Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 63
CANON B-155
– h á m a r k s g æ ð i á v e r ð i
s e m k e m u r á ó v a r t !
Rýmum fyrir nýjum vörum
– allt á að seljast.
Nýherji býður nú sérstakt tilboðsverð á Canon
prentara- faxtækjum í viku, meðan birgðir endast.
• Prentari og faxtæki
Prenthraði 2 bls. á mínútu.
100 bls. innbakki.
Frumritamatari 20 bls.
Prentupplausn 360 x 360 dpi.
Vinnsluminni 21 bls.
Verð aðeins
23.900.-
Söluaðilar um land allt.
B O R G A R T Ú N I 3 7 – S Í M I 5 6 9 7 7 0 0 - F A X 5 6 9 7 7 9 9
W W W . N Y H E R J I . I S
CANON B-210• Litaprentari og faxtæki
Prentar og sendir í lit.
Prenthraði í lit, 2 bls.á mín.
Prenthraði í einum lit, 5 bls. á mín.
Vinnsluminni 42 bls.
Prentupplausn 720 x 360 dpi.
Ljósritun upplausn 360 x 360 dpi.
Verð 28.500.-
CANON L250
CANON L60
• Laser prentari og faxtæki
Prenthraði 6 bls. á mín.
600 x 600 dpi.
Vinnsluminni 90 bls.
Hraðval 117 númer.
Hópsendingar.
Frumritamatari 20 bls.
Sendihraði 6 sek A4.
Verð 43.500.-
• Laserprentari / Faxtæki / Skanner
Prenthraði 6 bls. á mín.
600 x 600 dpi.
Vinnsluminni 90 bls.
Hraðval 117 númer.
Hópsendingar.
Sendihraði 6 sek. A4.
Verð 49.900.-
CANON C-70
CANON L350 • Laser prentari og faxtæki
Innbakki 250 bls.
Modem 33.6 Kbps G3 Super.
Sendihraði 3 sek A4.
600 x 600 dpi.
Prenthraði 6 bls. á mín.
Vinnsluminni 160 bls.
Verð 59.900.-
• Litaprentari / Fax / Skanner
Prenthraði 2 bls. á mín í lit.
Prenthraði 5 bls. á mín. svart.
Vinnsluminni 42.bls.
Prentupplausn 720 x 360.
Ljósritun upplausn 360 x 360.
Skannerupplausn 600 dpi.
Verð 32.900.-
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 63
Augun eru spegill sálarinnar
Því ber að vanda valið á snyrtivörum sem þeim tengjast.
Njóttu faglegra ráðlegginga sérfræðinga LANCÔME sem verða í
verslununum í dag og á morgun.
Glæsilegir kaupaukar
Opnaðu augun fyrir litum
COLOR FOCUS
ÖRUGGLEGA FLOTTUSTU AUGNSKUGGARNIR
TRÚÐU Á FEGURÐ www.lancome.com
Melhaga, sími 552 2190 Mjódd, sími 557 3390
sinnum hefur þótt það kyndugt að
þeir sem hafa staðið að þessum
breytingum séu jafnvel svarnir and-
stæðingar þess að sameina keppn-
isformin tvö. Þeir telja að sameining
sé meginforsenda þess að hægt sé
að gera þann uppskurð á kerfinu
sem þarf til að koma því í það horf að
til framfara verði. En þar er mjög á
brattann að sækja því andstaðan er
allnokkur og hefur einn sameining-
arsinni líkt þessu við þegar samein-
ing LH og Hestaíþróttasambands
Íslands stóð yfir, þar sem heitar til-
finningar töfðu málið í mörg ár. Eini
munurinn nú sé sá að tilfinningar
andstæðinga sameiningar risti mun
dýpra nú en þá og því megi með
réttu segja að hestamennskan sé á
valdi tilfinninganna. Ekki hefur
skorist alvarlega í odda vegna þessa
en kunnugir telja að mjög miklar
líkur séu á að það gerist með auknu
fylgi við sameiningu. Hestamenn
hafa oft deilt hart en alltaf náð landi
í góðri sátt.
Lífróður kappreiðanna
Hornreka keppnismennskunnar,
kappreiðarnar, hangir nú í lausu
lofti. Hestamannfélagið Fákur hefur
í þrjú ár gert góðar tilraunir til að
auka veg kappreiðanna verulega en
ekki er ljóst hvert framhald verður
þar á. Fáksmenn eru að skoða málið.
