Morgunblaðið - 10.02.2001, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 61
MARGT gott getur hlotist af
ákvæðum í kjarasamningi Starfs-
mannafélags ríkisstofnana (SFR)
og ríkisins um fræðslustarf. Það
hefur sannað sig á mínum starfs-
vettvangi, þar sem gerður var sér-
stakur samningur 1998 á grund-
velli þessa ákvæðis þ.e. á milli
ÁTVR og SFR.
Efling fræðslustarfs byggist á
gagnkvæmum hag viðkomandi
stofnunar og starfsmanna. Í því
felst samkvæmt skilgreiningu í
samningnum:
Að hafa betra vald á starfi sínu
og starfsumhverfi.
Að aka framtíðarmöguleika á
vinnumarkaði
Að auka vellíðan og lífsfyllingu í
og utan vinnu.
Með sama hætti og hagur starfs-
manna er þannig skilgreindur felst
bættur hagur ríkisstofnunar með
fræðslustarfi í því:
Að geta þróað starfsemi sína og
veitt betri þjónustu.
Að starfsmenn hafi betra vald á
starfi sínu og starfsumhverfi.
Að byggja upp hvetjandi og já-
kvæð viðhorf innan stofnunar.
Fjölbreytt og
uppbyggjandi nám
Nú í vetur hafa verið námskeið
fyrir starfsmenn og sömuleiðis
starfsnám fyrir verslunarstjóra
ÁTVR. Ég leyfi mér að halda því
fram að hér sé um að ræða fjöl-
breytta menntun og mjög upp-
byggjandi námskeið á ýmsum svið-
um. Ýmislegt í náminu snýr að
fyrirtækinu og fræðum sem lúta að
því sérstaklega: Kynning á starfs-
reglum og lýsing á uppbyggingu,
vínfræði, gæðastjórnunarkerfi,
grunnatriði góðrar sölumennsku,
verslun og viðskipti, öryggismál,
tölvulæsi og internetið. Önnur
áhersluatriði úr kennslunni snúa
meira að starfsfólkinu, t.d. líkams-
beiting – fyrirbyggjandi aðgerðir,
vinnustaðamenning – sjálfsstyrk-
ing, að tala máli sínu, hversdagsleg
heimspeki, hagnýtar
aðferðir við að koma
máli sínu til skila,
réttindamál, félags-
mál, kjarasamningar,
vinnuvernd, streita
og fjölskylda.
Þessi námskeið
spanna þannig ótrú-
lega mikla breidd og
fyrirlesarar og leið-
beinendur eru margir
þjóðkunnir snillingar
á sínum sviðum. Hér
er hvergi nærri allt
upp talið, heldur
nefni ég hér nokkur
stikkorð til að gefa
vísbendingu um þá
fjölbreytni sem boðið er upp á hjá
okkur á námskeiðunum.
Framsýni ÁTVR –
til fyrirmyndar
Fræðslunámskeiðin
hjá ÁTVR eru einkar
áþreifanlegur vottur
um frjósemi samninga
stéttarfélags og við-
semjenda. Starfs-
mannafélag ríkisstofn-
ana hefur auðvitað
sjálft margháttaða
reynslu af eigin nám-
skeiðahaldi og fræðslu-
starfi. Nú kemur til
sögunnar kærkomin
viðbót með fræðslu-
starfi á vinnustað sem
skilar sér í ánægðari
einstaklingum, betri starfsanda á
vinnustöðum, bættum kjörum og
bættri þjónustu við viðskiptavini.
Ég tel að með þessu námskeiða-
haldi sem áreiðanlega verður fram-
hald á hafi ÁTVR verið að stíga
stórt skref í átt til framtíðar.
Fræðslustarf er lykillinn að bjartri
framtíð bæði fyrirtækja og starfs-
manna. Námskeiðahaldið hjá okk-
ur er því til vitnis um framsýni og
hagsýni – sem gagnast mun fyr-
irtækinu og starfsfólkinu um
ókomna tíð. Reyndar held ég að
reynslan af fræðslustarfinu hjá
okkur sýni að slíkt námskeiðahald
sem byggist á samstarfi stofnunar
og verkalýðsfélags eigi sér mikla
framtíð. Það er því sérstök ástæða
til að þakka SFR og ÁTVR fyrir
fyrirmyndarfræðslustarf.
Fræðslustarf til
fyrirmyndar
Þorleifur
Óskarsson
Höfundur er starfsmaður dreifing-
armiðstöðvar ÁTVR á Stuðlahálsi.
Starfsnám
Fræðslunámskeiðin hjá
ÁTVR, segir Þorleifur
Óskarsson, eru einkar
áþreifanlegur vottur um
frjósemi samninga
stéttarfélags og
viðsemjenda.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
SLIM-LINE
dömubuxur frá
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680