Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 14
LANDIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hellu - Nú um miðjan janúar var
tekið í notkun bráðabirgðahúsnæði
sem hýsir mötuneyti og heim-
ilisfræðikennslu grunnskólans og
leikskólans í Þykkvabæ, en sam-
komuhús Þykkvabæjar, þar sem
eldhúsið var áður, skemmdist mjög
mikið í jarðskjálftunum í sumar.
Við upphaf nýs skólaárs sl. haust
var órói í foreldrum, kennurum,
skólastjóra og ekki síst nemendum
að þurfa að notast við gamla húsið
og varð að ráði að fella niður heim-
ilisfræðikennslu af þessum sökum,
en ekki var í önnur hús að venda
með hádegisverðarhlé nemenda og
kennara. Það var því létt brúnin á
mörgum þeirra þegar bráða-
birgðahúsið var formlega tekið í
notkun og ekki ósennilegt að það
geti átt þátt í að skapa meira ör-
yggi meðal notenda þess gagnvart
hugsanlegum jarðskjálftum.
Bráðabirgðahúsið er samsett úr
þremur gámaeiningum sem settar
voru niður á lóð skólans, en að
sögn oddvita Djúpárhrepps, Heim-
is Hafsteinssonar, er auðvelt að
hífa húsið og flytja á brott þegar
hlutverki þess er lokið. Um þessar
mundir er unnið að byggingu nýs
fjölnotaíþróttahúss í Þykkvabæ,
þar sem gert er ráð fyrir framtíð-
araðstöðu fyrir mötuneytið.
Una Sölvadóttir er skólastjóri
Grunnskólans í Þykkvabæ, en nem-
endur hans eru 37. Kennt er í fjór-
um bekkjardeildum, 1. og 2. bekk
saman, 3. og 4. bekk saman og 5.,
6. og 7. bekk saman. Eldri börn-
unum er ekið í Grunnskólann á
Hellu.
Samkomuhús Þykkvabæjar skemmdist mjög mikið í jarðskjálftunum
Það var slegið upp pitsuveislu þegar nýja bráðabirgðamötuneytið í
Þykkvabænum var tekið í notkun þar sem nemendur 3. og 4. bekkjar
sáu m.a. um eldamennskuna, en heimilisfræði var einmitt á stunda-
skránni þeirra þennan dag.
Hús undir
mötuneytið
Kennarar og starfsfólk í nýja mötuneytinu, t.v., Guðfinna Sigvaldadótt-
ir kennari, Særún Sæmundsdóttir kennari, Maríanna Másdóttir tónlist-
arkennari, Ragnheiður Pálsdóttir matráðskona og Kristrún Þorsteins-
dóttir skólaliði. T.h. Berglind Pedersen kennari, Una Sölvadóttir
skólastjóri og Anna Magnúsdóttir tónlistarkennari.
Í Grunnskólanum í Þykkvabæ er einnig starfræktur leikskóli og kunnu
yngstu börnin vel að meta veitingarnar. Með þeim er leikskólastjórinn,
Anna Lilja Torfadóttir.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Selfossi - Árvirkinn hf. á Sel-
fossi er eitt þeirra fyrirtækja
sem undirbúa byggingu nýs
atvinnuhúsnæðis í Fossbyggð-
inni við Eyraveg á Selfossi.
Húsið sem er að hluta til á
tveimur hæðum er 970 fer-
metrar að grunnfleti og sam-
tals ríflega 1400 fermetrar.
Árvirkinn mun flytja raf-
magns- og rafeindaverkstæði
sitt og verslun í hið nýja hús-
næði sem verður gegnt núver-
andi starfsstöð fyrirtækisins
við Eyraveginn. Auk þeirra
verða í húsinu tvö önnur fyr-
irtæki, Kælivélaþjónustan og
Rafvélaverkstæði Hjalta Sig-
urðssonar. Hönnuður hússins
er Helgi Bergmann Sigurðs-
son.
Aðalstarfssviðið
nýlagnir
Aðalstarfssvið Árvirkjans
eru nýlagnir en auk þess
starfrækir fyrirtækið raf-
magnsverkstæði, rafeinda-
verkstæði og verslun með raf-
magns- og rafeindatæki ásamt
fleiri vörum. Loftnetsþjónusta
er hluti af starfsemi fyrirtæk-
isins og ísetning á bíltækjum.
Verkefni eru mest á Suður-
landi og hluti af þeim eru
viðamikil viðhaldsverkefni
fyrir Landsvirkjun í Búrfelli,
Sigöldu og Hrauneyjum.
Fastir starfsmenn eru 35 um
þessar mundir. „Það er búið
að vera nóg að gera og það er
ekkert lát á verkefnum fram-
undan. Það eru að vísu ekki
nein stórverkefni en það er
næg vinna fyrirsjáanleg,“
sagði Jón Finnur Ólafsson
framkvæmdastjóri Árvirkj-
ans.
