Morgunblaðið - 23.01.2001, Qupperneq 80

Morgunblaðið - 23.01.2001, Qupperneq 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. STJÓRN Íslensks harðviðar ehf. hefur óskað eftir að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Ákvörðun um þetta var tekin í kjölfar þess að Byggðastofnun synjaði fyrirtækinu um fjárhags- aðstoð. Um 170 milljónir króna hvíla á Íslenskum harðviði og eru stærstu kröfuhafar Byggðastofnun og Húsavíkurkaupstaður. Fyrirtækið Íslenskur harðviður var stofnað á árinu 1999 í kjölfar gjaldþrots Aldins sem varð sam- hliða því að Kaupfélag Þingeyinga hætti starfsemi. Íslenskur harðvið- ur hefur flutt trjáboli frá Ameríku, þurrkað þá og unnið og selt til meginlands Evrópu og á innlendan markað. Stjórn Íslensks harðviðar óskaði eftir aðstoð frá Byggðastofnun, þ.e. auknu hlutafé, láni, eftirgjöf lána að hluta og veðbandalausn. Þegar stjórn Byggðastofnunar tók erindið til skoðunar lá fyrir að stjórn Nýsköpunarsjóðs hafði hafnað þátttöku í hlutafjáraukn- ingu. Kristinn H. Gunnarsson, for- maður stjórnar Byggðastofnunar, sagði að það væri mat stjórnarinn- ar að arðsemi rekstrar samkvæmt rekstraráætlun væri of lítil miðað við áhættu. Auk þess væru rekstr- arvextir vantaldir í áætlun sem minnkaði enn arðsemina. Mikið tap hefði verið hjá fyrirtækinu. Óvissa væri um tekjuflæði næstu mánuði, meðal annars með tilliti til lítils hráefnislagers. Það gæti valdið viðbótarfjárþörf síðar. Kristinn sagði að stjórn Byggða- stofnunar væri þeirrar skoðunar að áætlanir um aukningu sölutekna væru óraunhæfar. Miðað væri við að salan næmi 90 þúsund fermetr- um á þessu ári og 180 þúsund fer- metrum á því næsta. Framleiðslan hefði hins vegar aldrei verið meiri en 55 þúsund fermetrar á ári. Kristinn sagði að útistandandi lán Íslensks harðviðar hjá Byggða- stofnun væru 54 milljónir í dag og fyrirtækið hefði verið að fara fram á mikið viðbótarfjármagn. Stjórn Byggðastofnunar treysti sér ekki til að verða við þessari beiðni. Skuldar um 170 milljónir Hjalti Halldórsson, stjórnarfor- maður Íslensks harðviðar, sagði að stjórn fyrirtækisins hefði komið saman eftir að neikvætt svar Byggðastofnunar um fjármögnun lá fyrir á föstudag og samþykkt að leggja fram beiðni um gjaldþrota- skipti. Beiðnin hefði verið send Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Í kjölfarið hefði verið haldinn fundur með starfsmönnum þar sem þeim hefði verið kynnt ákvörðun stjórnar fyrirtækisins. Um tuttugu manns starfa hjá fyr- irtækinu. Hjalti sagði að undanfarnar vik- ur hefði verið unnið að því að end- urskipuleggja fjárhag fyrirtækis- ins og vilyrði fyrir um 35 milljóna króna hlutafjárframlagi hefði verið komið. Til viðbótar hefði verið far- ið fram á 35 milljónir frá Byggða- stofnun. Það fjármagn hefði hins vegar ekki fengist og því hefði þessi erfiða ákvörðun verið tekin. Hjalti sagði að skuldir Íslensks harðviðar væru um 170 milljónir og stærstu lánardrottnar Byggða- stofnun og Húsavíkurkaupstaður. Hann sagði að fyrirtækið ætti tals- verðar eignir, s.s. fasteignir, vélar, viðskiptakröfur og birgðir. Ekki lægi ljóst fyrir hvert endanlegt verðmæti þeirra væri. Hjalti sagð- ist vera sannfærður um að grund- völlur væri fyrir rekstri fyrirtækis af þessu tagi með réttri fjármögn- un. Íslenskur harðviður á Húsavík óskar eftir gjaldþrotaskiptum Skuldir fyrirtækisins um 170 milljónir kr. KENNARAR í Félagi framhaldsskólakennara samþykktu nýjan kjarasamning framhalds- skólakennara við ríkið með miklum mun. 969 sögðu já, 113 sögðu nei, 37 skiluðu auðu og tveir seðlar voru ógildir. 