Morgunblaðið - 23.03.2001, Page 41
FJÖLMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 41
ÞRÁTT fyrir ungan aldur höfðu
fjallaklifrararnir fjórir allir getið
sér gott orð í íþróttinni. Þetta voru
þrír karlmenn, John Dickey 25 ára,
Jason Smith 22 ára, Tommy Cald-
well 22 ára og eina konan í hópnum,
Beth Rodden 20 ára, sem var leið-
angursstjóri. Í ágúst í fyrra fóru þau
í leiðangur til Kírgístan, fyrrverandi
sovétlýðveldis í Mið-Asíu. Einn dag-
inn réðust að þeim uppreisnarmenn,
tóku þau öll fjögur til fanga og héldu
þeim í sex daga. Fimmta fangann,
hermann sem var fjallgöngufólkinu
til verndar, tóku uppreisnarmenn-
irnir af lífi.
Að degi til huldu uppreisn-
armennirnir fanga sína með grein-
um og grjóti, svo ekki sæist til þeirra
úr þyrlum sem sveimuðu yfir. Að
nóttu til voru þau stundum látin
ganga um fjalllendið, en erfitt er að
átta sig á hvað uppreisnarmennirnir
ætluðu sér með því að halda banda-
ríska hópnum föngnum.
Fréttir af ungmennunum fjórum
bárust um alla heimsbyggð eftir að
þau létu vita af sér við varðstöð kírg-
istanskra hermanna og sögðust hafa
sloppið frá uppreisnarmönnunum
með því að hrinda einum þeirra fyrir
björg. Þau sögðu að aðeins tveir
uppreisnarmenn hefðu gætt þeirra,
en þegar rafhlaða tæmdist í tal-
stöðvum þeirra hefði annar upp-
reisnarmaðurinn ákveðið að snúa til
baka í bækistöðvar fjallgöngumann-
anna til að ná í rafhlöður. Þau hefðu
því notað tækifærið þá nótt þegar
gæslumaður þeirra hafði ekki var-
ann á sér og hrint honum fram af
hengiflugi, um 450 metra fall. Því
næst hefðu þau hlaupið tæplega 30
kílómetra leið að varðstöðinni.
Grein, bók og bíómynd
Saga fjórmenninganna vakti verð-
skuldaða athygli. Blaðamaðurinn
Greg Child skrifaði fyrir tímaritið
Climbing í Coloradoríki í Bandaríkj-
unum og var kunningi Jason Smiths.
Honum tókst að telja fjórmenn-
ingana á að hann fengi að sitja einn
að frásögn þeirra. Því næst hafði
hann samband við umboðsskrifstofu,
sem sér um samninga fyrir þá sem
rita um ævintýralegar ferðir af ýms-
um toga. Umboðsskrifstofan sá
strax að smáblaðið Climbing væri
ekki rétti vettvangur fyrir frásögn-
ina, heldur samdi við annað og öllu
öflugra útilífsblað, Outside, sem var
reiðubúið að greiða 1,5 milljónir
króna fyrir grein Childs. Umboðs-
skrifstofan gerði líka samninga við
fjallgöngumennina fjóra og hófst
handa við að semja um bókaútgáfu
og kvikmyndagerð. Niðurstaðan
varð sú, að fjallgöngumennirnir
hættu að koma fram í fjölmiðlum,
eins og þeir höfðu gert frá því að
sagan varð lýðum ljós, svo aðeins
þeir hefðu aðgang að þeim sem um-
boðsskrifstofan hefði samið við.
Í netútgáfu tímaritsins Brill’s
Content er rakið hver atburðarásin
varð eftir þetta. Umboðsskrifstofan
samdi um bókaútgáfu, með því skil-
yrði að Childs myndi rita bókina, en
hann og fjórmenningarnir skipta
með sér ágóðanum. Rétturinn til að
kvikmynda söguna var seldur til
Universal Pictures. Vonir stóðu til
að sagan myndi ná álíka vinsældum
og frásögn blaðamannsins Johns
Krakauers af hremmingum fjall-
göngumanna sem freistuðu þess að
klífa tind Everest. Saga hans, Into
Thin Air, eða Á fjalli lífs og dauða
eins og hún heitir í íslenskri þýð-
ingu, varð metsölubók víða um heim.
Sveif fram af brúninni
Í október í fyrra kom tölublað
Outside með frásögn fjórmenning-
anna út. Þar er því lýst hvernig karl-
mennirnir þrír í hópnum ákváðu að
eina von þeirra væri að drepa upp-
reisnarmanninn sem gætti þeirra.
Sagt er að Tommy Caldwell hafi
klifið upp klett, teygt sig upp fyrir
brúnina þar sem maðurinn sat og
kippt í riffilinn sem hann hafði um
öxl sér. Uppreisnarmaðurinn hafi
svifið fram af brúninni, lent á kletta-
syllu níu metrum neðar, oltið svo
fram af henni og fallið 450 metra
niður í á.