Árvirkinn
byggir
nýtt hús
á Selfossi
Stykkishólmi - Það telst til tíðinda
að tvö íbúðarhús séu reist á sama
tíma í Stykkishólmi. Á síðasta ára-
tug hafa íbúðarbyggingar dregist
mjög saman hér eins og svo víðar á
landsbyggðinni. Í Stykkishólmi er
íbúðaskortur og því er ánægjulegt
þegar slíkir atburðir gerast.
Í vetur var skipulagt nýtt bygg-
ingahverfi í Stykkishólmi sem nefn-
ist Hjallatangi. Hafin var þá bygg-
ing tveggja einbýlishúsa og var því
fagnað á föstudag að búið var að
reisa húsin. Hvort húsanna er um
190 fm að stærð með bílskúr. Það er
Skipavík í Stykkishólmi sem tók að
sér að reisa húsin og mun skila
þeim fokheldum um miðjan næsta
mánuð.
Góð tíð hefur létt smiðunum
vinnuna og hefur verkið gengið
samkvæmt áætlun.
Skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Trésmiðir hjá Skipavík fagna því að hafa lokið við að reisa tvö ný íbúð-
arhús í Stykkishólmi, enda tilefni til því íbúðarbyggingar hafa dregist
mjög saman á síðasta áratug.
Tvö íbúðarhús reist
í Stykkishólmi
Selfossi - Tvö íbúðahverfi eru nú í
hraðri uppbyggingu á Selfossi. Ann-
ars vegar er það íbúðahverfi og fyr-
irtækjalóðir í Fosslandi með Eyra-
vegi sem einkaaðilar, Fossmenn ehf,
standa að og hins vegar hverfi, Suð-
urbyggð sunnan Tryggvagötu á veg-
um sveitarfélagsins Árborgar. Mikil
spurn hefur verið eftir lóðum í báðum
þessum hverfum og samtals verða
framkvæmdir í hverfunum á þessu
ári fyrir um 180 milljónir. Sérstaka
athygli hefur vakið hversu spurn er
mikil eftir fyrirtækjalóðum við Eyra-
veginn og greinilegt að forsvarsmenn
fyrirtækja telja vöxt byggðarinnar á
Selfossi og nágrenni trúverðugan.
28 milljónir í Suðurbyggð
Á þessu ári gerir sveitarfélagið Ár-
borg ráð fyrir að verja 28 milljónum
til að ljúka við gatnagerð og lagnir
fyrir nýjar byggingalóðir í Suður-
byggð. Á þessu svæði eru nú tilbúnar
84 lóðir og er búið að úthluta þeim
flestum. Eftir eru 10 einbýlishúsalóð-
ir og ein lóð með fjögurra íbúða húsi.
Þá er í fjárhagsáætlun fyrir 2001 gert
ráð fyrir að hefja framkvæmdir við 2.
áfanga Suðurbyggðar og taka fyrir
eina íbúðagötu með 22 íbúðum, 16
einbýlishúsum og 3 parhúsum. Að
sögn Jóns Guðbjörnssonar, forstöðu-
manns tæknisviðs Árborgar, er þetta
gert til að koma til móts við fjölgun á
svæðinu og vaxandi eftirspurn eftir
lóðum.
Á Eyrarbakka eru á vegum sveit-
arfélagsins tilbúnar til úthlutunar níu
einbýlishúsalóðir og þrjár á Stokks-
eyri. Verði eftirspurn meiri á þessum
stöðum verður henni, að sögn Jóns
Guðbjörnssonar, mætt með því að
gera fleiri lóðir byggingarhæfar.
150 milljóna
framkvæmdir í Fosslandi
„Við erum að ljúka við úthlutun
lóða í fyrsta og öðrum áfanga Foss-
lands, 150 íbúðum ásamt atvinnu- og
verslunarhúsnæði við Eyraveg. Frá-
gangi svæðisins með malbikun gatna,
gangstéttum og opnum svæðum
verður lokið á þessu ári og er kostn-
aður við það áætlaður 36 milljónir
króna,“ sagði Guðmundur Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Fossmanna.
Hann sagði og að framkvæmdir við
þriðja áfanga í Fosslandi væru hafnar
en þar verða 120 íbúðir í einbýlishús-
um og par- og raðhúsum. Áætlaður
kostnaður við gatnagerð þess áfanga
er um 120 milljónir króna en allar lóð-
irnar í þeim áfanga verða gerðar
byggingarhæfar á þessu ári en mal-
bikun og lokafrágangur á næsta ári.
„Sala á lóðum í 3. áfanga er að hefj-
ast. Það hefur komið fram verulegur
áhugi á þessu byggingasvæði en eftir
er að sjá hvort hann skilar sér alla
leið,“ sagði Guðmundur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Fossmanna ehf. á
Selfossi.
Tvö íbúðahverfi í hraðri
uppbyggingu á Selfossi
Morgunblaðið/Sig. Jónss.
Þessa dagana er grafið fyrir hverju húsinu á fætur öðru á Selfossi.
Myndin sýnir framkvæmdir í Fosslandi þar sem byggðin rís hratt.