Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI
20 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ármúla 21,
sími 533 2020.
Baðáhöld
Mikið úrval áhalda
í baðherbergi
Concorde
Áferð:
Burstað stál.
Pagoda
Áferð:
Króm og
króm/gull.
Polo
Áferð:
Króm
Eldorado
Áferð:
Króm og
króm/gull.
BIRGIR Ísleifur Gunnarssonseðlabankastjóri segir aðekki séu komnar það sterk-ar vísbendingar um að
þenslan sé á niðurleið að tímabært sé
að lækka vexti. Hér sé útlánaþensla
innlánastofnana um 25% síðustu tólf
mánuði. „Bandaríkjamenn voru að
lækka vexti hjá sér. Sambærileg tala
þar er 12% útlánaþensla á ári.“
Segir hann að það kunni að koma
að því einhvern tíma síðar á þessu ári
að vaxtalækkunarferli hefjist hér en
hann telji það alls ekki tímabært nú.
Jafnframt sagði hann að svo virtist
sem gengislækkunin sem varð á síð-
asta ári hafi ekki enn komið fram í
verðlagi en á fundi sem hann hafi átt
með Samtökum verslunarinnar ný-
verið hafi menn talið að gengislækk-
unin myndi koma fram í verðlagi á
næstu vikum. Þetta kom fram í um-
ræðum á fundi Varðar, fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, um
efnahagsmál síðastliðinn laugardag.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
segist taka undir þetta með seðla-
bankastjóra að ekki sé tímabært fyrir
Seðlabankann að lækka vexti. Það sé
áhættusamt þar sem ekki hafi dregið
nægjanlega úr þenslunni.
Víglundur Þorsteinsson, forstjóri
BM Vallár, Vilhjálmur Egilsson al-
þingismaður og Þórður Pálsson,
deildarstjóri greiningardeildar Kaup-
þings, töldu aftur á móti að tímabært
væri að lækka vexti.
Í pallborðsumræðum kom fram að
Birgir Ísleifur taldi ekki tímabært að
lækka skatta og sagði skattalækk-
unina árið 1997 hafa átt verulegan
þátt í að örva þenslu. Kaupmáttar-
aukningin það ár hafi verið 7,5% frá
árinu á undan og átt ómældan þátt í
þeirri þenslu sem fylgdi í kjölfarið.
Var sú þensla, að sögn Birgis Ísleifs,
að mestu drifin áfram af einkaneyslu.
Víglundur telur heldur ekki tíma-
bært í augnablikinu að lækka skatta
og frekar ætti að horfa á vaxtalækk-
anir og fínstilla raungengið upp á
3–4%. „Ef okkur tekst að auka hag-
vöxtinn þá getum við kannski talað
um einhverjar skattalækkanir á
næsta ári.“
Pétur Blöndal, alþingismaður, Vil-
hjálmur og Þórður töldu aftur á móti
tímabært að huga að skattalækkun-
um.
Í erindi Birgis Ísleifs á fundinum
kom fram að þrátt fyrir að heldur hafi
dregið úr útlánaaukningu innlána-
stofanana að undanförnu séu ekki enn
komnar óyggjandi vísbendingar um
að útlánaþenslan sé í rénum og hún sé
enn svo mikil að í öllum hagkerfum
myndi hún vera talin ógna stöðug-
leika til lengri tíma.
