Morgunblaðið - 23.03.2001, Qupperneq 84

Morgunblaðið - 23.03.2001, Qupperneq 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. ATKVÆÐAGREIÐSLA um boðun verkfalls Félags háskólakennara hefst á mánudag, 26. mars nk., og stendur í eina viku. Verði verkfalls- boðunin samþykkt hefst tímabundið verkfall háskólamanna 2. maí og stendur til 16. maí, eða á þeim tíma sem þúsundir stúdenta við Háskól- ann eiga að þreyta próf sín. Viðræð- ur deiluaðila munu hefjast aftur í næstu viku, en þær hafa legið niðri í tæpan mánuð. Háskólakennarar segja að tilboð samninganefndar ríkisins til Félags háskólakennara frá 27. febrúar sl. sé umtalsvert lægra en kennarar á öðr- um skólastigum hafi samið um og sé því óviðunandi. Verði ekki breyting hér á muni Háskóli Íslands ekki fá rækt hlutverk sitt sem leiðandi afl í rannsóknum og menntun. Róbert Haraldsson, formaður Félags háskólakennara, segist telja miklar líkur á því að verkfallsboðun verði samþykkt í atkvæðagreiðsl- unni. Hann segir mikla óánægju meðal félagsmanna með seinagang í viðræðum við samninganefnd ríkis- ins, en kveðst jafnframt vona að ekki muni koma til verkfalls í prófatíma stúdenta. Félagsmenn í FH eru tæplega 500 og í félaginu eru allir starfsmenn Háskólans utan prófessorar, þ.e. lektorar, dósentar, vísindamenn, fræðimenn, sérfræðingar og starfs- fólk í stjórnsýslu skólans. Kjara- samningur milli FH og ríkisins rann út 31. október sl., en hann hafði þá verið í gildi síðan í maí 1997. Að sögn Róberts hefur lítið þokað í viðræðum deiluaðila frá áramótum og fyrir tæpum mánuði vísaði Félag háskólamanna deilunni til embættis ríkissáttasemjara. Frá þeim tíma hefur enginn fundur verið haldinn, fyrr en nú að deiluaðilar munu funda hjá ríkissáttasemjara í næstu viku. Til fundarins var boðað eftir að for- maður og varaformaður FH hittu fjármálaráðherra að máli og fóru yfir stöðu mála með honum. Róbert segir að vissulega sé óynd- isúrræði að efna til verkfalls á þeim tíma þegar stúdentar eru flestir í prófum. Hann bendir hins vegar á að langur tími sé fyrir félagsmenn að bíða fram á haustið og verkfallsvopn- ið nýtist ekki nema á ákveðnum tím- um. Verkfall mun lama allt háskólasamfélagið Félag háskólakennara hefur aldr- ei farið í verkfall, að sögn Róberts. Nærri því lá 1989, en þá var sam- þykkt í atkvæðagreiðslu að efna til verkfalls en á síðustu stundu náðust þó samningar. Róbert segist vona að hið sama verði uppi á tengingnum nú. „Það er enn einn og hálfur mán- uður til stefnu. Það er vel hægt að semja á þeim tíma,“ sagði hann. Komi til verkfalls mun það vænt- anlega lama alla starfsemi þessarar stærstu menntastofnunar þjóðarinn- ar á mesta annatíma. Gert er ráð fyr- ir að alls um 6.000 stúdentar þreyti próf í maí næstkomandi og má telja líklegt að margir geti lent í vandræð- um frestist prófin. Má þar nefna tafir á afgreiðslu lána frá Lánasjóði ís- lenskra námsmanna og einnig gætu þeir sem skráð hafa sig í framhalds- nám erlendis lent í vandræðum af þessum sökum. Dagný Jónsdóttir, framkvæmda- stjóri Stúdentaráðs, segir að óvissan um vorprófin leggist afar illa í stúd- enta og háskólasamfélagið muni lamast komi til verkfallsins. „Verkfall myndi bitna á öllum og það hefur reynst erfitt að ræða möguleg viðbrögð þar sem ekkert fordæmi er fyrir hendi og ekki hefur áður komið til verkfalls,“ sagði hún. Fyrsti stjórnarfundur nýs Stúd- entaráðs Háskóla Íslands verður