1.286 kennarar voru á kjörskrá og greiddi 1.121 atkvæði. Samningurinn var því sam- þykktur með 86,44% atkvæða þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, en samningar voru undirritaðir fyrir um tveimur vikum eftir átta vikna verkfall í framhaldsskólum. Elna Katrín Jónsdóttir, formaður FF, sagð- ist ánægð með niðurstöðuna enda væri hún mjög skýr. Á myndinni eru Hrafnhildur Krist- bjarnardóttir, starfsmaður FF, og Þórhallur Runólfsson kjörnefndarmeðlimur við talningu atkvæða. Þessa dagana keppast kennarar og nemendur við að klára haustönn sem skal lok- ið 2. febrúar. Morgunblaðið/Þorkell Samþykkt með miklum mun  Heildarlaun/6 ATKVÆÐAGREIÐSLA stendur yf- ir í Félagi flugumferðarstjóra um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslunni lýkur í kvöld og verða atkvæði talin á morgun, miðvikudag. Í Félagi flugumferðarstjóra eru tæplega 100 manns alls staðar á land- inu. Félagið hefur verið með lausa samninga frá því í byrjun nóvember og kjaradeilan hefur verið hjá ríkis- sáttasemjara frá því um miðjan þann mánuð, að sögn Lofts Jóhannssonar, formanns Félags flugumferðarstjóra. Loftur sagði að ef til verkfalls kæmi væri skylt að halda uppi lág- marksþjónustu og yrðu þá 32 að störfum samkvæmt listum þar að lút- andi. Fundur er boðaður í deilunni í dag hjá ríkissáttasemjara. Atkvæði greidd um verkfall Flugumferðarstjórar ANNARRI umræðu um öryrkja- frumvarpið svokallaða lauk á Alþingi á tólfta tímanum í gærkvöldi. Í at- kvæðagreiðslu var samþykkt með 33 atkvæðum gegn einu atkvæði Jó- hanns Ársælssonar, Samfylkingu, að vísa frumvarpinu til þriðju og síð- ustu umræðu. 21 þingmaður stjórn- arandstöðunnar sat hjá. Miðað er við að þriðja umræðan hefjist kl. 10.30 í dag og búist við að frumvarpið verði samþykkt sem lög síðar í dag. Engar breytingar voru gerðar á frumvarpinu milli fyrstu og annarrar umræðu. Minnihluti heilbrigðis- og trygginganefndar lagði til að frum- varpinu yrði vísað frá, m.a. vegna þess að hann taldi að það uppfyllti ekki dóm Hæstaréttar í máli Ör- yrkjabandalags Íslands og Trygg- ingastofnunar ríkisins. Sú tillaga var felld í atkvæðagreiðslu í gærkvöldi með 33 atkvæðum stjórnarliða gegn 22 atkvæðum stjórnarandstöðu. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, lauk um- ræðunni í gærkvöldi skömmu áður en frumvarpið fór til atkvæða- greiðslu. Taldi hann að margt hefði skýrst í umræðunni síðustu daga. M.a. hefði í henni orðið ljóst að dóm- ur Hæstaréttar væri ekki eins skýr og einfaldur og menn hefðu talið í upphafi. Ítrekaði hann þá afstöðu stjórnarinnar að með frumvarpinu væri verið að fullnægja dómi Hæsta- réttar. Stjórnarandstæðingar töldu á hinn bóginn að frumvarpið gengi á svig við dóminn og bryti þar með gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. ♦ ♦ ♦ Öryrkjafrumvarpið Þriðja um- ræða í dag  Alþingi/10
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.