Morgunblaðið - 23.01.2001, Síða 71

Morgunblaðið - 23.01.2001, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 71 DAGBÓK Mikill afsláttur Hverfisgötu 78, sími 552 8980 Útsala Opið frá kl. 8.00–19.00 Góðar vörur LAUGAVEGI 36 30% verðlækkun á öllum gleraugnaumgjörðum & gleri. Opnaðu augun                     Útsala! 10—50% afsláttur Úlpur Kápur Jakkar Pelskápur líta út sem ekta Opið laugardaga frá kl. 10—16    Mörkinni 6, sími 588 5518 LJÓÐABROT Fyrstu vordægur Ljósið loftin fyllir, og loftin verða blá. Vorið tánum tyllir tindana á. Dagarnir lengjast, og dimman flýr í sjó. Bráðum syngur lóa í brekku og mó. Og lambagrasið ljósa litkar mel og barð. Og sóleyjar spretta sunnan við garð. Þorsteinn Gíslason STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þótt þú kunnir vel við þig í fjölmenni hefur þú óvenju- ríka þörf fyrir að vera einn með sjálfum þér. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Varastu að láta lítilmótlegar deilur samstarfsmanna þinna ná til þín. Þegar rykið fellur muntu standa uppi með hreinan skjöld. Naut (20. apríl - 20. maí)  Stundum verða manni á mis- tök og þá er ekki um annað að ræða en axla ábyrgðina, læra af reynslunni og nýta sér hana til frekari þroska. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú stefnir í einhvern árekstur á næstunni og ættir því að búa þig undir einhver átök því þannig átt þú alla mögu- leika á að sigrast á erfiðleik- unum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú hefur skuldbundið sjálfan þig til stórra hluta og ættir nú að segja stopp hvað þetta snertir. Taktu þér tíma til þess að hugsa hlutina vand- lega í gegn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þótt það sé afskaplega freist- andi að leggja orð í belg skaltu halda aftur af þér og láta aðra um það að leysa málin að þessu sinni. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Láttu aðra njóta vafans jafn- vel þótt þeir sýni þér ekki þá sömu tillitssemi. Átök innan fjölskyldunnar munu leysast farsællega af sjálfu sér. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Gerðu fyrst hreint fyrir þín- um dyrum áður en þú gefur þig út sem þann er getur leyst allra vandræði. Láttu ekki drauga úr fortíðinni draga úr þér kjarkinn. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert nú ekki heppilegasti maðurinn til þess að bjarga heiminum á meðan þú getur ekki einu sinni skipulagt þitt eigið líf. Taktu til í þínum eig- in ranni. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er mikill styrkur fólginn í því að þekkja veikleika and- stæðingsins. Gættu þess að falla ekki í þá freistni að sýna ódrengskap. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur nú alla burði til að standa af þér samkeppni frá samstarfsmönnum þínum og átt því að hefjast óhræddur handa tafarlaust. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Loksins ferðu að uppskera laun erfiðis þíns. Um leið og þú baðar þig í sólinni skaltu muna eftir þeim sem hafa hjálpað þér að ná takmark- inu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt þér finnist þú horfa fram á endalaust verkefni er end- irinn eigi að síður skammt undan. Í trausti þess er þér óhætt að halda áfram. