Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 24
NEYTENDUR 24 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SUM tölvufyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu bjóða upp á svokallaða flýti- eða hraðþjónustu á viðgerðarverk- stæðum sínum. Fyrir þjónustu þessa verða viðskiptavinir að greiða sér- stakt gjald sem nemur frá 2.000 og upp í 7.000 krónur, líka ef tölvur þeirra eru í ábyrgð. Talsmenn nokkurra tölvufyrir- tækja, sem haft var samband við, sögðu ástæðu þessarar gjaldtöku vera að hér væri verið að auka þjón- ustu við viðskiptavini. Neytendasamtökin telja á hinn bóginn ekki eðlilegt að neytendur greiði fyrir flýtiþjónustu ef um ábyrgðarviðgerðir er að ræða en fjöldi kvartana hefur borist samtök- unum vegna þessa. Nýherji er með viðgerðarþjónustu fyrir viðskiptavini sína og býður síð- an upp á nokkrar gerðir hraðþjón- ustu sem kosta frá 2.000 til 4.560 króna án vsk., allt eftir eðli og um- fangi vinnunnar. Aukin þjónusta fyrir viðskiptavini „Hér er átt við að ýmist sé hægt að fá þjónustu sem hefst innan tveggja tíma eða innan sólarhrings og hvort um skrifstofubúnað er að ræða eða tölvubúnað. En fyrst og fremst leggj- um við faglegan metnað í að verkinu ljúki sem fyrst en það veltur að sjálf- sögðu á umfangi viðgerðar,“ segir Magnea Steinunn Ingimundardóttir, liðstjóri þjónustuvers Nýherja. „Eðlilegt er að fólk borgi sérstaklega fyrir hraðþjónustuna enda er hér um aukna þjónustu að ræða til viðskipta- vina. Auk þess bjóðum við upp á þjónustusamninga fyrir fyrirtæki þar sem þau tryggja sér forgang á þjónustu og aðgengi að tæknimönn- um og greiða þarf einnig fyrir slíka þjónustu.“ Almenn viðgerðarþjón- usta sem ábyrgð nær yfir er við- skiptavinum að kostnaðarlausu að sögn hennar. Viðgerðarþjónusta tek- ur mislangan tíma og er málum hátt- að þannig að viðskiptavinir fá ekki uppgefið nákvæma dagsetningu um hvenær þeir geti sótt vöruna heldur eru allar vörur sem koma inn skráðar og fara í verkefnabiðröð nema við- skiptavinurinn óski hraðþjónustu. Viðskiptavinurinn fær í hendur beiðnanúmer og er hringt í hann þeg- ar verki er lokið. Tími almennrar viðgerðarþjón- ustu er að sögn Magneu mjög breyti- legur og fer eftir eðli viðfangsefnis- ins og þeim fjölda verkefna sem fyrir liggja. „Markmið þjónustuvers Ný- herja er að tryggja viðskiptavinum örugga og áreiðanlega þjónustu sem uppfylli þarfir viðskiptavinarins til hlítar í hvert og eitt skipti.“ Ávallt þarf að greiða fyrir hraðþjónustu Verslanir BT bjóða einnig upp á hraðþjónustu fyrir viðskiptavini sína og kostar slík þjónusta 6.200 krónur. „Ef hlutir eru í ábyrgð þarf ekki að greiða fyrir venjulega viðgerðar- þjónustu en það þarf ávallt að greiða fyrir hraðþjónustu,“ segir Guðmund- ur Magnason, markaðsstjóri BT- verslananna. „Hraðþjónusta felur í sér að viðkomandi tæki er sett fremst í biðröðina, það er að segja um leið og tæknimaður losnar fer hann að vinna að tæki sem er í hrað- þjónustu.“ Að sögn Guðmundar er ávallt byrjað á vörum í hraðþjónustu innan sólarhrings og viðskiptavinurinn fær síðan vöruna annaðhvort samdægurs eða daginn eftir. Venjuleg viðgerð- arþjónusta er síðan 4 til 5 virkir dag- ar. Viðskiptavinurinn er látinn vita hvaða tími er áætlaður í verkið. Ef skjótari viðbragða er óskað stendur hraðþjónustan alltaf til boða. „BT er eini tölvusalinn mér vitandi sem gefur viðskiptavinum sínum Gullkort Tölvusímans. Tölvusíminn Neytendasamtökin gagnrýna flýtiþjónustu tölvufyrirtækja Telja ekki eðlilegt að borga þurfi gjald ef tölvan er í ábyrgð Morgunblaðið/Þorkell Talsmenn tölvufyrirtækja, sem rætt var við, segja flýti- og hraðþjónustu vera aukna þjónustu við viðskiptavini sína. Verslunin Svalbarði Framnesvegi 44 Sérverslun með íslenskt góðmeti Mikið úrval af harðfiski og hákarli. Saltfiskur, flattur og flök, sólþurrkaður, útvatnaður, mareneraður. Saltfiskrúllur og saltfiskbollur. Plokkfiskur. Orðsending til þorrablótsnefnda: Eigum harðfisk og hákarl í þorratrogin og útbúum einnig þorrabakka. Sendum um land allt. Pantanasími: 562 2738, fax 562 2718
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.