Erlendar skuldir Íslendinga við
lánakerfið nemi nú um 650 milljörð-
um króna og miklar gengislækkanir
geta hækkað þær að nafnverði í ís-
lenskum krónum. Því geti reynst erf-
itt fyrir skuldara að standa í skilum
og bankar og fjármálakerfið geti lent
í miklum vandræðum. „Því er
skemmst að minnast að slík dæmi
sáum við fyrir okkur á Norðurlönd-
unum í upphafi þessa áratugar svo
ekki sé talað um sambærileg dæmi í
fjarlægari löndum nær okkur í tíma.“
Birgir Ísleifur segir að til skamms
tíma litið séu ýmis merki um að hag-
kerfið sé byrjað að kólna. Verðbólgan
sé minni en hún var á síðastliðnu vori
en enn eigi eftir að koma í ljós hver
verða verðlagsáhrif þeirrar lækkunar
á gengi krónunnar sem orðið hefur
síðan í sumar. Til lengri tíma litið sé
ekki ástæða til annars en bjartsýni
þar sem efnahagslífið hvíli á traustum
stoðum. „Ég held að það harðni á
dalnum fyrst um sinn en það er nauð-
synlegt til að koma á jafnvægi í efna-
hagslífinu en jafnframt er engin
ástæða til að ætla að annað en bjart sé
framundan,“ sagði Birgir Ísleifur.
Afnema ber stimpilgjöld
og lækka eignarskatta
Pétur segir að huga verði að því að
lækka skatta sem ekki valda þenslu.
Þar séu eignarskattar fremstir í
flokki. Segir Pétur að með því að
lækka eignarskatt fengjust fleiri til að
spara sem vinni á móti þenslunni í
þjóðfélaginu. „Ég held að það sé eina
skattalækkunin sem hægt er að fram-
kvæma án þess að valda þenslu. Svo
finnst mér alveg sjálfsagt að afnema
hið furðulega og fáránlega stimpil-
gjald og það eru eiginlega allir sam-
mála mér um það.“
Pétur gerði viðskiptahallann að
umtalsefni og sagði hann að hallinn sé
með ólíkindum mikill.
Að sögn Péturs er einn veigamikill
munur á viðskiptahallanum nú en áð-
ur. Hér áður var hallinn við útlönd
með ábyrgð ríkissjóðs. En þessi halli
er ekki lengur með ábyrgð ríkissjóð
sem þýði að hann er með ábyrgð ein-
staklinga eða fyrirtækja. „Það þýðir
að það þurfa að vera veð og ábyrgðir á
bak við þetta. Ekki bara ríkisábyrgð
sem er endalaus. Veð og ábyrgðir ein-
staklinga. Ef við hugsum sem dæmi
fjölskyldu sem kaupir sér nýjan jeppa
og er áskrifandi að 70 þúsund króna
greiðslu á mánuði. Hún gerir ekki
mikið meira næstu 5–6 árin en að
kaupa þennan jeppa. Hún kaupir
jafnvel ekki ísskáp þótt hana vanti
hann. Hún er búin með sitt lánstraust
og veðmöguleika.“ Pétur segir að
þessi viðskiptahalli geti því ekki hald-
ið áfram án þess að veilur komi í gæð-
um útlána bankakerfisins. Þeir séu
farnir að lána slæm lán sem ekki eru
mjög trygg. Þetta eigi hluthafar að
spyrja stjórnendur viðskiptabank-
anna út í: hvort gæðin séu farin að
slakna og hver beri ábyrgðina?
Pétur segir að Seðlabankinn hafi
reynt að beita hefðbundnum aðferð-
um til að slá á þensluna með því að
hækka vexti endalaust en ein veila sé í
því. „Hún er sú að Íslendingar hafa
ekki mikið verðskyn á vexti. Þeim er
eiginlega nokkuð sama hvaða vexti
þeir borga. Hvort vextirnir eru 20%,
30% eða 10% skiptir ekki öllu því þeir
taka lán ef þá langar í fallegan bíl.
Þessi ótengni vaxtanna gerir það að
verkum að einstaklingar taka lán
sama hverjir vextirnir eru. Fyirtækin
gera nokkurn vegin það sama, það er
fyrirtæki sem eru illa rekin. En þau
sem eru vel rekin taka öll lán erlendis.
Öll stærri fyrirtækin og nánast öll
stærri sveitarfélögin eru að taka lán í
erlendri mynt.“
Segir hann að þau taki lán erlendis
og kaupi síðan spariskírteini innan-
lands á töluvert hærri vöxtum og
stingi 4–5% vaxtamun á milli Íslands
og útlanda í vasann.