Á heimasíðu Brill’s Content kem-
ur fram að fljótlega eftir útgáfu
tímaritsins hafi ýmsir lýst efasemd-
um um að satt og rétt væri sagt frá.
Brill’s Content vitnar í Andrew
Zharov, sem stjórnar Mið-Asíu
skrifstofu frétta-
stofunnar Interfax.
Hann fullyrðir að
bandarísku fjalla-
klifrararnir hafi
ekki minnst á
dauða uppreisnar-
mannsins einu orði
á meðan þeir voru
enn í landinu.
Reyndar hafi þeir
sagt Interfax og
tveimur öðrum
fréttastofum að
uppreisnarmenn-
irnir hafi skilið þá
eftir á víðavangi og
þeir hafi ráfað um
villtir í fjóra eða
fimm daga áður en
hjálp barst.
Hér ber að hafa í
huga, að í öðrum
fjölmiðlum hafa
fjórmenningarnir
lýst ótta við að
múslímar leituðu
hefnda vegna
dauða uppreisnar-
mannsins. Það
væri því ekki und-
arlegt þótt fjór-
menningarnir hefðu
í fyrstu sagt söguna
á annan hátt, en þá
hefði að sjálfsögðu þurft að skýra
breytta frásögn í tímaritsgreininni.
Og fjórmenningarnir höfðu vissu-
lega skipt um skoðun að öðru leyti,
því fyrst eftir að þeir skýrðu frá
dauða uppreisnarmannsins harð-
neituðu þeir að segja hver hefði
hrint manninum fram af og sögðust
ekki vilja að einn bæri alla ábyrgð-
ina. Í tímaritsgreininni var Tommy
Caldwell hins vegar nefndur sem sá
er kippti manninum fram af. Lýsing
á því hvernig hann gerði það er ekki
alveg í samræmi við fyrri frásagnir
fjórmenninganna, t.d. við AP frétta-
stofuna, um að þau hafi gripið tæki-
færið þegar hann stóð of nærri
brúninni og hrint honum fram af. Í
frásögn breska dagblaðsins Sunday
Times var skýrt frá því að hópur
uppreisnarmanna hefði haft banda-
rísku ungmennin í haldi og allir
nema einn farið til baka að ná í batt-
erí, en AP segir uppreisnarmennina
aðeins hafa verið tvo og annar hafi
snúið til baka eftir rafhlöðum.
Það skal hins vegar haft hugfast
að grein Childs var hin opinbera út-
gáfa frásagnarinnar, sem fjall-
göngumennirnir lögðu blessun sína
yfir og má því ætla að þar sé allt haft
rétt eftir þeim.
Á lífi í Kírgístan
Umræða um frásögn fjórmenn-
inganna tók fjörkipp þegar þær
fréttir bárust frá Kírgístan að þar
væri margnefndur uppreisnar-
maður á lífi og hefði það ágætt í
fangelsi. Greg Child blaðamaður og
fjallgöngumennirnir fjórir sögðust
agndofa yfir fréttunum, en Outside
tímaritið sagðist ekki hafa getað
staðfest þessar fréttir og fjall-
göngumennirnir hefðu ekki getað
borið kennsl á manninn af myndum.
Í mars tölublaði Outside er grein
eftir Greg Child, þar sem hann lýsir
myndbandsupptöku af yfirheyrslum
yfir uppreisnarmanninum. Child
segir að allir fjallgöngumennirnir
fjórir hafi séð hann falla fram af
brúninni og enginn trúað að hann
hefði getað lifað slíkt fall af. Á
myndbandinu sé uppreisnarmað-
urinn fölur og fár, en virðist þó
merkilega brattur, með tilliti til
fallsins mikla. Þar hafi einn fanga-
varða hans þá frásögn eftir honum,
að bandarísku fjallgöngumennirnir
hafi flúið þegar hann sofnaði.
John Dickey, einn fjórmenning-
anna, segir í samtali við Outside að
hann hafi séð myndbandið og telji að
það sýni uppreisnarmanninn sem
hafði þau í haldi, en hann og félagar
hans halda fast við þá sögu að hann
hafi fallið fram af klettinum.
Ritstjóri Outside, Hal Espen, segir
að jafnvel þótt ekki hafi komið fram
í upphaflegri frásögn Childs í tíma-
ritinu að uppreisnarmaðurinn hafi
lifað fallið af, þá sé það ekki til
marks um lélega blaðamennsku,
heldur sýni svart á hvítu hve erfitt
geti verið að skýra frá atburðum
sem verða í fjarlægum heimshlutum.
„Þarna er ekki hroðvirkni okkar um
að kenna,“ segir hann í samtali við
Brill’s Content. „Þeir sem lesa grein-
ina vandlega sjá að við fullyrtum
aldei að uppreisnarmaðurinn hefði
dáið,“ segir Espen og kveðst sann-
færður um að fjallgöngumennirnir
fjórir séu alls ekki að skrökva neinu
um hremmingar sínar.
