Morgunblaðið - 20.12.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.12.2001, Blaðsíða 20
SUÐURNES 20 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ UPP Á TÍU FINGUR H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Glæsilegir expresso/cappuccino bollar úr postulíni eða stáli, hannaðir af þekktum ítölskum listamönnum. Súkkulaði- og kanilkvarnir sem gefa cappuccino punktinn yfir I-ið! Stálkönnur til að flóa mjólk í. Glæsilegir, sígildir hlutir - kærkomin jólagjöf! Jólagjöf kaffiunnand ans! EINAR Júlíusson söngvari er heima í Keflavík um jólin eins og oftast áður. Jólasveinninn Skyr- gámur hefur mikið að gera, margir vilja fá hann á jólaskemmtanir. Ein- ar segir að það hafi búið í sér jóla- sveinn alla ævi. Einar hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna í gegnum tíðina og heillað börn og fullorðna í ára- raðir sem jólasveinninn Skyrgám- ur. Hann hefur átt viðburðaríka ævi og var meðal annars einn stofn- enda Hljóma. Hann er nú búsettur í Bandaríkjunum ásamt þarlendri konu sinni. Stofnaði Hljóma „Fyrsta hljómsveitin sem ég söng í var Hljómsveit Guðmundar Ing- ólfssonar, en ég gekk til liðs við hana árið 1959,“ segir Einar þegar hann er beðinn um að rifja upp söngferilinn. „Þar léku ýmsir góðir og þekktir tónlistarmenn, svo sem Þórir Baldursson, Rúnar Georgsson og Engilbert Jensen sem söng þar um tíma. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, var framkvæmdastjóri hljómsveit- arinnar og hélt mjög vel utan um allt, eins og hans er von og vísa,“ segir Einar. Við fórum þrjú ár í röð til Siglu- fjarðar að spila við lok síldaræv- intýra, árin 1960–1962. Síðasta árið kynntist ég fyrri konunni minni, Ólöfu Hafdísi Ragnarsdóttur, og ári síðar, þegar ég var gestasöngvari hjá hljómsveitinni Gautum hófum við samband okkar. Hún flutti til Reykjavíkur um haustið og við trú- lofuðum okkur upp úr því og gift- um okkur svo 1966. Við eignuðumst saman fjórar yndislegar dætur, en svo lést hún árið 1995, eftir árs bar- áttu við krabbamein.“ Einar hætti í hljómsveit Guð- mundar Ingólfssonar árið 1963, en þá var Gunnar Þórðarson farinn að spila með þeim: „Ég spurði Gunnar hvort hann væri ekki til í að stofna með mér hljómsveit ásamt ein- hverjum jafnöldrum okkar og upp úr því voru Hljómar stofnaðir. Ég hafði þó ekki leikið með þeim nema í um fjóra mánuði þegar ég tók mér hlé til að láta fjarlægja úr mér háls- kirtlana og á meðan söng Karl Her- mannsson. Ég var í tvo mánuði að jafna mig af kirtlatökunni og á meðan slógu Bítlarnir í gegn. Strákarnir í Hljómum fóru þá að spila lögin þeirra og það má eig- inlega segja að Bítlalagið „Twist and Shout“ hafi orðið mér að falli í hljómsveitinni. Ég neitaði að öskra í laginu og í kjölfarið var atkvæða- greiðsla um það hvort ég eða Karl yrði áfram söngvari hljómsveit- arinnar. Kalli fékk þrjú atkvæði en ég eitt og þar með endaði þátttaka mín í Hljómum. Ég varð mjög sár yfir þessu og fylltist þvermóðsku. Ákvað svo að ef mér byðist að vera með í annarri hljómsveit þá myndi ég þiggja það um leið. Þá fékk ég tilboð úr Reykjavík um að mæta á æfingu hjá hljómsveitinni Pónik og upp úr því varð 23 ára samstarf Pó- niks og Einars.“ Söng sig inn í hjarta hennar Þegar hljómsveitin Pónik og Ein- ar lagði upp laupana hóf Einar sóló- feril sinn, söng mikið á Broadway og við fjölda jarðarfara og brúð- kaupa. „Þegar ég hafði verið ekkill í þrjú ár, fór ég ásamt hljómsveitinni Pónik til Flórída að spila á þorra- blóti. Ég dvaldi þar áfram í þrjár vikur hjá systur minni, sem á hús í Orlando. Kona sem leigði hús af frænku minni neðar í götunni kom með póstinn hennar til okkar og við fórum að spjalla og kynntumst í eldhúsinu hjá systur minni. Kvöldið eftir söng ég í samkvæmi hjá mági mínum og hún kom þang- að. Ég söng mig eiginlega inn í hjarta hennar, því þegar ég stóð á sviðinu ákvað hún strax að ná í þennan gaur. Hún heitir Louella Cardoos og er af arabísku bergi brotin. Við giftum okkur í Boston 17. október 1999 og ég flutti út til hennar 12. febrúar 2000. Þá mætti ég í íslenska þjóðbúningnum með fangið fullt af rósum handa henni. Hvorugt okkar er að vinna úti og erum við bara að njóta lífsins en við höfum bæði unnið mikið um ævina og tími til kominn að hvíla sig.