Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 55
Á SÍÐUSTU árum
hefur TR reynt að
lækka útgjöld sín
vegna heilbrigðisþjón-
ustu. Útgjöldin hafa
vaxið nokkuð, mest
vegna hækkandi ald-
urs þjóðarinnar og
kröfu þegnanna um
þjónustu sem sífellt
verður betri og skilar
meiri árangri. Áður
lögðust einstaklingar í
kör þegar sjúkdómar
bönkuðu á dyrnar en í
dag eru mörg úrræði
til að bæta þar úr. Að
sjálfsögðu kostar það
að meðalaldur þjóðar-
innar er með því hæsta sem þekk-
ist.
Á undanförnum árum hefur TR
haft tilburði til að halda niðri
kostnaði þar sem síst skyldi, það
er í þáttum sem sannarlega draga
úr kostnaði annars staðar í kerf-
inu. Með virkri endurhæfingu og
sjúkraþjálfun er hægt að koma í
veg fyrir langvarandi fötlun, koma
í veg fyrir aðgerðir, unnt að seinka
innlögn á dýr hjúkrunarheimili og
minnka lyfjakostnað. Þess í stað
hefur TR ítrekað reynt að hindra
aðgengi sjúklinga að sjúkraþjálfun
til að spara oft eyrinn í stað krón-
unnar.
Um síðustu áramót tók TR upp
nýjar reglur í sambandi við end-
urhæfingu sjúklinga. Eru þær
þess eðlis að þær koma til með að
skerða aðgengi sjúklinga að
sjúkraþjálfun, þeirra er síst skyldi,
í það minnsta gera þeim erfiðara
fyrir.
Reglurnar sem nú verða teknar
í gildi eru þær að sjúkraþjálfun
takmarkast við 20 skipti á hverju
ári. Hægt er að fá framhaldsmeð-
ferð með nýju vottorði frá tilvís-
andi lækni. Ef við gefum okkur að
þeir sem fá sjúkdóm eða lenda í
slysi fari í endurhæfingu 3 sinnum
í viku þarf viðkomandi að fara til
læknis eða sérfræðings á rúmlega
6 vikna fresti til þess að fá nýtt
læknisvottorð um
áframhaldandi sjúkra-
þjálfun. Það lætur
nærri að 4.000 manns
séu á ferðinni á milli
lækna og sjúkraþjálf-
ara á 6 vikna fresti til
að meta þörfina á
sjúkraþjálfun.
Hver er
kostnaðurinn?
Kostnaður vegna
sjúkraþjálfunar land-
ans var á árinu 1999
um 608 milljónir eða
sem svarar aflaverð-
mæti eins togara,
söluverði Eiðs Smára
Guðjohnsen knattspyrnumanns
eða helmingi hagnaðar eins rík-
isbankanna á því ári. Um er að
ræða sjúkraþjálfun 24.000 einstak-
linga sem hafa orðið fyrir sjúk-
dómum eða slysum af misalvar-
legum toga.
Heildarkostnaður vegna sjúkra-
þjálfunar á árinu 1999 var 60% af
aðeins hækkun lyfjakostnaðar á
árunum 1997–1999.
Kostnaður eða sparnaður?
Þegar læknir ákveður að senda
sjúkling í sjúkraþjálfun og end-
urhæfingu hefur hann val um að
vísa á lyfjameðferð, taka viðkom-
andi einstakling úr vinnu, leggja
til aðgerð, eða að sannfæra ein-
staklinginn um að hann verði að
lifa með verki og minnkaða færni
það sem eftir er ólifað. Hvaða
kostur er bestur er mat læknisins
en læknar í dag eru sannfærðir um
það að gildi sjúkraþjálfunar sé
ótvírætt betri valkostur en flestir
hinna.
Það að þurfa á langtíma end-
urhæfingu að halda er bæði tíma-
frekt og erfitt. Það gerir fólk ekki
til að eyða skattfé almennings.
Þeir sem eru lasburða, fötluð börn,
ellilífeyrisþegar, öryrkjar og þeir
sem hafa orðið fyrir sjúkdómum
og slysum þurfa oftar en ekki að
þjálfa sig og viðhalda starfsorku
með reglulegri sjúkraþjálfun. Það
að þurfa að fara bónarveg til
lækna og sérfræðinga til að þókn-
ast TR er ekki það sem fólk sækist
eftir.
Samkvæmt gögnum frá TR er
meðalfjöldi meðferða í sjúkraþjálf-
un 16,8 á ári á hvern einstakling.
Eins og sést á myndinni til hlið-
ar þar sem borin eru saman með-
altöl fyrstu 5 mánaða síðasta árs
sést að endurhæfing öryrkja er
tímafrekust, síðan þjálfun barna
og síðan koma ellilífeyrisþegar.
Það segir sig sjálft að tíma ör-
yrkja, foreldra langveikra barna
og ellilífeyrisþega er örugglega
betur varið í einhverju öðru en að
sækja um framhaldsvottorð í
sjúkraþjálfun.
Til að reyna að hindra aðgengi
fólks að sjúkraþjálfun hefur TR
ráðið skrifstofulækna í störf til að
vega og meta þörf einstaklinga á
því hvort þeir þurfi mikla þjálfun
eða ekki. Næsta skref verður lík-
lega það að skrifstofulæknar verða
ráðnir hjá TR til að fara yfir alla
lyfseðla til að meta hvort fólk þurfi
asmalyf, blóðþrýstingslyf og park-
insonslyf. Eða hvort konur geti
ekki bara notað getnaðarvarnar-
pillur í 6 vikur á ári.
