Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 76
HANN er seigur sem ætíð fyrr, þeg-
ar vinsældirnar eru annars vegar,
stórleikarinn smái Tom Cruise. Önn-
ur myndin í Mission Impossible-röð-
inni hefur náð að afreka það sem
flestir þorðu vart að spá – að slá út
velgengni fyrstu myndarinnar.
Kafbátahasarinn U-571 gerði það
býsna gott vestanhafs síðasta sumar
en hér er á ferð mynd sem byggist á
sönnum viðburðum sem áttu sér stað
í síðari heimsstyrjöldinni þegar
bandamenn gerðu út kafbátaleiðang-
ur sem hafði það verkefni með hönd-
um að komast að hernaðarlega þýð-
ingarmiklu dulmáli sem nasistar
hafa fundið upp á.
Þótt myndin þyki bæði spennandi
og vel úr garði gerð hefur hún legið
undir ámæli fyrir að skrumskæla
þær sögulegu staðreyndir sem hún
er sögð byggjast á. Nefnd hafa verið
nokkur atriði því til stuðnings en hið
alvarlegasta þykir þó að Bandaríkja-
mönnum er eignaður heiðurinn af
hernaðarafreki myndarinnar þegar
það voru í raun og veru Bretar sem
stóðu á bak við það í einu og öllu.
Hefur þessi alvarlega sögufölsun
truflað marga á meðan aðrir telja
þetta veigalítið atriði sem á engan
hátt skyggir á annars góða afþrey-
ingu. Dæmi hver fyrir sig.
Aðrar nýjar myndir á listanum eru
rómantíska gleðimyndin Commited
með dúndurskutlunni Heather Grah-
am í hlutverki hörkukvendis sem
lætur engan karlpening vaða yfir sig
– allra síst eiginmanninn, og kómed-
ían kolsvarta Drowning Mona með
Danny DeVito, Bette Midler og Jam-
ie Lee Curtis í helstu hlutverkum.
Óbreytt staða á myndbandalistanum
! "
! #$%
&
"
"
'
! #$%
&
'
'
"
'
!
! "
! "
'
"
(
#
(
(
)
#
(
(
(
#
(
#
#
(
(
)
(
)
(
#
!
# $% &'
& ' (
") *")
""
!")
+""
,
#
" -'" &"
) +
" ! './')
*0 '
/ +1
Kafbátahasarinn
sá ekki við Cruise
Reuters
Einbeitt kafbátaáhöfnin umdeilda í U-571.
76 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 3.50 og 5.55
Vit nr. 168
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 14. Vit nr. 186
Sýnd kl. 3.50. ísl tal
Vit nr. 169
Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8 og
10.05. Vit nr. 178
Sýnd kl. 3.45.
Ísl tal. Vit nr. 179
BRING IT ON
ÓHT Rás 2
1/2
kvikmyndir.is
Frábær grín- og ævintýramynd fyrir alla
fjölskylduna. Vönduð Íslensk talsetning með
mörgum okkar bestu leikurum.
Sjötti dagurinn
Þeir klónuðu
rangan mann
Framtíðartryllir af fítonskrafti.
Arnold Schwarzenegger er í banastuði.
Frá leikstjóra "Tomorrow Never Dies."
Stanslaus hasarkeyrsla og tæknbrellur sem sýna hvað
framtíðin ber í skauti sér. Eða hvað!
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Vit nr. 177
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Vit nr. 167
Sýnd kl. 8 og 10.20 b.i. 14
.Vit nr. 182
Hvað ef...NICOLAS CAGE
TÉA LEONI
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal.Vit nr. 183. kl. 4, 6, 8 og 10. enskt tal. Vit nr. 187.
BRUCE WILLIS SAMUEL L. JACKSON
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30.
HÁSKÓLABÍÓ
Hagatorgi sími 530 1919
þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. .B. i. 12.
DV
„fyndin og skemmtileg“
H.K. DV
Sýnd
kl.10.
ÓHT Rás 2
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SV Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl.10.
Allra síðustu
sýningar
Sýnd kl. 6 og 8. Með íslensku tali.