“ Einar hefur annars búið í Kefla- vík alla ævi og þó hann hafi starfað mikið í Reykjavík hefur aldrei hvarflað að honum að flytja þang- að, enda er hann harður Keflvík- ingur og þykir mjög vænt um bæ- inn sinn. „Ég tók ekki bílpróf fyrr en ég var orðinn 29 ára gamall og ferðað- ist því oft á puttanum á milli, eða með rútunni. Í eitt skiptið var ég búinn að spila í Reykjavík klukkan tvö að nóttu og fór þá beint upp á Reykjanesbraut til að reyna að fá far heim. Ég hafði gengið í fjóra klukkutíma í frosti og kulda þegar ég var loks tekinn upp í.“ Það er enginn jólasveinn nema Skyrgámur Einar hefur verið helsti jóla- sveinn Keflvíkinga í áratugi og leggur mikið upp úr búningnum sínum. „Það hefur margt skemmti- legt gerst í jólasveinatíð minni,“ segir Einar. „Þegar ég var 16 ára fór ég fyrst í jólasveinagervið og labbaði til bróðurdóttur minnar með pakka í jólasveinapoka. Á leið- inni gekk ég fram á tvær stúlkur, 5 eða 6 ára, sem voru að sýna hvor annarri hvað þær hefðu fengið í jólagjöf. Þegar ég nálgaðist hróp- aði ég að jólasveinasið: „Hohohó.“ Stúlkugreyjunum varð hins vegar svo mikið um þetta að þær hentu frá sér jólagjöfunum og hlupu hvor í sína áttina og inn í hús. Þær átt- uðu sig svo á því þegar þær voru komnar inn að þær höfðu víxlað húsum og farið hvor heim til ann- arrar í æsingnum. Ég hef verið mjög mikið viðloð- andi þessa grein síðan og meðal annars farið oft til Reykjavíkur í þeim erindagjörðum. Þeir sem til þekkja segja Skyrgám vera besta jólasveininn.“ Einar hefur komið heim um jólin eftir að hann flutti til Bandaríkj- anna til að vera með fjölskyldunni og sinna jólasveinahlutverkinu: „Ég ákvað að auglýsa ekkert þetta árið því í fyrra var svo mikið að gera hjá mér að ég hafði varla tíma til að vera með fjölskyldunni. Það gefur mér alveg óendanlega mikið að vera í jólasveinahlutverkinu og gleðja börnin. Ég get því ekki hugs- að mér að sleppa því. Það eru líka margir hér heima sem geta ekki hugsað sér að fá annan jólasvein“, segir Einar að lokum og bætir því við að þó hann hafi fyrst leikið jóla- svein þegar hann var sextán ára hafi búið jólasveinn í honum alla ævi. Jólasveinn búið í mér alla ævi Skyrgámur á ferð um bæinn í nýjum og fínum fötum. Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Einar Júlíusson nýtur lífsins heima í Keflavík. Einar Júlíusson söngvari hefur átt viðburðaríkt líf Keflavík FRIÐARLJÓSIÐ sem skátahreyf- ingin á Íslandi fékk til landsins í gær er meðal annars geymt á slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja í Keflavík. Því verður dreift á stofnanir og á að- fangadag verður það í kirkjum á svæðinu og við kirkjugarða. Friðarljósið frá Betlehem kom til landsins frá Danmörku í gær, með Dettifossi Eimskipafélagsins. Því var dreift til fulltrúa skátafélaganna við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík. Fulltrúi skátafélagsins Heiðabúa, Hrafnhildur Atladóttir, tók á móti Friðarljósinu og fór með það til Kefla- víkur. Þar tók slökkvilið Brunavarna Suðurnesja að sér að halda loganum við fram á aðfangadag. Skátar úr Heiðabúum verða við kirkjugarðana í Keflavík og við Garð- veg, á milli klukkan 12 og 14 á að- fangadag og færa aðstandendum lát- inna friðarljósið. Skátar færa það síðan til kirkju í Keflavík, Garði og Sandgerði við hátíðarmessur á að- fangadag. Skátar úr skátafélaginu Víkverjum í Njarðvík færa Friðar- ljósið til kirkju í Innri-Njarðvík við messu á aðfangadag. Í fréttatilkynningu frá St. Gerogs- skátum og Heiðbúum er vakin athygli á því að þær stofnanir sem vilji fá Friðarljósið að gjöf geti haft samband við fulltrúa skátafélaganna og muni skátar þá fara með það til þeirra. Friðarljós í kirkjum og við kirkjugarða Suðurnes AÐILDARFÉLÖG Íþróttabanda- lags Reykjanesbæjar hafa eignast 214 Íslandsmeistara á árinu. Flestir meistararnir eru í körfuknattleik hjá Njarðvík. 105 félagar í Keflavík, íþrótta- og ungmennafélagi, hafa orðið Íslands- meistarar, 37 í knattspyrnu, jafn margir í sundi og 29 í körfuknattleik. Þá hafa tveir Keflvíkingar orðið meistarar í Taekwondo. Ungmenna- félagið Njarðvík hefur eignast 94 meistara, 82 í körfuknattleik, 8 í sundi og 4 í lyftingum. Íþróttafélagið Nes hefur eignast 9 meistaratitla, hestamannafélagið Máni þrjá og Golfklúbbur Suður- nesja tvo Íslandsmeistaratitla. Íþróttamaður ársins í Reykja- nesbæ verður útnefndur við athöfn í íþróttahúsi Njarðvíkur á gamlárs- dag klukkan 13. Hafa eignast 214 Íslandsmeistara Reykjanesbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.