Morgunblaðið - 23.01.2001, Síða 39

Morgunblaðið - 23.01.2001, Síða 39
sjálfssnjall (self smart) og um- hverfisnjall (nature smart). Einstaklingar eru mismunandi öflugir í hverri greind og styrkleiki í sömu greind getur birst á mis- munandi hátt. Tveir einstaklingar sem báðir hafa ræktað með sér rýmisgreind raðast í ólíka starfs- hópa, verða t.d. myndlistarmenn eða flugmenn. Hreyfigreindin gef- ur af sér t.d. íþróttafólk, gullsmiði og skurðlækna. Mikilvægt er að skólinn komi til móts við þessar gáfur nemendanna, og að nemend- ur læri um sjálfan sig, í hverju þeir eru sterkir og í hverju veikir, reyni síðan að efla hvort tveggja. Ljóst er af þessu að skrifleg próf henta ekki öllum. „Gardner er ekki hrifinn af skriflegum prófum,“ segir Erla, „hann telur betra að safna saman allskonar vinnu og upplýsingum í möppu og meta þannig vinnuferl- ið.“ Hún telur að sú aðferð gæti t.d. hentað vel í grunnskólum. Hún tel- ur einnig að notkun fjölgreindar- kenningarinnar geti unnið gegn námsleiða nemenda og þar af leið- andi brottfalli í framhaldsskólum. Niðurstaðan hér er að fjöl- greindarkenningin virðist vera gott tæki, m.a. til þess að skapa fjölbreytileika í kennsluháttum, til að gera skóla sanngjarnari gagn- vart ýmiss konar gáfum nemenda og til að auka námsgleði nemenda.              !"#$%&'"$$#$! !&%$" MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 39 Sóknarfæri í Evrópusamvinnu Ekki er lengur deilt um að Íslend- ingar hafa haft margháttaðan ávinn- ing af Evrópska efnahagssvæðinu. EES-samningurinn tók einnig til margra sviða og eiga Íslendingar t.a.m. aðild að tilteknum sam- starfsáætlunum og verk- efnum á vegum Evrópusambandsins. Miklir möguleikar liggja í slíkum verkefnum fyrir íslenskt atvinnulíf og er verkefninu „Sóknarfæri í Evr- ópusamvinnu“ ætlað að auðvelda að- gengi að slíkum upplýsingum. Að samantekt þessari standa Euro Info- skrifstofan á Íslandi, Samtök at- vinnulífsins og iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytið. Allar nánari upplýsingar: http://www.icetrade.is/euroinfo http://www.sa.is Endurmenntun  SÓKRATES/COMENÍUS 2 – Styrkir veittir til að koma á endur- menntunarnámskeiðum fyrir kenn- ara og þróa námsgögn. Samstarf a.m.k. 3 stofnana frá 3 löndum.  SÓKRATES/COMENÍUS 2 – Veittir styrkir til kennaraháskóla a.m.k. þriggja stofnana í þremur löndum til að koma á samstarfsneti um starfsþjálfunar- námskeið fyrir verðandi kennara. Fullorðins- fræðslu- og endurmenntunarstofn- anir SÓKRATES/GRUNDTVIG – Styrkir veittir til samstarfsverkefna fullorðinsfræðslustofnana. Farið er fram á samstarf a.m.k. þriggja stofn- ana frá þrem löndum. Umsóknar- frestur rennur út 1. mars nk. Um- sóknareyðublöð er að finna á slóðinni: http://www.ask.hi.is.Nánari uppl. í síma: 525-4311/-5853 og á www.icetrade.is. Ný sóknarfæri Lífvísindaáætlun ESB auglýsir eftir nýrri tegund umsókna, svokall- aðra Integrated projects in „genom- ics and human health“. Þessi nýjung er gerð til að styrkja erfðarannsóknir í Evrópu og gerð í beinu framhaldi af árangri af raðgrein- ingu erfðamengis mannsins, auk þess að vera tilraun með það form rann- sókna (Integrated projects) sem áætlað er að notað verði í vaxandi mæli í 6. rammaáætluninni.Umsókn- ar- og matsferlar verða líka breyttir frá því sem nú er. Umsóknarfrestur er til 9. febrúar nk. Nánari upplýs- ingar um þátttöku og hvar hægt er að fá aðstoð er að finna á vef KER: www.evropusamvinna.is. Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál Umboðs- og heildverslun Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Panelplötur Heildarlausnir fyrir verslanir ótal uppsetningamöguleikar Netverslun - www.isold.is www.mbl.is skólar/námskeið myndmennt ■ MYND-MÁL myndlistaskóli Málun, teiknun Undirstöðuatriði og tækni. Byrjendur og framhaldsfólk. Upplýsingar og innritun frá kl. 15—21 alla daga í símum 561 1525 og 898 3536. Rúna Gísladóttir, listmálari. tungumál Enskunám í Englandi Bjóðum enskunám við einn virtasta málaskóla Englands. Skólinn sér þér fyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjöl- skyldu. Um er að ræða alhliða ensku 18 ára og eldri, viðskiptaensku og ungl ingaskóla í júlí og ágúst. Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdóttir sími 862 6825 eftir kl. 18:00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.