Morgunblaðið - 20.12.2001, Blaðsíða 33
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 33
NORSKI efnafræðiprófessorinn Per
Hoff hefur gagnrýnt baráttu um-
hverfisráðherra Noregs, Børge
Brende, gegn endurvinnslustöðinni
fyrir kjarnorkuúrgang í Sellafield á
Englandi. Hann lýsir baráttu um-
hverfisráðherrans sem „einskæru
lýðskrumi“ og segir að norskum
sjávarútvegi stafi engin hætta af
endurvinnslustöðinni, að því er fram
kemur í frétt norska dagblaðsins
Aftenposten.
Efnafræðiprófessorinn telur ekki
að fólki stafi hætta af losun geisla-
virkra efna frá endurvinnslustöðinni
í Sellafield. „Þetta er eins og að
ganga með hundinn sinn í garði ná-
grannans – það er dónalegt og
ónauðsynlegt en ekki beinlínis
hættulegt,“ hefur Aftenposten eftir
Hoff.
Prófessorinn segir að ákafur
stuðningur umhverfisráðherrans við
kröfu Íra um að endurvinnslustöð-
inni verði lokað ali á ótta meðal al-
mennings og að norskum sjávarút-
vegi stafi meiri hætta af þessum ótta
en geislamengun frá Sellafield.
„Humar er viðkvæmastur fyrir
teknisíum. En fólk þarf að borða 150
tonn af humri á ári til að ná þeirri
eðlilegu geislun sem við verðum öll
fyrir,“ segir Hoff.
Hann telur að hættan af geislun
vegna losunar teknisíums sé afar lítil
miðað við þá eðlilegu grunngeislun
sem fólk verður fyrir á degi hverjum.
Norska geislavarnastofnunin hefði
átt að blanda sér í málið og útskýra
hvaða þýðingu geislunin hefði. Að
sögn Aftenposten er Hoff sammála
umhverfisráðherranum um að ekki
væri rétt að losa geislavirk efni í haf-
ið og það væri aðeins „níska“
breskra stjórnvalda sem kæmi í veg
fyrir að úrgangurinn yrði hreinsaður
eða losaður með öðrum hætti. Hins
vegar hafi umhverfisráðherrann
gert of mikið úr hættunni og ætti að
snúa sér að öðrum málefnum á sviði
umhverfisverndar sem brýnna væri
að takast á við.
Efnafræðingur segir enga
hættu stafa af Sellafield
HERINN í Jemen hélt í gær
áfram leit að liðsmönnum al-
Qaeda, hryðjuverkasamtaka
Osama bin Ladens, í Marib-
héraði í miðhluta landsins.
Ekki bárust þó fregnir um
átök, eins og í aðgerðum hers-
ins á þriðjudag.
„Lögregla og hermenn leita
enn að hinum eftirlýstu með
aðstoð þyrlna. En það er ekki
auðvelt, þar sem um er að
ræða svæði á valdi ættbálka-
foringja,“ sagði embættismað-
ur í jemenska innanríkisráðu-
neytinu í samtali við
AFP-fréttastofuna í gær.
Að minnsta kosti átta her-
menn og fjórir meðlimir Abida-
ættbálksins féllu í umsátri
hersins um þorpið Al-Hosun á
þriðjudag, en þar voru nokkrir
al-Qaeda-liðar, nýkomnir aftur
heim frá Afganistan, taldir haf-
ast við. Al-Qaeda-liðarnir fund-
ust ekki, en nokkrir menn, sem
taldir voru hafa skotið skjóls-
húsi yfir þá, voru handteknir.
Osama bin Laden nýtur tölu-
verðs stuðnings meðal íbúa í
Jemen og lengi hefur verið tal-
ið að félagar í al-Qaeda hefðu
þar bækistöðvar.
Aðgerðunum ætlað að
koma í veg fyrir árás
Leitin að al-Qaeda-liðum í
Jemen er umfangsmestu að-
gerðir til þessa í arabalandi til
að hafa hendur í hári sam-
verkamanna Osama bin Lad-
ens. Fréttaskýrendum bar
saman um að jemensk stjórn-
völd hefðu gripið til þessara
aðgerða til að koma í veg fyrir
að Bandaríkjamenn gerðu árás
á landið í viðleitni sinni til að
hafa hendur í hári hryðju-
verkamanna.
„Nú er öllum ljóst að ef Jem-
enar beita sér ekki sjálfir gegn
hryðjuverkamönnum í eigin
landi eiga þeir á hættu að
verða fyrir íhlutun [af hálfu er-
lendra ríkja], sem gæti reynst
skaðleg,“ sagði í gær í forystu-
grein dagblaðsins Ath-Thawra,
sem gefið er út af stjórnvöld-
um.
Paul Wolfowitz, aðstoðar-
varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði að Bandaríkja-
menn hefðu hvatt Jemena til
að grípa til aðgerða gegn liðs-
mönnum al-Qaeda í landinu, en
kvaðst ekki hafa haft vitneskju
um aðgerð hersins á þriðjudag.
Al-Qaeda-
liða enn
leitað í
Jemen
Aden, Sanaa. AFP, AP.
ÍSRAELUM gefst brátt kostur á að
sjá fréttir, viðræðuþætti og jafnvel
sápuóperur frá egypska ríkissjón-
varpinu, Nílarsjónvarpinu, og verð-
ur efnið sent út á hebresku, opinberu
máli Ísraela. Markmiðið með þessu
er að „leiðrétta þá mynd sem ísr-
aelskur almenningur hefur af aröb-
um, og svara fullyrðingum, t.d. þeim
sem Ísraelar kunna að segja um deil-
urnar milli þeirra og Palestínu-
manna,“ sagði sjónvarpsstjórinn,
Yussef Sherif Rizkallah.
Egypska útvarpið hefur í mörg ár
sent út fréttir á hebresku. Ísraelar
og Egyptar skrifuðu undir friðar-
samkomulag 1979.
„Ein af ástæðum þess að deilur
Ísraela og araba standa enn, er bilið
milli þessara aðila sem stafar af þeim
stöðnuðu ímyndum sem dregnar eru
upp í ísraelskum fjölmiðlum,“ segir
Rizkallah.
Egypsk sápa
til Ísraels
Kaíró. AFP.