Greg Child tekur undir þetta og
hafnar því alfarið að fjárhagslegir
hagsmunir hans hafi haft nokkur
áhrif á vinnslu greinarinnar. Ef ein-
hverjar líkur hefðu verið á að fjall-
göngumennirnir hefðu lagfært frá-
sögn sína, þá hefði hann látið það
fylgja sögunni. Brill’s Content leitaði
álits bókaútgáfunnar Villard, sem
hefur rétt til útgáfu bókar um æv-
intýri fjórmenninganna, en þar vildu
menn ekki tjá sig um málið. Tals-
maður Universal kvikmyndaversins
sagði að vinna við hugsanlega kvik-
mynd væri ekki einu sinni hafin.
Umboðsmaðurinn, sem tók að sér að
semja um greiðslur fyrir grein, bók
og kvikmynd, sagði að saga fjór-
menninganna væri mjög áhugaverð
og það væri frábært að komið hefði í
ljós að þeir hefðu engan drepið.
Nú á hins vegar eftir að koma í
ljós hvort áhugi bókaútgefenda og
kvikmyndagerðarmanna dofnar í
kjölfarið.
Flóttasagan
frækilegri en
efni stóðu til?
Forsíða tímaritsins Outside þar sem greinin um-
deilda birtist á sínum tíma.
Flótti fjögurra ungra, bandarískra fjall-
göngumanna frá uppreisnarmönnum,
sem héldu þeim föngnum í Kírgístan
í ágúst í fyrra, vakti mikla athygli.
Þegar var hafist handa við að búa til
bíómynd um málið. Ragnhildur
Sverrisdóttir segir að nú virðist sem
flasið hafi ekki verið til fagnaðar og
sagan hafi ýmsa lausa enda.
SAMTÖK blaðamanna í Kanada
segja nauðsynlegt að setja reglur til
varnar þeim opinberu starfsmönn-
um sem lýsa skoðunum er ganga
gegn opinberri stefnu eða skýra frá
málum sem yfirvöld vilja að fari
leynt.
Kanadísku blaðamannasamtökin,
The Canadian Association of Journ-
alists, birtu fréttatilkynningu á
heimasíðu sinni þar sem fordæmd
er sú ákvörðun heilbrigðisyfirvalda
að áminna tvo vísindamenn fyrir að
lýsa opinberlega efasemdum sínum
um réttmæti banns á innflutningi á
nautakjöti frá Brasilíu.
Robert Cribb, formaður blaða-
mannasamtakanna, segir framkomu
stjórnvalda ganga gegn rétti al-
mennings til að fá upplýsingar um
allar hliðar mála. Nauðsynlegt sé að
setja lög sem tryggi stöðu þeirra
sem upplýsi almenning um mikil-
væg málefni er snerti hagsmuni
allra. Þar sem engum slíkum lögum
sé til að dreifa kjósi menn ýmist að
þegja yfir upplýsingum sem al-
menningur eigi rétt á, eða þeir taki
áhættuna af refsiaðgerðum yfir-
valda gegn þeim, ljóstri þeir upp um
mál sem yfirvöld vilja að fari leynt.
Ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um
að áminna vísindamennina virðist
ganga í berhögg við nýlegan dóm í
Kanada þar sem komist var að
þeirri niðurstöðu að ekki væri sann-
gjarnt að ætlast til að vísindamenn
þegðu um heilbrigðismál sem kæmu
öllum almenningi við.
Trudi Beutel, stjórnarformaður
kanadísku blaðamannasamtakanna,
segir að skortur á lögum sem
vernda opinbera starfsmenn komi í
veg fyrir upplýsingaflæði um heil-
næmi matvæla og mengun and-
rúmsloftsins, sem og hvernig pen-
ingum skattborgaranna væri varið,
svo dæmi væru nefnd. „Þeir sem
gætu skýrt frá málum þegja af því
að þeir eru hræddir um að þurfa að
súpa seyðið af þeirri ákvörðun sinni.
Það er tími til kominn að stjórnvöld
verndi þá og um leið alla Kanada-
menn,“ er haft eftir stjórnarfor-
manninum.
Þögnin verðlaunuð
Á heimasíðu kanadísku blaða-
mannasamtakanna kemur einnig
fram, að þau hafa ákveðið að veita
sérstök háðungarverðlaun þeirri op-
inberri stofnun sem vinnur með
mestri leynd. Samtökin hvöttu al-
menning til að senda inn tilnefn-
ingar, en verðlaunin á að veita á að-
alfundi samtakanna 25.-27. maí.
Robert Cribb, forseti samtakanna,
benti á að margir opinberir starfs-
menn gættu þess vel og vandlega að
engar upplýsingar um starfsemi
stofnana bærust almenningi, sem þó
væri réttur eigandi þeirra. Tími
væri til kominn að veita þessari
landsföðurhyggju verðskuldaða við-
urkenningu.
Blaðamenn í Kanada um áminningar vísindamanna
Lög skortir til verndar
uppljóstrurum
Kaliforníu. Morgunblaðið.
ATVINNA mbl.is