Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 65
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 65
Jóhanna
Stefanía
Sigrún
Æfingabekkir Hreyfingar
Ármúla 24, sími 568 0677
Getur eldra fólk notið góðs
af þessum bekkjum?
Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er
þægileg, liðkar og gefur góða slökun og
er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk.
„Ég er búin að stunda bekkina í 8 ár, en með smá
hléum, og þá strax fór ég að verða stirðari í öllum
liðum. Mér finnst að bekkirnir séu nauðsynlegir, þó
fólk stundi aðra líkamsrækt því þeir bæði styrkja og
nudda. Mjög gott fyrir þá sem þjást af gigt, t.d. liða-
og vefjagigt.“
Jóhanna Einarsdóttir
„Ég hef stundað æfingabekkina í rúm 12 ár eða frá
því að þeir komu fyrst til landsins. Þær æfingar, sem
bekkirnir bjóða upp á, eru einstaklega fjölbreyttar og
góðar. Það fann ég best þegar ég stoppaði í nokkra
mánuði. Vöðabólgur og stirðleiki létu ekki á sér
standa. En nú er ég byrjuð aftur og er nú orðin
öll önnur. Því mæli ég eindregið með æfinga-
bekkjunum.“
Sigrún Jónatansdóttir
„Það eru liðin 10 og ½ ár síðan dóttir mín sagði mér
að hún hefði pantað fyrir mig prufutíma í nuddbekki
sem hún hélt að gætu verið mjög góðir fyrir mig. Ég
hafði þá þjáðst lengi af liðagigt og vöðvabólgu. Ég er
ekki að orðlengja það en allar götur síðan hef ég
stundað bekkina allan ársins hring með mjög góðum
árangri. Ef hlé hefur verið á æfingum finn ég mjög
fljótt fyrir stirðleika í liðum og sársauka í vöðvum. Ég
er sannfærð um að bekkirnir hafa hjálpað mér mikið
í mínu daglega lífi.“
Stefanía Davíðsdóttir
Er vöðvabólga að hrjá þig í baki, öxlum
eða handleggjum?
Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum?
Vantar þig aukið blóðstreymi og þol?
Þá hentar æfingakerfið okkar þér vel!
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur stundað
einhverja líkamsþjálfun í langan tíma. Sjö bekkja
æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóðstreymi til
vöðvanna. Hver tími endar á góðri slökun.
Við erum einnig með göngubraut,
þrekstiga og tvo auka nuddbekki.
Opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9–12 og 16–20,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9–18
Fr í r kynningart ími
FRÆÐSLUNET Suðurlands í sam-
vinnu við Ferðamálasamtök Suður-
lands efnir til eins dags námstefnu
um menningartengda ferðaþjón-
ustu. Meginmarkmiðið verður að
fara yfir málið, kynna hvað hugtakið
felur í sér, hvaða möguleikar felast í
hugtakinu fyrir Suðurland, hvað
hefur verið gert, hvað er hægt að
gera og hvernig skynsamlegast er
að standa að málum. Gert er ráð
fyrir að í lok námstefnunnar hafi
menn nokkurt yfirlit yfir sviðið og
fyrir liggi mótuð hugmynd um
hvernig unnið skuli áfram að mál-
um.
Námstefnan verður haldin mið-
vikudaginn 21. febrúar kl. 9.30–17 á
Hótel Geysi í Biskupstungum og
lýkur skráningu 10. febrúar. Þátt-
tökugjald er 6.000 kr. og er innifalið
kaffi og námskeiðsgögn.
