Morgunblaðið - 23.01.2001, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.01.2001, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI 22 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudaginn 25. janúar nk. mun Íslensk-kínverska viðskiptaráðið halda upp á kínversk áramót, en þá gengur í garð ár snáksins samkvæmt kínversku tímatali. Áramótafagnaðurinn verður haldinn á veitingastaðnum Asíu og hefst kl. 19.00. Boðið verður upp á fimm rétta máltíð. Þátttökugjald er kr. 2.800. Ræðumaður kvöldsins verður Ragnar Baldursson sendiráðunautur og mun hann fjalla um Kína við upphaf nýrrar aldar. Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna og taka með sér gesti. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu ráðsins í síma 588 8910 sem allra fyrst. FAGNAÐURINN ER ÖLLUM OPINN. ÍSLENSK KÍNVERSKA VIÐSKIPTARÁÐIÐ. KÍNVERSK ÁRAMÓT NÝTT eignarhaldsfélag, Eyki hf., hefur verið stofnað um fyrirtækin Radíomiðun, Hátækni og Ísmar. Eign Radiomiðunar í Íslenskum fjar- skiptum ehf. (67%) og Teleserve í Færeyjum (50%) mun jafnframt flytjast til Eykis. Kristján Gíslason, stjórnarformað- ur Eykis, segir að tilgangurinn með þessum breytingum sé að skapa öfl- uga og markvissa heild fyrirtækja, styrkja rekstrargrundvöll þeirra og gera þau hæfari til að takast á við nýjar og breyttar aðstæður. Eignar- haldsfélagið muni annast áætlana- gerð, stefnumörkun og skipulagn- ingu dótturfélaga sinna. Samanlögð velta dóttur- og hlut- deildarfélaga Eykis hf. var á síðasta ári yfir 1.800 milljónir króna. Á síðasta ári stofnaði Teleserve símafyrirtækið TeleF í Færeyjum með Íslandssíma og er eignarhluti Teleserve í TeleF 50%. Eyki gekk nú nýverið frá kaupum á Ísmar hf. en Ísmar er í innflutningi og þjónustu á siglinga-, fiskileitar- og fjarskipta- tækjum, ásamt því að selja og þjón- usta landmælingatæki og annan bún- að til verktaka og byggingaraðila. Að sögn Kristjáns mun Ísmar líkt og hin dótturfélögin starfa áfram í núver- andi mynd og sem sjálfstætt félag. „Með stofnun Eykis myndast öflugur kjarni fyrirtækja á sviði fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu með sérhæfingu í þjónustu við sjávarút- veginn. Sérhæfingin er aðallega á sviði siglinga- og fiskileitartækni og styður stofnun Eykis frekari útvíkk- un heildarstarfseminnar innanlands og erlendis. Við erum að setja öll þessi sjálfstæðu fyrirtæki undir sama hatti.“ Stefnt að stækkun félagsins Aðspurður segir Kristján að með stofnun sérstaks eignarhaldsfélags sé nú búið að koma á skipulagi sem geri stjórnendum kleift að sækja fram og það sé ekkert launungarmál að menn vilji stækka fyrirtækið enn frekar. „Við höfum verið að horfa á að fyrirtæki hafi verið að sameinast, ekki síst í sjávarútvegi og við erum að gera það sama. Við ætlum okkar að búa til sterkari einingu og geta þannig boðið betri þjónustu og vörur á hagstæðara verði. Það eru ýmis sóknarfæri sem við getum nýtt betur með þessu skipulagi.“ Aðspurður segir Kristján að Eyki eigi eftir þessar breytingar 100% í Hátækni, Ísmar og Radíómiðun, 67% í Íslenskum fjarskiptum en Nýherji á um 33% og svo 50% í TeleServe. Hluthafar Eykis eru um 25 talsins. Stærstu hluthafarnir eru Kristján Gíslason, stjórnarformaður Eykis, með 27,2%, Olíuverslun Íslands hf. með 16%, Eagle Investment Holding SA með 9,5%, Talenta-Hátækni með 8% og Kaupþing Lúxemborg með 6,4% hlut. Þá eiga lykilstarfsmenn og stjórnendur hluti í félaginu. Íslands- banki-FBA leiddi samningaviðræður fyrirtækjanna, ásamt því að annast aðra milligöngu í þessum viðskiptum. Samanlögð velta 1,8 milljarðar Hátækni, Íslensk fjarskipti, Ísmar, Radíómiðun og Teleserve stofna Eyki hf. LYFJAFYRIRTÆKIÐ GlaxoSmith- Kline og Lyfjaverslun Íslands hf. hafa gert samning um dreifingu á vörum þess fyrrnefnda. Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri GlaxoSmithKline, og Sturla Geirs- son, framkvæmdastjóri Lyfjaversl- unar Íslands, handsöluðu samning fyrirtækjanna á föstudag. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að GlaxoSmithKline sé stærsta lyfjafyrirtæki veraldar eft- ir sameiningu lyfjafyrirtækjanna GlaxoWellcome og SmithKline Beecham og í hópi allra stærstu fyrirtækja heims. Áætluð sala þeirra hér á landi á árinu nemi hátt í sjö hundruð milljónum króna. Morgunblaðið/Jim Smart Semja um dreifingu Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri GlaxoSmithKline, og Sturla Geirsson, framkvæmdastjóri Lyfjaverslunar Íslands. GlaxoSmithKline og Lyfjaverslun Íslands ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóðurinn hf. hefur keypt 800.000 krónur að nafnverði eða 20% hlut í Þekking- arhúsinu ehf. að því er kemur fram í tilkynningu til Verðbréfaþings Ís- lands. Þekkingarhúsið ehf. hefur hafið undirbúning á byggingu tæknigarðs á Urriðarholti í landi Garðabæjar. Landið er í eigu Menningar- og líknarsjóðs Oddfell- ow-reglunar og hefur verið gengið frá viljayfirlýsingu á milli aðila um undirbúninginn. Hluthafar í félag- inu auk Hugbúnaðarsjóðsins eru Þyrping, GoPro – Landsteinar og félag í eigu Sigurðar Gísla Pálma- sonar og Jóns Pálmasonar. Gunnar V. Engilbertsson, fram- kvæmdastjóri Íslenska hugbúnað- arsjóðsins, segir að kaupgengi hlut- arins í Þekkingarhúsinu sé trúnaðarmál í bili, málið sé enn á tiltölulega viðkvæmu stigi. Aðspurður segir Gunnar að grunnhugmyndin að Þekkingarhús- inu sé að koma á fót sérstöku húsi fyrir fyrirtæki í þekkingariðnaði. Stefnan sé að byggja upp umhverfi sem henti slíkum fyrirtækjum og menn kannist við erlendis frá. Ekki sé beinlínis um frumkvöðlasetur að ræða, þetta muni ekki bara henta smáum fyrirtækjum heldur einnig hinum stærri. Menn sjái fyrir sér að það sé gott fyrir viðskipti fyr- irtækja sem starfa í svipuðum geira að vera nálægt hvert öðru. Þetta eigi ekki einna síst við í þekking- argeiranum þar sem hugmynda- vinna sé mikilvæg og því nauðsyn- legt að skapa jákvætt og hvetjandi andrúmsloft. Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf. Kaupir fimmtung í Þekkingarhúsinu FULLTRÚAR líftæknifyrirtækis- ins BioStratum Inc. og japanska lyfjafyrirtækisins KOWA Ltd. skrifuðu hinn 18. janúar síðastlið- inn undir samning um þróun, markaðssetningu og sölu á lyfinu Pyridorin í Japan, Taívan, Kína og Kóreu. Jón Ingi Benediktsson, framkvæmdastjóri MP BIO hf., segir að samningurinn skipti tölu- verðu máli fyrir MP BIO hf. því um 50% af eigum félagsins séu bundin í BioStratum. Í tilkynningu frá MP BIO hf. segir að samningur BioStratum og KOWA sé mikilvægur áfangi fyrir BioStratum varðandi þróun Pyri- dorins og muni koma til með að tryggja fyrirtækinu allt að 25 milljónir bandaríkjadala í áfanga- greiðslur auk 14% af sölutekjum eftir að lyfið er komið á markað. Í tilkynningunni kemur fram að Pyridorin er það lyf BioStratum Inc. sem lengst er komið í rann- sóknum og byggist á sérþekkingu vísindamanna fyrirtækisins á eig- inleikum grunnhimnu líkamans (Basal lamina). Í dýratilraunum hefur verið sýnt fram á að lyfið dragi úr myndun nokkurra efna sem geta valdið alvarlegum nýrna- bilunum hjá sykursjúkum. Pyrid- orin er um þessar mundir í öðrum þætti klínískra prófana af þremur. Áhugi á líftækni- fyrirtækjum með vörur Jón Ingi segir að samningur BioStratum og KOWA sé vonandi fyrsti samningurinn af mörgum um lyfið Pyridorin. Flest lítil líf- tæknifyrirtæki stefni að því að gera samninga af þessu tagi við stór lyfjafyrirtæki. Pyridorin sé það lyf sem komið sé lengst hjá BioStratum en fjöldi einkaleyfa fyrirtækisins sé á þriðja tug. „BioStratum er öflugt félag sem er í því að þróa vörur,“ segir Jón Ingi. „Áhugi fjárfesta hefur verið að færast meira yfir á þau félög sem eru með vörur en eru ekki ein- göngu í því að raðgreina og skaffa upplýsingar.“ MP BIO hf. á 9,25% heildarhlutafjár í BioStratum Inc., eða 1.480.000 hluti. Samkvæmt árshlutauppgjöri 30. september 2000 var bókfært verð á eignarhlut MP BIO hf. 786 milljónir króna og er BioStratum langstærsta eign félagsins. Lokaverð MP BIO hf. á Verð- bréfaþingi Íslands í gær var 1,40. Mikil áhrif á MP BIO hf. BioStratum gerir samning við KOWA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.