Birgir Ísleifur sagði á fundinum að
það megi að vissu leyti til sanns vegar
færa að Íslendingum sé sama hvaða
vexti þeir borgi. Þeir taki bara lán.
„Það er enginn vafi á því að vaxtaskyn
Íslendinga og vaxtanæmi er töluvert
annað heldur en erlendis. Tökum
dæmi milli Íslands og Noregs. Í Nor-
egi hófst vaxtahækkunarferli í vor og
þegar þeir hófu þann feril voru mót-
mælafundir fyrir utan seðlabankann í
Ósló.“
Bankakerfið getur ekki
fjármagnað viðskiptahallann
Víglundur Þorsteinsson segir að
engin leið sé fyrir viðskiptabankana,
með CAD-hlutfall um 9,1–9,3%, að
fjármagna viðskiptahalla upp á 100
milljarða á ári. En ekki sé óvarlegt að
gera ráð fyrir því ef viðskiptahallinn í
ár verði 68 milljarðar líkt og Þjóð-
hagsstofnun spáir og greiðsluhalli
vegna erlendra fjárfestinga þjóðar-
innar nemi 30–40 milljörðum til við-
bótar „Því skiptir máli einmitt núna í
þessari stöðu hvernig Seðlabankinn
heldur á málum.“
Hann segir að það sé styrkleiki í
hagkerfinu hvað Íslendingar eigi mik-
ið af fjármagni í erlendum fjárfest-
ingum sem verði framtíðarávinningur
þessa þjóðfélags. Hagkerfið sé sterkt
sem slíkt á því leiki enginn vafi. Þar
megi nefna að þjóðarsparnaður í
formi lífeyrissparnaðar sé verulegur
þó lítið sé um að einstaklingar leggi til
hliðar í séreignarviðbótarsparnað í
lífeyriskerfinu. Það sýni kannski hvað
þjóðinni er mikið tamara að slá lán en
að spara peninga. Víglundur segir að
Seðlabankinn þurfi að breyta um
stefnu í rólegheitum á næstu mánuð-
um. „Við sjáum að vaxtalækkunar-
skeið er hafið í Bandaríkjunum og
ekki ólíklegt að slíkt skeið sé að hefja
innreið sína í Bretlandi og margir spá
því að það muni hefja innreið sína á
evrusvæðinu síðar á árinu. Seðla-
bankinn þarf að leiða þróun sem
lækkar raungengi krónunnar um
nokkur prósent til viðbótar við þá
7–8% raungengislækkun sem varð á
síðasta ári. Lækka raungengið þann-
ig að við náum því jafnvægi í raun-
gengi sem væri svipað og það var að
meðaltali á árunum 1996 og 97. Ég
held að þar náum við jafnvægi. Um
síðustu áramót var raungengið um
107 samanborið við 100 árið 1996.
Þetta er ekki stórvægilegur munur
og það er tækifæri núna þar sem á
ýmsum sviðum er eftirspurnarsam-
dráttur núna. Ekki vegna aðgerða
Seðlabanka né ríkisstjórnar heldur
vegna þess að eyðslusveiflan er búin
að vera slík á liðnum árum að það hef-
ur hreinlega orðið mettun á ýmsum
sviðum.“
Nefndi Víglundur bílainnflutning
og byggingar á atvinnuhúsnæði máli
sínu til stuðnings. Hann sagðist hins
vegar vera sannfærður um að sterk
eftirspurn yrði áfram eftir íbúðarhús-
næði. Þar verði sennilega ekki um
neinar verðbreytingar að ræða nema
ef til þess kæmi að sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu næðu að auka
lóðaframboð því lóðaskortur á höfuð-
borgarsvæðinu á liðnum árum hafi-
valdið tvennu: of mikilli áherslu á að
byggja atvinnuhúsnæði því þar hafa
verið til lóðir á meðan það vantaði lóð-
ir fyrir íbúðahúsnæði og vegna skorts
á lóðum til íbúðarbygginga „þá er
verðmiðinn einn og sér vegna lóða-
skortsins eins og sér á fjögurra til
fimm herbergja íbúð tveggja milljón
króna hækkun um það bil“.