Á námstefnunni munu, eftir setn-
ingu Jóns Hjartarsonar, fram-
kvæmdastjóra Fns, og ávarp Sturlu
Böðvarssonar samgöngumálaráð-
herra, eftirtalin erindi verða flutt:
Staða ferðaþjónustunnar á Suður-
landi; Jóhanna B. Magnúsdóttir,
formaður ferðamálasamtaka Suður-
lands, Geysisstofa, frá hugmynd til
veruleika; Ásborg Ósk Arnþórsdótt-
ir ferðamálafulltrúi, Söfn og svæð-
isbundin uppbygging menningar-
tengdrar ferðaþjónustu; Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður,
Safn sem miðpunktur ferðaþjón-
ustu; Þórður Tómasson, Skógum,
Menningartengd ferðaþjónusta í
framkvæmd; Rögnvaldur Guð-
mundsson ferðamálaráðgjafi, Sögu-
setrið, ferðaþjónusta í framkvæmd;
Njála og ferðamaðurinn; Arthur
Björgvin Bollason bókmenntafræð-
ingur, framkvæmdastjóri Söguset-
ursins á Hvolsvelli, Hugmyndafræð-
in á bak við uppbygginguna í
Reykholti; Geir Waage, sóknar-
prestur í Reykholti, Þjóðtrú og ör-
nefni; Bjarni Harðarson ritstjóri,
Draugaleiðir og markaðssetning;
Benedikt Guðmundsson/Þór Vigfús-
son og Fjármögnun og fjárveiting-
ar; Sigurður Bjarnason, Atvinnu-
þróunarsjóði Suðurlands.
Að erindum loknum verða frjálsar
umræður og tillögugerð, samantekt
og niðurstaða.
Í tengslum við námstefnuna gefur
Sunnlenska fréttablaðið út blað sem
helgað er sunnlenskri ferða-
mennsku.
Námstefna um menning-
artengda ferðaþjónustu
SVANHILDUR Svavarsdóttir,
boðskiptafræðingur og einhverfu-
ráðgjafi, heldur fyrirlestur mið-
vikudaginn 24. janúar kl. 20 um
boðskipti og skipulagða kennslu og
vinnubrögð.
Svanhildur starfaði lengi sem tal-
meinafræðingur hjá SLF við Háa-
leitisbraut en starfar nú í Banda-
ríkjunum og hefur undanfarin ár
einkum einbeitt sér að starfi með
einhverf börn.
Kennarar á leik- og grunnskóla-
stigi eru einnig hvattir til þess að
koma á fyrirlestur Svanhildar, seg-
ir í frettatilkynningu. Fyrirlestur-
inn verður haldinn í safnaðarheimili
Háteigskirkju, gengið inn frá bíla-
stæðinu.
Fyrirlestur um
boðskipti og
skipulagða
kennslu
JÓHANN Pálsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, segir frá borgar-
görðum í Evrópu í máli og myndum á
fræðslufundi Garðyrkjufélags Ís-
lands í Norræna húsinu, miðvikudag-
inn 24. janúar, kl. 20. Erindið nefnir
hann „Garðar í Evrópu frá endur-
reisnartímanum til okkar daga“.
Hann ætlar að varpa upp myndum
og fróðleik um garða í ýmsum borg-
um Evrópu. Jóhann hefur í gegnum
tíðina verið ötull að miðla af ferðum
sínum og bera litskyggnur hans vitni
um glöggt auga fyrir náttúru og
ræktun, segir í fréttatilkynningu.
Allir eru velkomnir og aðgangseyr-
ir er 300 krónur.
Erindi um
garða í Evrópu
EKIÐ var á bifreiðina UU-297, sem
er VW Golf, 21. janúar á tímabilinu
frá kl. 15.30 til 21.10, þar sem hún
stóð mannlaus á bifreiðastæði við
veitingahúsið Áslák í Mosfellsbæ.
Tjónvaldur fór hins vegar af vett-
vangi án þess að tilkynna það, og því
eru þeir sem einhverjar upplýsingar
geta gefið um óhappið beðnir að snúa
sér til lögreglunnar í Reykjavík.
Ekið á jeppabifreið
við Skútuvog
Lýst er eftir vitnum vegna
árekstrar þar sem stungið var af frá
vettvangi. Óhappið átti sér stað
föstudaginn 19. janúar sl. Ekið var á
bifreiðina MC 655 sem er Cherokee-
jeppi, dökkrauður að lit, þar sem
hann var kyrrstæður á bifreiðastæði
við Skútuvog 7 í Reykjavík.
Tjónvaldur er ókunnur og fór af
vettvangi.
Lýst eftir
vitnum
PARKISONSAMTÖKIN á Íslandi
eru flutt í Hátún 10b, 9. hæð,
Reykjavík. Skrifstofan er opin alla
miðvikudaga kl. 17-18.30. Þess má
geta að símanúmer er óbreytt.
Þjónustusetur líknarfélaga er
einnig flutt á sama stað og veitir allar
upplýsingar og selur minningarkort.
Opið er alla virka daga milli kl. 13-17.
Parkison-
samtökin flutt
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