Morgunblaðið - 20.12.2001, Blaðsíða 73
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 73
Sendingin
(The Delivery)
Spennumynd
Holland/Belgía 1999. Skífan VHS. Bönn-
uð innan 16 ára. (105 mín.) Leikstjórn
Roel Reiné. Aðalhlutverk Fedja van Huêt,
Freddy Douglas, Aurélie Meriel.
„JÆJA, fyrst Þjóðverjunum
tókst það, hvers vegna í ósköpun-
um ætti okkur ekki að takast það
líka – tala nú ekki
um ef við snúum
enn einu sinni
bökum saman,“
kann samtal von-
góðra kvikmynda-
framleiðenda frá
Niðurlöndunum,
Hollandi og Belg-
íu, að hafa hljóm-
að. Það sem Þjóðverjum „tókst“
var að gera ódýran smell 1998 sem
hét Lola Rennt. Einfalt efni,
hreinn og klár eltingaleikur út í
gegn, sem svínvirkaði. En það sem
Niðurlendingar áttuðu sig greini-
lega ekki alveg á var að einn helsti
kostur þýsku myndarinnar var sá
að hún bar með sér ferska vinda,
kom á óvart. The Delivery gerir
það ekki. Hún fjallar líka um unga
og svakasæta Evrópubúa sem eru
góðir inni við beinir en lenda samt í
háskalegum aðstæðum sem neyða
þá til að leggja á flótta og það land-
anna á milli, í sönnum Evrópusam-
bandsanda. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Sannur
Evrópusam-
bandsandi
BANDARÍSKA þjóðin sat dolfallin
fyrir framan imbann í síðustu viku
með kökk í hálsinum þegar dr. Peter
Benton sagði starfi sínu lausu og
hvarf þar með af sjónarsviði Bráða-
vaktarinnar – ER – einhvers vinsæl-
asta sjónvarpsþáttar síðustu ára.
Ástæðan fyrir því að Benton sagði
upp var sú að hann vildi eyða meiri
tíma með heyrnarlausum syni sínum
en auðvitað er „alvöru“ ástæðan sú
að leikarinn
Eriq LaSalle,
sem leikur
Benton, vildi
út.
LaSalle er
annar tveggja
upprunalegu
leikaranna í
þáttunum sem
yfirgefur þátt-
inn á þessu ári
en Anthony
Edwards, sem
leikur hinn fársjúka dr. Green,
hverfur á braut eftir nokkra þætti.
Kanar kveðja
Benton
Eriq LaSalle, t.h.,
ásamt meðleikara
sínum Noah Wyle,
sem leikur Carter.