Harðnar tvímælalaust á dalnum
Þórður Pálsson segir að verðbólg-
an hér á landi hafi fylgt í kjölfarið á
aukningu peningamagns. Dregið hafi
úr þeirri aukningu og verðbólga er á
niðurleið „Það má telja líklegt að í
kjölfar þess komi í ljós að nokkuð af
þeirri fjárfestingu sem ráðist hefur
verið í á undanförnum misserum
reynist ekki jafnarðbær og til var ætl-
ast. Eftir að fólk er orðið vant því að
hagvöxtur sé 4,6% á ári að meðaltali
harðnar tvímælalaust á dalnum á
þessu ári ef marka má spá Þjóðhags-
stofnunar sem gerir ráð 1,6% hag-
vexti. Það er þó ekki svartnætti fram-
undan þótt nýjasta tískan sé
bölsýnisspá og vart má í milli sjá
hvort sé vinsælla þessi misserin böl-
móður eða Pokemon.“
Þórður segir að til þess að hægt sé
að stuðla að því að hagvöxtur verði
hér sambærilegur og hann gerist
meðal nágrannaþjóðanna þá verði að
koma til lægri vextir, lægri skattar,
þá sérstaklega á fyrirtæki, og áfram-
haldandi einkavæðing.
Segja má að háir vextir séu orðnir
lífsstíll hér á landi að sögn Þórðar og
segir hann öll heimili í landinu finna
fyrir þessu vegna afborgana af lán-
um. Segir hann háa vexti hér draga úr
samkeppnishæfi íslenskra fyrirtækja
og auka hættu á að þau flytji starf-
semi sína úr landi. Einnig megi telja
líklegt að fyrirtæki skipti um upp-
gjörsmynt til að forðast áhrif geng-
isbreytinga á rekstrarreikning sinn.
Segist Þórður ekki telja ástæðu til
að ætla að hér eigi eftir að koma djúp
niðursveifla í efnahagslífinu heldur
muni þvert á móti myndast svigrúm
til þess að byggja grunn að áfram-
haldandi vexti hagkerfisins.
Hagkerfið stækkað um 25%
og lífskjör batnað í sama takti
Vilhjálmur Egilsson sagðist í erindi
sínu telja að frá árinu 1995 hafi náðst
mikill árangur í efnahagsmálum.
Hagkerfið hafi stækkað um 25% á
þessum árum og lífskjör almennings
hafi batnað í sama takti. Mikil ný-
sköpun hafi verið í gangi og breyt-
ingar í atvinnulífinu. Atvinnuleysi er
hverfandi og fleira fólk farið að flytja
til landsins en frá því. „Staðan er
þannig á þessu ári að mínu mati að við
erum að draga andann. Ástæðan er
sú að þessi 25% hagvöxtur á undan-
förnum árum hefur reynt mjög mikið
á þanþol hagkerfisins. Við erum með
fullnýttan vinnumarkað. Það er að
vísu þannig núna að stjórnendur fyr-
irtækja eru ekki að kvarta í sama
mæli og oft áður um það að þeir séu
að missa fólk en engu að síður þá má
segja að vinnuafl landsmanna sé full-
nýtt. En nú þarf að stilla upp til nýrr-
ar sóknar að mínu mati. Verðbólgan
hefur náðst niður og er komin í um
3% takt og gæti verið á leiðinni ennþá
niður úr 5–6% takti sem hún var í fyr-
ir tveim, þrem misserum. Gengis-
hækkunin sem varð á árunum 1997–
2000 er gengin til baka og í rauninni
meira en það því gengi krónunnar er
töluvert lægra en það var á árinu
1997. Vextir hafa hækkað um 5% frá
árinu 1998 og það er atriði sem ég tel
að þurfi að vinna í. Ég tel að þessi
vaxtahækkun hafi á tímabili verið
nauðsynleg en nú tel ég að séu uppi
aðrar aðstæður. Ef við lítum til næstu
ára þá mundi ég halda því fram að það
væru öll skilyrði til þess að ná ár-
angri. Í rauninni tel ég að það sé und-
ir okkur sjálfum komið hvort við
náum árangri eða ekki. Þetta er ekki
bara spurning um að gá til veðurs
heldur er þetta spurning um hvað við
gerum sjálf í landsstjórninni. Hvað
fólk er að starfa í atvinnulífinu og
hvernig við skipuleggjum okkur al-
mennt séð.“
Höfum við flutt inn rétt fólk?