Að spara eyrinn
Stefna TR að spara eyrinn og
henda krónunni er alveg öfugt við
það sem aðrar þjóðir eru að gera.
Þar er reynt að aðstoða eldra fólk
við það að vera eins lengi heima og
hægt er. Þannig sparast miklir
fjármunir. Á Íslandi er vinnuálag
meira en víðast hvar annars stað-
ar. Vegna þessa verða einstakling-
ar fyrir meiri álagseinkennum en
sambærilegar stéttir erlendis.
Þessi álagseinkenni þarf að með-
höndla til að einstaklingurinn geti
haldið vinnufærni og þannig greitt
sína skatta. Í Skandinavíu er
kostnaður vegna fjarveru frá
vinnu mun meiri en hér á landi. Á
Íslandi heldur fólk frekar áfram að
vinna í stað þess að vera heima.
Það er kannski stefna TR að auka
dagpeningagreiðslur sínar í stað
þess að greiða sjúkraþjálfun fyrir
vinnusama Íslendinga.
Hvað ætlar Trygginga-
stofnun ríkisins að spara?
Gauti
Grétarsson
Sjúkraþjálfun
Stefna TR að spara
eyrinn og henda krón-
unni, segir Gauti
Grétarsson, er alveg
öfugt við það sem aðrar
þjóðir eru að gera.
Höfundur er sjúkraþjálfari.
Funahöfða 1
www.notadirbilar.is
Grand Cherokee Laredo árg´99 4.0l ek. 15 þ.km,
svartur, leður, sóllúga, cd, ssk. Áhv. 2.500.000.
V. 3.990.000, gullmoli.
Toyota Landcruser VX bensin 3,4l 14.04´98
kóngablár, ek. 31 þ. km, 33" breyttur, leður, rafmagn í
sætum, ssk,, glæsilegt eintak og fullt af aukahl. Áhv.
2.100.000. V. 3.590.000.
Nissan Patrol´árg ´94 2,8 diesel turbo grár,
33" breyttur, ek. 165 þ. km, þjónustubók frá upphafi,
einn eig. Verð. 1.690.000
VW Golf 27.04´99, svartur, 4 dyra, ssk., ek. 20 þ. km,
16" álf, s+v dekk. Verð 1.540.000.
Mercedes Benz 4-Matic ´94, fjólubl-metal, ek. 181
þ. km, sóllúga, abs, álfelgur. V. 1.950.000, gullmoli.
Landrover Defender 90 Diesel árg´99, 5 gíra, 32"
dekk , 3 dyra. Áhv. 1.800.000. Verð 2.300.000.
Mercedes Benz E220 ´94, ek. 189 þ. km, kóngablár,
ssk., sóllúga, s+v dekk, álfelgur. Verð. 1.790.000, tilb
1.390.000. Áhv. 800.000.
Mercedes Benz E240 Eleganse 10.10´99, ek. 29 þ.
km, blár, sóll, ssk, abs, cruise contr. o.fl. V. 3.490.000.
Plymouth Breeze ´99, grár, ek. 48 þ. km, ssk, hrað-
astillir, loftkæling, fjarræsibúnaður, ofl. V. 1.850.000.
BMW 323 IS ´95, svartur, ek. 106 þ. km, ný s+v dekk,
16" álfelgur, ssk. Verð. 1.890.000, tilboð 1.490.000.
Vantar bíla á skrá
ný og betri verð
Hallveigarstíg 1 101 Reykjavík Sími 511 5555 Fax 511 5566 www.si.is
Fundarstjóri
Sveinn Hannesson
framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins
Staður:
Hótel Loftleiðir
Þingsalur-1
Stund:
Föstudagur
26. janúar
Tími:
Frá 13 til 16
Kaffi og léttar
veitingar fyrir
fundargesti.
RÆÐUMENN:
Reykjavíkurborg
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
borgarstjóri
Framkvæmdasýsla
ríkisins
Jóhanna Hansen
staðg. forstjóra
Siglingastofnun
Gísli Viggóson
forstöðumaður
hafnarsviðs
Landsvirkjun
Agnar Olsen
fr.kv.stj. verkfræði-
og framkv.sviðs
Vegagerð ríkisins
Rögnvaldur
Gunnarsson
forst.m. framkv.d.
Háfell ehf.
Eyjólfur Bjarnason
aðst.framkv.stj.
ÚTBOÐSÞING 2001
H Ó T E L L O F T L E I Ð U M - Þ I N G S A L 1
FÉLAG VINNU-
VÉLAEIGENDA
Samtök iðnaðarins hvetja félagsmenn til að koma og taka
þátt í umræðum um framkvæmdir ríkis og sveitarfélaga
á næstu misserum. Þingið er öllum opið.
Samtök iðnaðarins og Félag vinnuvélaeigenda boða til
í Reykjavík þar sem kynntar verða verklegar framkvæmdir á árinu.
Í fundarlok verður fjallað um breytt samskipti við verkkaupa
- árangur af gæðastarfi.
ÚTBOÐSÞINGS föstudaginn 26. janúar á Hótel Loftleiðum
Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni
Álftamýri 5, 108 Reykjavík
Tímapantanir frá mánudegi til föstudags
milli kl. 10.00—12.00 og 13.00—16.00
í síma 520 0100, faxnúmer 520 0109.
Sveinbjörn Brandsson,
bæklunarskurðlæknir dr.med.