í dag og að sögn Dagnýjar verður málið tekið til umræðu á fundinum og hugsanleg viðbrögð stúdenta. „Við verðum auðvitað að vona að aðilar málsins komi sér saman um lausn áður en til verkfalls kemur,“ sagði hún. Atkvæðagreiðsla um verkfall Félags háskólakennara hefst á mánudag Vorpróf sex þúsund stúdenta í uppnámi ÆÐURIN er staðfugl hér við land og mjög félagslynd. Hún er mest- an hluta ársins bundin sjó, eink- um meðfram ströndum, og hefur reyndar allt lífsviðurværi sitt það- an. Íslenski stofninn er talinn hafa að geyma 200–300 þúsund varppör. Og hér við land eru að auki vetrarstöðvar og sennilega fellistöðvar æðarfugla frá Austur- Grænlandi og Svalbarða. Að vetr- arlagi geta æðarhóparnir verið þúsundir fugla og eins er því farið þessa blíðviðrisdaga, ef litið er út á haf frá Gróttu. Snemma vors gengur æðurin á land í auknum mæli, í fjöruna til að byrja með, eins og til að búa sig undir aukna dvöl á þurru yfir varptímann. Og þar getur orðið margt um fuglinn. Svo gerist hún djarfari og fer ofar og innar þeg- ar líða tekur að sjálfum eggja- tíma, sem er breytilegur eftir landshlutum, en víðast hvar þó í hálfnuðum maí. Þessi mynd, sem á að minna okkur á að vorið er innan seil- ingar, var tekin í fjöruborðinu við Gróttu, og sýnir æðarblika að hafa sig til fyrir kollurnar. Morgunblaðið/RAX Vor í lofti SKÝRSLA Rannsóknarnefndar flugslysa um flugslysið í Skerja- firði 7. ágúst á síðasta ári er vænt- anleg í dag. Mun skýrslan vera tæpar 30 blaðsíður. Skýrslan fjallar um rannsókn nefndarinnar vegna eins hreyfils flugvélar, TF-GTI, sem fórst í Skerjafirði eftir að hafa hætt við lendingu á Reykjavíkurflugvelli. Flugmaður og fimm farþegar voru um borð. Fimm eru látnir en einn farþeganna hefur legið á sjúkrahúsi síðan. Flugslysið í Skerjafirði Skýrsla flugslysa- nefndar birt í dag TAP af rekstri SÍF-samstæðunnar í fyrra nam 984,9 milljónum króna. Rekstrartekjur félagsins námu alls tæpum 53 milljörðum og tap eftir skatta sem hlutfall af veltu var 1,86%. Þrátt fyrir tapið nam hagn- aður SÍF fyrir afskriftir (EBITDA) 779 milljónum króna og veltufé frá rekstri var jákvætt um 108,9 millj- ónir króna. Gunnar Örn Kristjánsson, for- stjóri SÍF, segir að almennur rekstur hafi gengið þokkalega í fyrra og þannig sé framlegðin meiri en árið 1999. „Við erum að gjaldfæra mjög stórar tölur sem hafa ekki neitt með daglegan rekstur að gera.“ Aðspurð- ur segir Gunnar að eiginfjárhlutfall SÍF, 15,75%, sé mjög sambærilegt og hjá SH en það sé þó stefna SÍF að eiginfjárhlutfallið verði ekki undir 20% til lengri tíma litið. Ár samruna og hreingerninga „Við erum í þessum reikningi auð- vitað búnir að hreinsa út ansi stóran pakka sem var þessi frumvinnsla í Noregi sem hefur verið okkur erfið. Þá höfum við einnig gjaldfært allan samrunakostnað og starfslokasamn- inga þótt þeir nái inn á þetta ár. Þetta er allt tekið inn á síðasta ári. Við gáf- um það út á sínum tíma að árið 2000 yrði ár samruna og hreingerninga og það er það sem við erum að gera í þessum ársreikningi. Við vildum hreinsa borðið og ganga hreint til verks í þessum ársreikningi. Það er miklu betra að hreinsa þessa hluti út á einu ári og afgreiða þá þar með í stað þess að vera að fela þá eitthvað í einhvern tíma. Við tókum allt sem við gátum tínt til í þessum efnum.“ Tap SÍF tæpur millj- arður króna í fyrra  Batamerki/26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.