Nick Nolte Anjelica Huston
Uma Thurman
SV Mbl
INGVAR E. SIGURÐSSON
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON
EGGERT ÞORLEIFSSON
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
ÓFE Sýn
Í KVÖLD verða haldnir tónleikar á
Gauki á Stöng sem eru liður í reglu-
legu þriðjudagstónleikahaldi Und-
irtóna í nafni Vélvirkjans, og þar
koma fram valdir tónlistarmenn.
Skurken stígur fyrstur á svið kl.
21, en hann semur raftónlist allt frá
rafpoppi í anda múm út í takt-
brotstónlist. Tilraunakenndi popp-
tónlistarmaðurinn Egill Sæbjörns-
son tekur við af honum, en
tónleikana endar Sýrupolkasveitin
Hringir.
„Pínkulítið“ nýtt
Egill Sæbjörnsson segist vera að
halda kveðjutónleika, en samt ekki
alveg viss hvort hann er að fara
Þýskalands eða Englands.
„Búslóðin mín er öll í Þýskalandi
og ég er að hugsa um að flytja þang-
að aftur. Ef ekki þá fer ég til Lond-
on í nokkra mánuði að vinna með
nýja umboðsmanninum mínum,
Stevo.“
– Er það nýkomið til?
„Það kom upp eftir Airwaves-
tónleikana.“
– Og hvað á að spila?
„Ég ætla að spila efni af síðustu
plötu og svo getur verið að við tök-
um eitthvað pínkulítið nýtt, kannski
eitt nýtt lag.“
– Ertu alltaf að semja?
„Já stöðugt. Á hverri einustu
nóttu sit ég við til fimm á morgnana,
ef ekki lengur. Ég er með hljóð-
gervil í láni sem er með fullt af fiðlu-
hljóðum þannig nú eru öll lögin með
fullt af fiðlum í, ha, ha,“ segir Egill
að lokum og lofar að þrátt fyrir
sköpunargleðina muni þeir sem
fengu Tonk of the Lawn í jólagjöf
heyra ýmsilegt af henni á Gauknum
í kvöld.
Búð í pakka
Kormákur Geirharðsson,
trommuleikari í Hringjum, segir
sveitina sína spila afskaplega sjald-
an opinberlega og að þessir tón-
leikar séu kærkomið tækifæri, því
„okkur finnst mjög gaman að spila“.
Þessa dagana er rýmingarsala í
Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar, og eitthvað hefur heyrst
um að tónleikarnir séu haldnir af
því tilefni. „Alltaf þegar Hringir
spila er það í samkrulli við Herra-
fataverslunina, og við æfðum þar í
gær. Við viljum koma þeim skila-
boðum á framfæri að hún sé að
renna sitt skeið í núverandi mynd.
Hún leggst niður í einhvern tíma en
við finnum eitthvað út frá því, eftir
að við pökkum afganginum af rým-
ingarsölunni niður í kassa.“
Hringir eru ekkert að hika við
hlutina frekar en fyrri daginn og
munu taka sýrupolkann einsog hann
leggur sig, að sögn trymbilsins.
„Það fer eftir stemmningu hvort
lögin verða þrjár mínútur eða
fimmtán. Hvort maður næst á flug.
Ég hef aldrei komið inn á Gaukinn
eftir breytingarnar þannig að ég
veit ekki alveg við hverju á að bú-
ast,“ segir Kormákur að lokum og
bætir við að það geti brugðist til
beggja vona með það hvort þetta
verði tónleikar eða dansiball.
Gaman
að spila
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Egill Sæbjörnsson á Airwaves-
hátíðinni.
Hinir bráðmyndarlegu Hringir ásamt vinkonu sinni Möggu Stínu sem
verður fjarri góðu gamni í kvöld.
Vélvirkinn á Gauki á Stöng
40—70%
afsláttur af
hágæða
snyrtivörum og
snyrtitöskum.
Snyrtivöruverslun
Áslaugar, Laugavegi
sími 511 6717
Útsölulok
Síðasta vika
útsölunnar
Verslunin hættir
28. janúar