Morgunblaðið - 23.03.2001, Qupperneq 67
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 67
✔ Margar stærðir og gerðir
✔ Fáið senda bæklinga
✔ Leitið tilboða
Sumarhús frá Norður-Noregi
FEGURÐARSAMKEPPNI Aust-
urlands verður haldinn í Hótel
Valaskjálf laugardaginn 24. mars.
Er Fegurðarsamkeppni Austur-
lands fyrsta forkeppni sem haldin
er þetta árið um tililinn Ungfrú Ís-
land.
Í ár taka átta stelpur þátt og
koma víðsvegar af Austurlandi. Á
mánudag var orðið uppselt á
keppnina og til að koma á móts við
þá sem ekki fengu miða verður
brugðið á það ráð að varpa krýn-
ingunni upp á tjald á annarri hæð
Hótel Valaskjálfs. Eftir keppnina
munu hljómsveitin Land og synir
stíga á svið og halda gleðinni áfram.
Stúlkurnar sem keppa eru: Anna
Dögg Einarsdóttir Stöðvarfirði,
Berglind Árnadóttir Vopnafirði,
Hildur Jóna Gunnlaugsdóttir Seyð-
isfirði, Hildur Þórisdóttir Seyðis-
firði, Hrefna Helgadóttir Vopna-
firði, Laufey Sigurðardóttir Nes-
kaupstað, Margrét Sæný Gísla-
dóttir Neskaupstað og Oddný
Ólafía Sævarsdóttir Egilsstöðum.
Átta stúlk-
ur keppa
um titilinn
Fegurðarsamkeppni
Austurlands
AMNESTY-hátíð verður haldin á
Gauk á Stöng laugardaginn 24. mars
og hefst kl. 20.
Dagskráin er fjölbreytt og fram
verður borinn mexíkóskur matur.
Miðinn kostar 2.500 kr. Hljómsveitin
Spaðar leikur fyrir dansi. Miðar eru
seldir á skrifsofu Íslandsdeildar
Amnesty International í Hafnar-
stræti 15.
Amnesty-hátíð
á Gauknum
AÐALFUNDUR Parkinsons-
samtakana á Íslandi verður hald-
inn í safnaðarheimili Áskirkju
laugardaginn 24. mars kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar og skemmtiatriði.
Allir velkomnir og gestir velkomn-
ir.
RÁÐSFUNDIR I. og II. ráðs ITC
verða haldnir laugardaginn 24.
mars í Kiwanishúsinu við Engja-
teig. Skráning hefst kl. 12 og
félagsmálafundir verða settir kl.
13. Á dagskrá eru m.a. ræðu-
keppnir milli deilda og kosningar
nýrra stjórna.
Sameiginlegur fundur hefst kl.
17 þar sem Kristjana Milla Thor-
steinsson og Kristín Dagbjarts-
dóttir flytja fræðsluerindi. Þessum
sameiginlega fundi lýkur svo með
hátíðarkvöldverði sem hefst kl. 19.
Þar verða kynnt úrslit úr ræðu-
keppnum og nýkjörnir stjórnar-
menn verða settir í embætti. Að
lokum verður slegið á létta
strengi. Ráðsfundirnir eru öllum
opnir.
Ráðsfundir á
vegum ITC
OPINBER fundur um Kúbu,
bækur og Svínaflóainnrásina verð-
ur haldinn að Skólavörðustíg 6b,
bakhúsi, föstudaginn 23. mars kl.
17.30. Fjörutíu ár eru síðan al-
þýðufólk á Kúbu lærði að lesa og
fjörutíu ár síðan Kúba hratt innrás
Bandaríkjanna. Sigurlaug S.
Gunnlaugsdóttir, einn af aðstand-
endum sósíalíska fréttablaðsins
Militant, var á Kúbu í febrúar á
10. alþjóðlegu bókasýningunni í
Havana. Hún greinir frá atburð-
um, umræðum og bókum sem
komu út í tengslum við sýninguna
og hafa þýðingu nú fyrir baráttuna
í heiminum.
Fundinn halda aðstandendur
fréttablaðsins Militant og Ungir
sósíalistar.
NÝR Audi A4 verður frumsýndur
hjá Heklu laugardaginn 24. mars.
Bíllinn er nýr frá grunni, stærri og
rúmbetri en áður. Í fréttatilkynn-
ingu segir: „Hann er sérlega vel bú-
inn varðandi staðalbúnað, sem dæmi
má nefna sex öryggispúða, þar á
meðal Sideguard-höfuðöryggis-
púða, sem felldir eru inn í þakbrún
farþegarýmisins og vernda höfuð og
efri hluta líkamans komi til árekst-
urs frá hlið. Fimm höfuðpúðar og
fimm þriggja punkta öryggisbelti
eru staðalbúnaður, en einnig má
nefna tölvustýrt loftfrískunarkerfi
(air conditioning), upplýsingatölvu
og rafhituð framsæti. ESP-stöð-
ugleikakerfi, ABS-læsivörn með
átaksjöfnun og spyrnustýring eru
einnig hluti staðalbúnaðar. A4 er í
boði með nýrri tveggja lítra vél
ásamt 1,8 lítra túrbóvél og 1,6 lítra
vél. Í fyrsta sinn er bíll í þessum
stærðarflokki í boði með stiglausa
multitronic-sjálfskiptingu, sem ræð-
ur við mikið afl og snúningsvægi
(300 Nm). Ökumaðurinn hefur val á
stiglausri sjálfskiptingu eða hand-
skiptingu í sex þrepum.“ Samhliða
því að frumsýna þennan nýja A4 á
laugardaginn verða sýndir tveir
aðrir bílar frá Audi.