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SVEIT Subaru vann Reykjavíkurmótið, sem lauk á sunnudag eftir 21. umferð af 16 spila leikjum. Sveitin er skipuð marg- reyndum landsliðsmönn- um: Jóni Baldurssyni, Sig- urði Sverrissyni, Aðal- steini Jörgensen, Sverri Ármannssyni, Þorláki Jónssyni og Matthíasi Þor- valdssyni. Í öðru sæti varð sveit Ferðaskrifstofu Vest- urlands – fjögurra manna lið undir forystu Karls Sig- urhjartarsonar, en með honum spiluðu sonur hans Snorri, Sævar Þorbjörns- son og Stefán Jóhannsson. Sveit Þriggja Frakka varð í þriðja sæti. Að baki er stíf törn í hálfan mánuð og mörg skemmtileg spil. Hér er eitt úr sautjándu um- ferð, þar sem fram- kvæmdastjóri Bridssam- bands Íslands, Stefanía Skarphéðinsdóttir, fann fallega vinningsleið í fjórum hjörtum sem fóru niður á flestum borðum: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 853 ♥ K9 ♦ ÁD732 ♣ 1083 Vestur Austur ♠ ÁKD107 ♠ G64 ♥ 75 ♥ D104 ♦ 94 ♦ KG1085 ♣ D764 ♣ G9 Suður ♠ 92 ♥ ÁG8632 ♦ 6 ♣ ÁK52 Stefanía var í suður, en eiginmaður hennar og makker, Aðalsteinn Sveinsson, í norður. Í and- stöðunni voru Guðmundur Sv. Hermannsson og Björn Eysteinsson. Stefanía vakti á hjarta og vestur ströglaði á spaða. Síðan lá leiðin upp í fjögur hjörtu. Vörnin byrjaði á því að spila þrisvar spaða. Stef- anía trompaði og tók strax trompin í þremur umferð- um með svíningu. Spilaði svo laufás og smáu laufi að blindum! Vörnin átti ekkert svar við þeim leik. Ef vestur lætur lítið lauf lendir austur inni á gosann og verður að spila tígli upp í ÁD. Og ekki er betra að vestur hoppi upp með lauf- drottningu og felli gosa makkers. Snotur spilamennska sem fór fram hjá mörgum sagnhafanum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 60ÁRA afmæli. Sextug-ur er í dag, þriðju- daginn 23. janúar, Garðar Rafn Sigurðsson, veitinga- maður, Bakkavör 11, Sel- tjarnarnesi. Hann tekur á móti gestum í veitingahúsi sínu, Laugavegi 72, kl. 19–22 á afmælisdaginn. 60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 23. janúar, verður sextugur Elvar Ingason, málara- meistari. Hann er staddur erlendis ásamt fjölskyldu sinni. STAÐAN kom upp á Skák- þingi Reykjavíkur, sem stendur yfir nú um stundir. Hvítu mönnunum stýrði Arnar E. Gunnarsson (2.285) gegn Jónasi Jónas- syni (1.855). 48. g7! Rf7 48. ... Hxg7 hefði litlu breytt þar sem hvítur mátar engu að síður með 49. Bh7# 49. Bh7# Staða efstu manna eftir 7 umferðir er þessi: 1. Björn Þorfinnsson, 6½ vinningur. 2. Benedikt Jón- asson, 5½ v. 3. Sævar Bjarnason, 5 v. og frestuð skák. 4.–10. Jón Viktor Gunnarsson, Arnar Gunn- arsson, Sigur- björn Björns- son, Sigurður Páll Stein- dórsson, Dav- íð Kjartans- son, Helgi Jónatansson og Róbert Harðarson, 5 v. 11. Stefán Kristjánsson, 4½ v. og frestuð skák. Corus-skák- mótið er í fullum gangi en staðan eftir 7 umferðir var þessi: 1. Alexei Shirov, 5½ vinningur af 7 mögulegum. 2.–3. Garry Kasparov og Vladimir Kramnik, 5 v. 4. Alexander Morozevich, 4½ v. 5.–6. Michael Adams og Viswanathan Anand, 4 v. 7. Vassili Ivansjúk, 3½ v. 8.– 10. Jan Timman, Peter Leko og Loek Van Wely, 3 v. 11.–12. Veselin Topalov og Alexei Fedorov, 2½ v. 13. Jeroen Piket, 2 v. 14. Sergei Tivjakov, 1½ v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík       Með morgunkaffinu Ef við flýtum okkur þá komum við bara nokkrum mínútum of seint á stoppistöðina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.