Vilhjálmur segir vinnumarkaðinn
vera annan af lykilmörkuðum hag-
kerfisins. „Þá er þekking og færni
starfsfólksins sífellt þýðingarmeiri.
Auðvitað verðum við alltaf að spyrja
okkur að því hvort við erum að gera
nóg í þeim efnum. Hvort við séum að
byggja upp okkar menntakerfi rétt.
Hvort það sé að skapa okkur hæft
starfsfólk. Annað sem ég vil nefna er
að uppgangur kallar á nýtt fólk. Öll
svæði í heiminum sem eru að ná ár-
angri eru að fá til sín flæði af nýju
fólki erlendis frá. Það mun þurfa að
gilda það sama um Ísland eins og önn-
ur hagkerfi. Við getum tekið Lúxem-
borg og Írland. Nú eða borgir eins og
New York eða hvaða stað í heiminum
sem er þar sem eitthvað er að gerast.
Uppgangi tengist eiginlega alls stað-
ar innstreymi af fólki erlendis frá. Jú,
við höfum verið að flytja inn fólk. En
höfum við verið að flytja inn rétta
fólkið? Höfum við verið að flytja inn
menntað fólk? Jú, í einhverju mæli
höfum við verið að gera það. Við höf-
um verið að flytja inn menntaða Ís-
lendinga frá útlöndum. Fólk sem hef-
ur fengið menntun erlendis er að
koma heim. Nú, þetta fólk hefur kom-
ið með sína maka og annað sem hefur
fengið vinnu en við höfum líka verið
að flytja inn fullt af fólki sem hefur
verið að vinna í störfum sem eru
kannski ekki vel launuð og hafa ekki
verið eftirsótt af Íslendingum. En
hvað um það, ég tel að við verðum að
spá dálítið betur í þessi mál en við höf-
um verið að gera og í rauninni að gera
miklu meira fyrir þetta fólk sem við
höfum verið að fá inn í landið til þess
að aðlaga það okkar samfélagi svo
það nýtist okkur sem best.“
Vilhjálmur segir að mikið hafi verið
gert í skattamálum atvinnulífsins en
þeim breytingum sé hvergi nærri lok-
ið. Hann segir að skattalækkanir und-
anfarin ár hafi yfirleitt falið í sér pró-
sentulækkanir og ívilnanir hafi verið
felldar niður. Því séu skatttekjur rík-
issjóðs meiri í dag en nokkru sinni
fyrr.
Segir hann að eignarskattar og
stimpilgjöld séu farin að verða þjóð-
inni fjötur um fót.
Ekki tímabært að lækka vexti
Skiptar skoðanir voru um hvort nú væri
færi til vaxtalækkana hjá Seðlabankanum
á fundi um efnahagsmál sem Vörður,
fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, stóð fyrir á laugardag.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vilhjálmur Egilsson alþingismaður Þórður Pálsson, deildarstjóri greining-
ardeildar Kaupþings, og Víglundur Þorsteinsson, forstjóri BM Vallár, telja
allir að tímabært sé fyrir Seðlabanka Íslands að lækka vexti.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra á opnum fundi um efnahagsmál