Í tilefni frumsýningarinnar á
Audi A4 eru sýningarsalir Heklu
opnir á laugardaginn frá klukkan 10
til 17.
Nýr Audi A4 frum-
sýndur hjá Heklu
OPNUÐ hefur verið tískuverslunin
Zik Zak, Brekkuhúsum 1 í Graf-
arvogi. Eigendur verslunarinnar
eru hjónin Berglind Ásgeirsdóttir
og Ómar Gunnarsson.
Í fréttatikyningu segir að boðið
sé upp á skemmtilegan tískufatnað
fyrir konur á öllum aldri. Verslunin
sé hin glæsilegasta og sé ætlunin að
bjóða upp á góðar vörur á lágu
verði.
Verslunin er opin virka daga frá
10–18, föstudaga frá 10–19 og á
laugardögum frá 10–12.
Berglind Ásgeirsdóttir og Rósa María Waagfjörð starfsmaður.
Ný tískuverslun
í Grafarvogi
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur veit-
ir á hverju ári styrki til ýmissa
verkefna á sviði menntamála. Á
árinu 2001 eru styrkþegarnir 18 en
heildarupphæð styrkjanna er að
þessu sinni 15.750 000.
Styrki hlutu:
Alnæmissamtökin á Íslandi. Ingi
Rafn Hauksson. Fræðslu og for-
varnarstarf í grunnsk. Rvk.100.000
kr., Hollráð. Þýðing og stöðlun
áhugasviðsmælitækis IDEAS fyrir
efstu bekki grunnskóla 200.000
kr., Íþróttafélag fatlaðra. Sund-
kennsla fatlaðra barna sem ekki
geta notið almennrar sundkennslu.
550.000 kr., Jón Pétur Zimsen.
Hönnunar- og nýsköpunarkeppni
fyrir grunnskólanemendur 100.000
kr., Kennaraháskóli Íslands. Gerð
GRP-14e ritmálsprófs 150.000 kr.,
taka grundvallaratriða læsis í evr-
ópskum ritmálum. 250.000 kr., til
að standa straum af stóru upplestr-
arkeppninni. 150.000 kr. Lands-
samband slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna. Eldvarnarvika í
grunnskólum Reykjavíkur. 150.000
kr., Leikfélag Reykjavíkur. Grunn-
skólaverkefnið „Heimsókn í leik-
húsið“ heimsókn 9 ára barna í
grunnsk. Rvk. í leikhúsið.
1.000.000 kr., Myndlistarskólinn í
Rvk. Styrkumsókn v/reksturs,
fjármálastj. Og fjölgunarnám-
skeiða í barna og unglingadeildum.
7.000.000 kr., SAMFOK. Til rekst-
urs foreldrastarfs, ráðning umsjm.
foreldrarölts, rekstur skrifstofu
o.fl. 2.200.000 kr. Stefmennt ehf.
Gerð kennsluvefs í tónmennt fyrir
Netið 400.000 kr., Þórir Þórisson.
Árangursmæling á tónlistar-
kennslu á námsárangur í öðrum
greinum – tilraunaverkefni.
800.000 kr., Ásthildur Snorradótt-
ir. Útgáfa málörvunarkerfis.
400.000 kr., Valgerður Jónsdóttir.
Tónlistarkennsla fatlaðra nemenda
2.000.000 kr. og Afmælisstyrki
fræðsluráðs hlutu Fossvogsskóli og
Hamraskóli, 150.000 kr. hvor.
Morgunblaðið/Þorkell
Styrkþegar fyrir utan Höfða.
Styrkir fræðsluráðs
afhentir í Höfða
LJÓSMYNDASÝNING Rauða
krossins „Andlit örbirgðar“ var
opnuð í Kringlunni á miðvikudag
og við sama tækifæri var komið
fyrir þremur söfnunarbaukum
fyrir alþjóðlegt hjálparstarf.
„Andlit örbirgðar“ gefur inn-
sýn í nístandi fátækt sem er að
finna í Makedóníu, einu þeirra
landa sem urðu til við upplausn
Júgóslavíu. Þar blossuðu upp
átök nýlega, sem auka enn á
mannúðarvandann sem við er að
fást í landinu sem og víðar á
Balkanskaga. Ljósmyndirnar eru
eftir þýska fréttaljósmyndarann
Till Mayer.
Meðfram uppsetningu sýning-
arinnar hefur þremur söfnunar-
baukum Rauða krossins verið
komið fyrir í Kringlunni, en þeir
munu standa þar til frambúðar.
Gestir Kringlunnar fá því tæki-
færi til að láta gott af sér leiða í
verslunarleiðangrinum, segir í
fréttatilkynningu.
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, afhendir
Ívari Sigurjónssyni, markaðsstjóra Kringlunnar, viðurkenningarskjal
við opnun ljósmyndasýningarinnar „Andlit örbirgðar“.
Söfnunarbaukar fyrir
Makedóníu í Kringlunni
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