Þróun kappreiða frá 1980 hefur í
raun verið sorgarsaga og óhætt að
taka undir þær fullyrðingar að
hestamenn hafi með afdalamennsku
klúðrað einu af sínum betri tækifær-
um til framdráttar hestamennsk-
unni. Hestamennskan hefur átt
mjög erfitt uppdráttar í ljósvaka-
miðlum og má segja að þar hafi verið
um hálfgerða eyðimerkurgöngu að
ræða á nýliðnu ári. Ýmsir telja að
kappreiðarnar hefðu getað laðað
fjölda manna að hestamennskunni,
fleiri en nokkur annar þáttur henn-
ar. Á fyrri hluta níunda áratugarins,
á sama tíma og kappreiðarnar voru
kæfðar niður, var lottóið að hefja
innreið sína og sáu ýmsir framsýnir
menn þar góða möguleika á að koma
af stað öflugum veðreiðum. Þess í
stað var kappreiðum lokað fyrir ut-
anfélagsmönnum víða um land og
peningaverðlaun afnumin. Þar með
var kippt í burt grundvelli fyrir
gróskumiklum kappreiðum. Verður
fróðlegt að fylgjast með framvindu
mála á árinu því þrátt fyrir allt er
talsverður hugur í hópi manna fyrir
kappreiðum og ekki þarf að efa að
Fáksmenn munu leggja mikið í söl-
urnar til að halda áfram því starfi
sem þegar hefur verið unnið.
En hvað sem ýmsum vandamálum
líður má ætla að nú eins og áður
verði boðið upp á mörg skemmtileg
mót á árinu. Talsverð ró virðist yfir
hestamennskunni og er því líkast að
menn séu að jafna sig eftir anna-
samt landsmótsár en þó má greina
öfluga undiröldu því heimsmeistara-
mót verður haldið í ágúst og má ætla
að margir hinna snjöllu knapa lands-
ins hugsi gott til glóðarinnar.
Það færist í aukana að sömu hestar eigi velgengni að fagna í bæði gæð-
inga- og íþróttakeppni. Gott dæmi þar um eru Ormur frá Dallandi sem
hefur staðið fremstur í A-flokki gæðinga og fimmgangi sem Atli Guð-
mundsson tekur hér til kostanna. Einnig mætti í þessu sambandi nefna
gæðinginn Klakk frá Búlandi.
Úrslit í B-flokki gæðinga svipar mjög til úrslita í fjórgangi en feti og
stökki er að vísu sleppt í gæðingakeppninni. Hér fara þær María Þór-
arinsdóttir og Hnota frá Fellskoti mikinn í gæðingakeppni í Tungunum.
EINKAVÆÐINGIN lætur ekki á
sér standa í hestamennskunni frek-
ar en víða annarsstaðar. Einkaað-
ilar byggja upp velli víða um land
og svo virðist sem mótahald sé í
auknum mæli að færast yfir á
einkaaðila.
Á bænum Björgum í Hörgárdal
þar sem ráða ríkjum þeir bræður
Sigmar og Viðar Bragasynir hefur
verið byggður 250 metra hring-
völlur og skeiðbraut. Hafa þeir
ásamt fleirum stofnað félagsskap
um mótahald á Björgum.
Fyrsta fyrirhugaða mótið verður
haldið 17. febrúar nk. og verður
keppt í einum flokki gæðinga og
vekur athygli að þar verður att
saman alhliða gæðingum og klár-
hestum. Í stað einkunnar fyrir
skeið fá klárhestarnir einkunn fyrir
yfirferðartölt. Keppendur þurfa
ekki að sýna fet eða stökk. Einnig
verður keppt í 100 metra fljúgandi
skeiði en frekari upplýsingar um
mótið sem er opið öllum er að finna
í Hestabúðinni á Akureyri. Þá er á
döfinni að endurtaka leikinn í
skautahöllinni á Akureyri síðar í
vetur en þar héldu hestamenn vel-
heppnaða samkomu á síðasta vetri.
Þá gæti svo farið að Íslandsmót í
hestaíþróttum verði nú í fyrsta sinn
haldið í nafni og á ábyrgð einka-
aðila en Íslenski reiðskólinn á Ing-
ólfshvoli hefur sótt um að fá að
halda mótið þar á bæ og einnig á
Kvíarhóli sem er í næsta nágrenni.
Ekkert hestamannafélag hefur sýnt
mótinu áhuga og vekur það nokkra
athygli því nú í fyrsta skipti verður
haldið sérmót fyrir yngri flokkana.
Vekur það spurningar um hvort
fjárhagsafkoma mótsins sé lakari
með þessu fyrirkomulagi eða þá
hvort áhugi fyrir þessu mótahaldi
sé almennt að minnka.
Strax og ljóst var að haldið yrði
sérstakt æskulýðsmót bauðst Sörli í
Hafnarfirði til þess að halda mótið
en eldri flokka mótið virðist sam-
kvæmt þessu minna spennandi.
Landssambandið er að skoða um-
sókn Íslenska reiðskólans og verð-
ur fljótlega tekin ákvörðun um
hvort mótið fer í Ölfusið.
Einka-
væðing í
mótahaldi