Morgunblaðið - 10.02.2001, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 10.02.2001, Blaðsíða 57
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 57 UM helgina stendur Vaka fyrir fjölskylduskemmtun á stúdenta- görðunum. Tilefnið er að tengja líf- ið á görðunum við kosningabaráttu Vöku og kynna fyrir íbúunum nýj- ar áherslur Vöku í fjölskyldumál- um. Í dag hefst dagskráin klukkan 11.00 í samkomusalnum á 2. hæð á Vetrargörðum en á morgun sunnu- dag býður Vaka stúdentum og börnum stúdenta í bíó. Fjölskyldan og HÍ Vaka leggur áherslu á fjöl- skyldumál í kosningabaráttunni. Með tilliti til þess að mörg hundruð stúdentar hafa börn á framfæri er löngu kominn tími til að skoða vandlega allar þær leiðir sem kunna að auðvelda foreldrum að- gengi að fyrsta flokks námi. Meðal þess sem Vaka vill er að próftöflur séu tilbúnar við skrán- ingu, stundaskrár taki mið af eðli- legum vinnudegi, dagvistunar- plássum sé fjölgað og að opnuð sé matvöruverslun á háskólasvæðinu. Einnig vill Vaka auðvelda stúd- entum/foreldrum lífið utan venju- legs skólatíma. Þetta ætlar Vaka að gera m.a. með því að koma á barnfóstruvef þar sem foreldrar geta nálgast barnapössun á auð- veldari og aðgengilegri hátt en áð- ur hefur verið. Jafnframt vill Vaka nýta sér þá aðstöðu sem fyrir er og bjóða upp á leikfimi fyrir nýorðnar mæður og barnshafandi konur í leikfimihúsinu og koma á mömmu- og pabbamorgnum á stúdentagörð- unum. Vaka hefur einn munn og tvö eyru Háskólasamfélagið er stórt sam- félag. Ef það er eitthvað sem allir háskólastúdentar eiga sameigin- legt, fyrir utan það að vera í námi, þá er það að þeir eru ýmist í þann mund að flytjast að heiman, eða eru fluttir að heiman. Fjölskyldan skipar þannig stóran sess í lífi flestra stúdenta. Með fjölskylduhelginni vill Vaka vekja alla háskólastúdenta til um- hugsunar um málefni og möguleika fjölskyldunnar. Vaka sér tækifærið með fjölskylduhelginni á görðunum sem einstakt þar sem Vökufólk bú- sett á görðunum kemur til með að kynna málefni Vöku en um leið hlusta á og tileinka sér góðar hug- myndir stúdenta og auka þannig tengingu stúdenta við stúdentaráð. Vaka telur þessu hafa verið ábóta- vant í öll þau tíu ár sem Röskva hefur farið með völd. Fjölskylduhelgi Vöku á stúdentagörðunum Kjartan Örn Sigurðsson Höfundar eru allir í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ. Vökuhelgi Vaka vill, segja Kjartan Örn Sigurðsson, Inga Lind Karlsdóttir og Elmar Svavarsson að próftöflur liggi fyrir við skráningu í fög. Inga Lind Karlsdóttir Elmar Svavarsson MIKIÐ verið hefur rætt undanfarið á al- þingi heimalands míns, Japans, um hvort Jap- anir eigi að veita kosn- ingarétt til Kóreubúa og Kínverja sem bú- settir eru í Japan en af- ar þeirra og ömmur voru neydd til þess að verða japanskir ríkis- borgarar og að fara í stríð fyrir Japan fyrir 50-70 árum. Í þessum umræðum sögðu sumir þingmenn að það væri næstum eins og að selja föður- landið til útlendinga, að veita þeim kosningarétt. Mér fannst það sorglegt og móðgandi að heyra fulltrúa þjóðar minnar tala svona. Þeir velta hvorki fyrir sér hvað Jap- an hafi gert þessu fólk né viður- kenna ábyrgð sína á börnum og barnabörnum þess. Eins og svo oft áður gleymir gerandi illræðis því fljótlega. Þolandinn aldrei. Nú eru ný lög um útlendinga að fæðast á Íslandi. Ástæða þess að frumvarp um ný lög liggur nú fyrir er ekki aðeins fjölgun erlendra rík- isborgara að undanförnu, heldur einnig væntanleg breyting með því að Ísland verður aðili að Schengen- samkomulaginu í vor. Schengen- samkomulagið er í stuttu máli sagt ferðafrelsi milli ríkja Evrópusam- bandsins. Ríkisborgarar viðkomandi ríkja þurfa þá ekki lengur að fara í gegnum vegabréfaeftirlit. 15 ríki eru núna í ES, Bretland og Írland eru ekki búin að fullgilda samkomulagið um Schengen en Noregur og Ísland taka þátt í því, utan ES. Schengen-samkomulagið er fram- lengingarstefna ES. Að baki þess- arar stefnumótunar liggja að sjálf- sögðu efnahagslegar eða aðrar praktískar væntingar fyrir hvert og eitt aðildarríkjanna. Samtímis liggur þar gamla hugmyndin um að „Evr- ópa sé ein stór fjölskylda“. Hug- myndin er sú að Evrópulönd eigi margt sameiginlegt, eins og t.d. álf- una, sögu, kristinn menningargrunn o.s.frv. Í rauninni leggur stefnuskrá ES, sem var samþykkt rétt fyrir áramót, mikla áherslu á það að ES- ríki haldi „sameiginlegt gildismat“ fyrir hagsmuni þjóða og íbúa