verði
hægt að nýta sem skyldi. Ef vel
tekst til mætti í kjölfarið gera dag-
bókardaginn að reglulegum við-
burði við Háskólann. Það er hagur
allra stúdenta að verkefnið gangi
vel. Því hvetjum við nemendur til
að sjá af stundarkorni í amstri
dagsins og hripa niður örfá orð.
Hver veit nema slík tilraun leiði til
frekari áhuga nemenda á dagbók-
arskrifum.
Sif
Sigmarsdóttir
Sif er nemandi í sagnfræði og ís-
lensku við HÍ. Kolbrún er nemandi í
lögfræði við HÍ.
Skjalasöfnun
Mikilvægt er, segja Sif
Sigmarsdóttir og Kol-
brún Benediktsdóttir,
að nemendur HÍ taki
þátt í verkefninu svo til-
ætlaður árangur náist.
Kolbrún
Benediktsdóttir
Heimildir skapaðar
um líf háskólanemans
G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14
Ávaxtapressa
kr. 4.600
SLIM-LINE
dömubuxur frá
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680