Morgunblaðið - 23.01.2001, Blaðsíða 72
FÓLK Í FRÉTTUM
72 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
Í HLAÐVARPANUM
Eva - bersögull sjálfsvarnareinleikur
8. sýn. í kvöld þri. 23. jan kl 21:00 uppselt
9. sýn. lau. 27. jan. kl. 21.00
„...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri
sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna
og taka karlana með...“ (SAB Mbl.)
Háaloft
geðveikur
svartur gamaneinleikur
21. sýn. fös. 26. jan. kl. 21 uppselt
22. sýn. þri. 30. jan. kl. 21.00
„Áleitið efni, vel skrifaður texti,
góður leikur og vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl)
„... undirtónninn sár og tregafullur.“ (HF DV)
!!"
# $
%&'($
)
(*+ $
'
, !
,
! "
# #
$
% &
! "
' &(
) )
&
*+
,
'
-.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
/0/
1
-.
-. -. /-
%23#435 434 67
8!) 2*! 0-,&
9-,&
.
- 9-
:; %/60043 //
!
* /-
.
,&
. -
,&
. -
,&
. /-
,&
,&
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
5#4<#380
8!
- 9- 9 /- . & - !11
. -,&
. - 9 - !11
.
/- !11
. - !11
.- !11
/-
;0=2/43" >2?:
@ 0- Litla sviðið kl. 20.30:
8;9% /8/
=
A& B(% !
- 9--
CCC
1)
D
1)
*+(
,
Miðasalan er opin mán.-þri. kl. 13-18, mið.-sun. kl. 13-20.
Anddyri
„Meirihlutinn hefur aldrei rétt fyrir sér fyrr
en hann breytir rétt”
Mið 24. jan kl. 20
Umræðufundur um lýðræði og það hvort
meirihlutanum beri að hlusta á og virða
skoðanir minnihlutans í lýðræðisríki. Kveikja
umræðunnar er fyrirhuguð frumsýning á
„Fjandmanni fólksins” í Borgarleikhúsinu
föstudaginn 2. febrúar og tengsl verksins
við mál sem brenna á þjóðarsálinni í dag.
Leikarar flytja valda kafla úr verkinu.
Fundarstjóri: Egill Helgason,
sjónvarpsmaður. Þátttakendur: Garðar
Sverrisson, formaður ÖBÍ, Herdís
Þorgeirsdóttir, fjölmiðlafræðingur, Magnús
Þór Þorbergsson, leikhúsfræðingur, auk
alþingismanna.
Litla svið - VALSÝNING
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Fim 25. jan kl. 20
Fös 26. jan kl. 20
Fim 1. feb kl. 20
Fös 2. feb kl. 20
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Lau 27. jan kl. 19
Lau 3. feb kl. 19
Stóra svið
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Sun 28. jan kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 28. jan kl. 17 – AUKASÝNING – ÖRFÁ
SÆTI LAUS
Sun 4. feb kl. 14 - UPPSELT
Sun 4. feb kl. 17 - AUKASÝNING
Sun 11. feb kl. 14 – UPPSELT
Sun 11. feb kl. 17 - AUKASÝNING
Stóra svið
FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen
Fim 1. feb kl. 20 AÐALÆFING 1000 kr.
miðinn
Fös 2. feb kl. 20 FRUMSÝNING
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Lau 3. feb kl. 19
Lau 10. feb kl. 19
Ertu í saumaklúbbi? Skráðu klúbbinn á
póstlistann á www.borgarleikhus.is og
fáðu glæsileg leikhústilboð fyrir hópinn
vikulega. Mánaðarlega er einn sauma-
klúbbur dreginn út og öllum meðlimum
boðið á leiksýningu í Borgarleikhúsinu.
552 3000
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
lau 27/1 I kort gilda, UPPSELT
lau 27/1 kl. 23 miðnætursýning
sun 28/ örfá sæti laus
sun 4/2 örfá sæti laus
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG
fös 26/1 kl. 20 örfá sæti laus
lau 3/2 kl. 20 örfá sæti laus
lau 10/2 kl. 20 örfá sæti laus
fös 16/2 kl. 20 örfá sæti laus
530 3030
SÝND VEIÐI
fös 26/1 kl. 20 laus sæti
lau 3/2 kl. 21 laus sæti
TRÚÐLEIKUR
lau 27/1 kl. 20 örfá sæti laus
fös 2/2 kl. 20 laust sæti
Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18
um helgar og fram sýningu alla sýningardaga.
Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er
í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
midasala@leik.is — www.leik.is
CHICAGO Beau er stór ogstæðilegur maður. Nálægðhans er þægileg og hann tek-
ur vinalega í hönd blaðamanns um
leið og hann brosir blítt undan
ískyggilega svölu tregaskeggi. Svona
á þetta að vera! Bláminn er hér kom-
inn, holdi klæddur.
Bláminn eða tregalistin (sem út-
leggst sem „blues“ á útlensku) er
með helstu greinum dægurtónlistar
og það er ekki á hverjum degi sem
maður „sem var þar“ heimsækir
landið. Hvað þá tvisvar.
Chicago Beau, sem heitir réttu
nafni Lincoln Beauchamp, er fjöl-
hæfur maður. Hann er munnhörpu-
leikari og söngvari en hefur einnig
starfað sem rithöfundur og ritstjóri
ásamt því að stýra upptökum ann-
arra tónlistarmanna. Hann hefur enn
fremur unnið með víðfrægum lista-
mönnum eins og Billy Boy Arnold,
Pinetop Perkins, Sunnyland Slim,
Junior Wells og Jimmy Dawkins.