þess. Um leið og þessi fallegu orð falla, virðist aðgreining og mismunun gagnvart ríkjum utan Evrópusvæð- isins og íbúum þess aukast meira en áður. T.d. birtist jafnvel á Íslandi, sem er ekki aðili ES, skýr mismunun nú þegar á milli EES-ríkisborgara og þeirra sem eru frá löndum utan EES, eins og sést t.d. varðandi at- vinnuréttindi eða dvalarleyfi. Með Schengen-samkomulaginu má segja að þessi mismunun aukist með tilliti til ferðafrelsis. Auk þessarar „skipulöguðu“ mis- mununar breiðast einnig út staðal- myndir og hugmyndafræðileg mis- munun í Evrópu á þá leið að „Evrópa sé nafli aleimsins“ eða „allir frá „þriðja“ heiminum leiti að betri lífs- skilyrðum í Evrópu“. Ef einhver kemur frá landi utan Evrópu til ES- lands til að leita hælis, segir fólk strax „aa,ha, þú ert bara að flýja fá- tækt heimalands þíns. Því miður er hér ekkert pláss fyrir þig“. Þessar hugmyndir um að aðgreina sig frá öðrum svæðum á jörðinni eru þó að- eins jákvæð tálsýn fyrir íbúa ES- landa. Leiðir þetta viðhorf til betri fram- tiðar fyrir Evrópubúa? Mig langar til að spyrja; í fyrsta lagi, hefur „Evrópa“ eitthvað meiri þýðingu en önnur svæði jarðarinnar? Ef það er til eitthvað „sameiginlegt gildismat“ meðal evrópskra landa, á það ekki að gilda líka í öðrum svæðum utan Evr- ópu? Í öðru lagi er ES ekki upp- haflega samband á milli ríkja sem eru í jafnvægi bæði stjórnmálalega og efnahagslega? Það er ekki satt að ES dafni, heldur fá ríki ekki inn- göngu í ES nema efanahagur þeirra sé stöðugur heima fyr- ir. ES er nefnilega sjálfsverndarsamtök í eðli sínu. Fyrir 100 árum komu flest stærri Evr- ópuríki til Afríku eða Asíu. Þau sóttu hvorki um dvalarleyfi né um hæli, heldur gerðu þau löndin að nýlendum sínum. Þau létu íbúa þar læra tungumál sín, kenndu trú sína og byggðu upp iðnað sinn og efnahag heima fyrir á kostnað nýlendn- anna. Þessi kúgun og arðrán stóð yfir allt fram til loka seinni heimsstyrjaldarinnar. Kapp- hlaupið um nýlendurnar hafði líka áhrif í Japan. Til að standast sam- keppni við Evrópu tók einnig Japan margar nýlendur í Asíu og myndaði að lokum „Stóra-Austurasíusam- bandið“. Baráttan og brjálæðið í kringum nýlendurnar endaði að lokum með styrjöld. Evrópsk lönd fóru til baka til síns heima og flestar þjóðir í Afr- íku og Asíu urðu sjálfstæðar. Allt í einu voru þessi evrópsku lönd orðin verndarar lýðræðis og sjálfstæðis allra þjóða heimsins. Þetta er ekki aðeins saga. Þetta átti sér raunverulega stað á dögum afa okkar og ömmu. Afmörkunarstefna á einum stað skapar sams konar stefnu á öðru svæði. Þannig breiðast áhrifin smám saman út. Hvað kemur næst? Við getum ekki spáð um framtíðinaen við getum giskað á hana út frá reynslu okkar og sögu. Mér sýnist að leiðtogar vesturevr- ópskra landa hafi gleymt því sem þegar hefur gerst í löndum þeirra og lyfti upp hreinum höndum sínum. Er rétt að gera það? Er fortíðin bara fortíð? Hafa Evrópulönd, sérstak- lega sterk ríki eins og ES-ríki, engin tengsl lengur við það hvernig þ́riðjı́- heimurinn stendur núna? Hvað segir fólk í Afríku eða Asíu? Svona viðhorf eru ekkert annað en yfirlæti og sjálfsánægja. Ég er meðvitaður um að það er til- gangslaust fyrir einstakling eins og mig að vera á móti stefnu ES- ríkjanna. Það breytir engu. Engu að síður berum við líka ábyrgð og skyldu með okkur sjálfum, bæði sem einstaklingar og þegnar þessa lands. Ef við gefumst alveg upp af van- máttarkennd og þegjum, þá breytist lýðræðið í „skrílræði“. Þegar við les- um sögu seinni heimsstyrjaldarinn- ar spyrjum við oft; „Hverjir mót- mæltu Hitlar? Af hverju voru Japanir ekki á móti fasistastjórn sinni?“ Þessar spurningar geta snú- ist til okkar sjálfra hvenær sem er. Við verðum að vera vakandi fyrir því, að óréttlæti, mismunun og kúg- un á öðrum byrjar oftast smátt og smátt í okkar eigin höndum. Hvorki lýðræði né mannréttindi í Evrópu geta átt sér stað án þess að ábyrgð sé borin fyrir öðrum svæðum heimsins. Einnig stendur efnahagur í Evrópu ekki undir sér sjálfur án þess að hafa samband við önnur svæði heimsins. Það er ekki nóg að vita um þessi orð. Við verðum að hugsa og segja þessi orð. Því vil ég spyrja að lokum; er Evr- ópa nafli alheimsins? Evrópa – nafli alheimsins? Toshiki Toma Höfundur er prestur innflytjenda á Biskupsstofu. Mannréttindi Afmörkunarstefna á einum stað, segir Toshiki Toma, skapar sams konar stefnu á öðru svæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.