Morgunblaðið - 23.03.2001, Blaðsíða 27
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 27
Í RÆÐU Guðmundar Haukssonar, stjórnar-
formanns Kaupþings á aðalfundi félagsins í
gær, kom meðal annars fram að síðasta ár
hefði einkennst af auknum umsvifum á öllum
sviðum í rekstri Kaupþings. Útrás bankans
hefði verið í algleymingi og með skráningu
hans á Verðbréfaþing Íslands hefði verið stig-
ið stórt skref til eflingar hans. Samhliða mikl-
um vexti hefði bankinn skilað góðri afkomu og
árið verið enn eitt metárið í rekstri bankans
„Arðsemi Kaupþings hefur verið mikil und-
anfarin ár. Á síðustu fimm árum hefur arð-
semi eiginfjár verið á bilinu 30–60%. Aukin
umsvif Kaupþings endurspeglast vel í stækk-
un efnahagsreiknings. Niðurstöðutala hans
var 23,7 milljarðar í byrjun árs en 62,5 millj-
arðar í lok þess. Eigið fé bankans jókst veru-
lega á árinu og fór úr 1,9 milljörðum í 4,6
milljarða. Af þessari yfirferð um fjárhagslega
stöðu félagsins má vera ljóst að bankinn hefur
stækkað og um leið styrkst mikið. Skráning
Kauþings á Verðbréfaþingi Íslands í október
síðastliðnum markaði mikil tímamót í rekstri
bankans. Í útboðinu kom berlega í ljós að fjár-
festar eru áhugasamir um að fjárfesta í Kaup-
þingi en mjög góð þátttaka var í útboðinu og
tæplega 18.000 manns skráðu sig fyrir hlut í
bankanum. Stjórnendum Kaupþings er ljóst
að styrkur bankans liggur ekki fyrst og
fremst í stærð hans og eignum heldur í hæfu
og framsæknu starfsfólki og skýrri stefnu í
rekstri. Viðvarandi velgengni félagsins und-
anfarin ár hefur beint sjónum margra að
starfsmönnum Kaupþings. Við vitum að marg-
ir þeirra eru eftirsóttir starfskraftar og meðal
annars vegna þess voru gerðir kaupréttar-
samningar við starfsmenn samhliða útboð-
inu.“
Í stjórn Kaupþings voru kosnir Guðmundur
Hauksson, Geirmundur Kristinsson, Gísli
Kjartansson og Gunnar Pálsson og Tryggvi
Jónsson sem komu nýir inn í stjórnina.
Arðsemi Kaup-
þings 30 til 60%
síðustu fimm árin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mætt var fyrir hátt í 90% hlutafjár á aðalfundi Kaupþings.
INNAN fyrirtækja sem fengu út-
hlutað rekstrarleyfi fyrir þriðju kyn-
slóðar farsímakerfum á síðasta ári
virðist ekki ríkja sama gleði og eft-
irvænting nú og þá. Aftenposten
greinir frá því að forsvarsmenn
þeirra fjögurra fyrirtækja sem
fengu leyfi í Noregi séu nú mest upp-
teknir af því hversu lengi markaðs-
setning 3G-síma. Öll fjögur fyrirtæk-
in, Telenor, NetCom, Tele2 og
Broadband Mobile, hafa lofað að
hefja uppbyggingu þriðju kynslóðar
farsímanets á þessu ári en loforð um
útbreiðslu eru mismunandi. Fyrir-
tækin áttu fund með fulltrúum
norska samgönguráðuneytisins í
fyrradag og fyrir fundinn hélt Aften-
posten því fram að sérstaklega
sænska fyrirtækið Tele2 vildi kom-
ast að samkomulagi við ráðuneytið
um að fresta uppbyggingunni. Fyr-
irtækið hefur formlega óskað eftir
slíkum fresti við uppbygginguna í
Svíþjóð. Á fundinum sjálfum var
málið ekki tekið fyrir heldur snerust
umræðurnar á fundinum einungis
um samvinnu fyrirtækjanna við upp-
byggingu farsímanetsins. Margt
bendir til þess að 3G-símar verði
ekki komnir á markað fyrr en seinni
hluta næsta árs.
Vilja fresta
uppbyggingu
þriðju kynslóð-
ar farsímanets
Ósló. Morgunblaðið.
SLÆMT efnahagsástand í Japan hef-
ur ekki haft mikil áhrif á sölu íslensku
fisksölufyrirtækjanna á Japansmark-
að að því er Morgunblaðið kemst
næst og hefur markaðurinn þar hald-
ist tiltölulega góður. Mikilvægustu
tegundirnar sem fara á Japansmark-
að eru loðna, karfi af Reykjaneshrygg
og einnig grálúða. Miklar sveiflur
hafa verið í sölu á loðnu til Japans
enda sveiflur á hráefnishliðinni hér
heima.
Japansmarkaður hefur borgað
best fyrir stóran, rauðan heilfrystan
karfa. Markaðurinn fyrir karfa og
neysla á honum í Japan hefur verið
nokkuð stöðug þrátt fyrir slakann í
japanska hagkerfinu. Hins vegar er
ljóst að gengisfelling á jeni gæti haft
mun alvarlegri áhrif fyrir íslensku
sölusamtökin og þróun gengis er því
helsta áhyggjuefnið. Verðið fyrir
karfann hefur haldist óbreytt í jenum
en andstaða er gegn verðhækkunum
innanlands og ef jenið fellur má telja
nokkuð víst að menn hafa mjög tak-
markað svigrúm til þess aðbæta sér
það upp með verðhækkunum.
Lítil áhrif
á sölu á
fiskafurðum
♦ ♦ ♦