Lærði á munnhörpu
hjá Billy Boy Arnold
Beau segir ástæðurnar fyrir því að
hann hóf að leika sér með blámistr-
aða tóna ekkert liggja sérstaklega í
augum uppi.
„Þetta bara var í því umhverfi sem
ég ólst upp í. Bláminn er lífsstíll, svo
einfalt er það,“ segir hann. „Ég er
fæddur í Chicago sem er borg ansi
blámasveipuð. Hún var það a.m.k.“
Munnharpan er aðall Beau en
hana segist hann hafa tekið upp fyrir
tilstilli Billy Boy Arnold. „Ég var um
fimmtán ára gamall er ég hóf að leika
á hana. Billy Boy Arnold var eldri
bróðir vinar míns og ég dáðist mikið
að leik hans. Hann kenndi mér að
spila á munnhörpuna; mér finnst hún
vera heillandi hljóðfæri. Hún öskrar
skemmtilega.“
Beau segir ekkert eitt af þeim
samstarfsverkefnum sem hann hefur
tekið þátt í taka öðru fram. „Umm...
þetta er svolítið snúið,“ segir hann,
mænir dálitla stund fram fyrir sig en
hrekkur síðan í gír. „Ánægjan felst í
því að vinna með fólki sem er í svip-
uðum tónlistarhugleiðingum og þú.
Og hvað viðkemur því að vinna með
eldri spilurum eins og t.d. Pinetop
var það ákveðin viðurkenning fyrir
ungan mann að fá að vinna með
mönnum eins og honum. Mér fannst
mikið til koma þegar tónlistarmenn
sem ég hafði virt og dáð álitu mig
vera orðinn færan til að taka þátt í
sköpuninni með þeim.“
Þrír tímar í giftingu
Að sögn Beau liggja nokkuð
skondnar ástæður að baki fyrstu
heimsókninni.
„Það er nokkuð áhugaverð saga-
...ef þú nennir að hlusta á hana,“ seg-
ir Beau og er kurteisin uppmáluð.
Leyfið er veitt með glöðu geði. „Um
það leyti (1991) vann ég sem blaða-
útgefandi í Chicago og gaf út tímarit
um bókmenntir og blámalist. Einn
daginn var ég að fletta blaði sem mig
minnir að hafi heitið Metro, einhvers
konar listrænt tískutímarit sem var
bara ansi tilkomumikið. Það sem
vakti athygli mína var að útgefand-
inn þakkaði sérstaklega prentsmiðj-
unni, sem var íslenska prentsmiðjan
Oddi í Reykjavík. Ég hugsaði með
mér: „Þessi gaur hlýtur að hafa verið
himinlifandi yfir þessu.“ Ég hringdi
því í Odda og leitaði fyrir mér með
prentun á tímaritunum mínum. Mað-
urinn sem ég ræddi við var vinalegur
og við fórum að spjalla um óskyld
efni, þ.á m. tónlist. Hann sagði mér
að það væri heljarinnar blámavakn-
ing í gangi á Íslandi og gaf mér síma-
númer hjá aðila sem var á kafi í
þessu. Eitt leiddi af öðru og ég kom
hingað í heimsókn og hélt nokkra
tónleika á Púlsinum.“
Hann segir íslenska tregatónlist-
armenn hafa nokkuð einstakt lag á
blámaforminu. „Þeirra tilfinning
tengist svolítið landinu sem þeir búa
í. Hún er skyld þessari almennu
blámainnlifun en hefur sína sérstöðu
engu að síður. Hvað fólk gerir í tón-
list tengist alltaf sögu og bakgrunni
þess og ég verð að segja að íslensku
spilararnir búa yfir ríkri tilfinningu –
það geta allir tjáð sig innan bláma-
formsins, hvaðan svo sem þeir koma.
Það eru aðeins nokkrir tímar í að
Beau fái hnapphelduna góðu á sig.
„Mér og verðandi konu minnifannst
það bráðsniðugt að gifta okkur hér
úr því að þessi heimsókn stæði til, en
hún hefur aldrei komið hingað áður.
Við slógum þessu því bara saman.“
Beau segir að tónleikaferðalag til
Þýskalands sé svo áætlað eftir þessa
heimsókn og einnig ætli hann að
vinna að einhverjum plötum. Hann
segist ekki búa lengur í Bandaríkj-
unum, hann og kona hans búi í Tusc-
anyhéraði á Ítalíu og það færist milt
sælubros á varir blámafurstans.
„Það er yndislegt. Uppihaldið er
ódýrt og við unum okkur vel þar.“
Chicago Beau mun spila á tvenn-
um tónleikum ásamt GP’s Blues áður
en hann heldur af landi brott. Á
morgun kl. 22 spila þeir á Hótel Sel-
fossi og á fimmtudaginn kl. 23 verða
tónleikar á Enn einum bar, Keflavík.
Blámalistamaðurinn Chicago Beau er staddur hérlendis
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
„Bláminn er lífsstíll“
Fyrir hartnær tíu árum
sótti blámamaðurinn
Chicago Beau Ísland
heim og lék hér með
andans skyldum tónlist-
armönnum. Beau sneri
aftur á dögunum til
hljómleikahalds en
ákvað einnig að nota
tækifærið og gifta sig
heitmey sinni í leiðinni.
Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi blátt
áfram við Beau.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
Syngjandi blámasveifla: Chicago Beau ásamt Guðmundi Péturssyni á
tónleikum á Gauk á Stöng síðastliðinn sunnudag.
www.mbl.is
www.mbl.is