Morgunblaðið - 22.12.2001, Blaðsíða 1
294. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 22. DESEMBER 2001
Fúlgur
fjár fyrir
sjóræn-
ingja-
myndbönd
Belgrað. AP.
DREIFINGARFYRIRTÆKI
í Júgóslavíu tilkynnti í gær að
það myndi verðlauna hvern
þann, sem skilaði inn svoköll-
uðum „sjóræningjaútgáfum“ af
kvikmyndunum Harry Potter
og Hringadróttinssögu, um tíu
þúsund þýsk mörk, eða um 460
þúsund ísl. kr.
Ólögleg fjölföldun mynd-
banda og tónlistargeisladiska
er afar algeng í Júgóslavíu og
öðrum löndum Mið- og Austur-
Evrópu. Framleiðendur kvik-
mynda og tónlistar fá hins veg-
ar ekkert í sinn snúð vegna sölu
sjóræningjaútgáfna og er
frumkvæði Tuck-bíódreifingar-
fyrirtækisins í Belgrað talinn
liður í því að bregðast við þess-
um vanda.
Hyggjast forsvarsmenn
Tuck greiða fúlgur fjár til
þeirra sem skila ólöglegum ein-
tökum af myndunum vinsælu
um Harry Potter og meistara-
verk J.R.R. Tolkiens og lýsa sig
jafnframt reiðubúna til að vitna
fyrir rétti gegn verslun þeirri
sem seldi viðkomandi vöruna.
Handtók lögreglan í Króatíu
í gær 24 ára gamlan mann sem
hafði fjölfaldað Harry Potter-
myndina og auglýst til sölu á
Netinu. Var hald lagt á 1.385
eintök af myndbandinu sem
fundust á heimili mannsins.
SEX manns féllu í átökum örygg-
islögreglu heimastjórnar Palest-
ínumanna og liðsmanna íslamskra
öfgasamtaka á Gazaströndinni í
gær en Yasser Arafat, forseti
heimastjórnarinnar, reynir nú að
koma böndum á róttækari öflin í
röðum Palestínumanna. Fór Ara-
fat um síðustu helgi fram á það að
öfgamenn hættu sjálfsmorðs-
árásum sínum á ísraelsk skot-
mörk og í gær staðfestu Hamas-
samtökin að þau hygðust verða
við beiðninni. Þykir það vekja
vonir um að binda megi enda á
fimmtán mánaða blóðuga baráttu
í Miðausturlöndum. Jihad-sam-
tökin sögðu að þau myndu ekki
fylgja frumkvæði Hamas en einn
leiðtoga Jihad sagði samt að þau
íhuguðu að hætta sjálfsmorðs-
árásum og tryggja þannig einingu
Palestínumanna.
Á myndinni má sjá ísraelskan
hermann í skriðdreka í Ramallah
á Vesturbakkanum í gær.
AP
Mannfall á Gaza
TALSMENN bandaríska varnar-
málaráðuneytisins sögðu í gærkvöldi
að enginn vafi léki á því að menn sem
féllu í loftárás á bílalest skammt frá
Khost í Afganistan í gærmorgun
hefðu verið úr röðum talibana eða
samtakanna al-Qaeda. Afgönsk
fréttastofa með aðalstöðvar í Pakist-
an fullyrti í gærdag að minnst 65
manns hefðu fallið og hefði verið um
að ræða ættarhöfðingja og herfor-
ingja á leið til að taka þátt í hátíð-
arhöldum í Kabúl í dag þegar ný
bráðabirgðastjórn undir forystu
Hamids Karzais tekur við völdum.
Peter Pace, hershöfðingi og vara-
forseti bandaríska herráðsins, sagði
að í lestinni hefðu verið 10–12 bílar
leiðtoga úr röðum fjandmanna Norð-
urbandalagsins og bandamanna.
Beitt hefði verið AC-130 herflugvél-
um og orrustuflugvélum gegn lest-
inni. Að sögn Pace og Donalds Rums-
felds varnarmálaráðherra féllu
margir og flestum farartækjunum
var auk þess grandað. Pace sagði að
borist hefðu upplýsingar um að á ferð
væru leiðtogar úr liði fjandmannanna
og því hefði verið gerð árás. Það
myndi áfram verða gert þegar slíkar
upplýsingar bærust.
Heimildarmaður úr hópi hinna
nýju valdhafa í Kabúl sagði að í bíla-
lestinni hefðu verið gestir sem vænt-
anleg stjórn hefði boðið til höfuðborg-
arinnar. Mennirnir hefðu farið um
fáfarinn veg vegna þess að stuðnings-
menn talibanaleiðtogans Jalaluddins
Haqqanis, sem hefur unnið mikið
með al-Qaeda, hefðu hótað að koma í
veg fyrir að ættarhöfðingjarnir kæm-
ust til Kabúl.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur boðið Karzai að koma í heim-
sókn til Washington eftir áramótin og
hefur heitið því að vinna „mjög náið“
með nýju stjórninni, en í henni eiga
fulltrúar helstu þjóðarbrota og flokka
sæti að talibönum undanskildum.
Mark Malloch-Brown, talsmaður
Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (UNDP), sagði í gær að veita
yrði Afgönum níu milljarða dollara
fjárstyrk næstu fimm árin til að
byggja efnahaginn upp á ný eftir
meira en tveggja áratuga átök. Við-
staddir athöfnina í dag verða fulltrúi
Bandaríkjastjórnar, James Dobbins
og Tommy Franks hershöfðingi.
53 breskir hermenn úr sveitum
landgönguliða flotans, fyrstu liðs-
mennirnir í væntanlegu friðargæslu-
liði sem öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur lagt blessun sína yfir,
komu í gær til Bagram-flugvallar í
grennd við Kabúl. Alls verða í gæslu-
liðinu 3.000 til 5.000 manns frá mörg-
um löndum, þ. á m. Bretlandi, Þýska-
landi og Noregi .
Um 7.000 menn sem grunaðir eru
um að vera talibanahermenn eða liðs-
menn al-Qaeda munu nú vera í vörslu
bandamanna. Mennirnir verða yfir-
heyrðir í Afganistan, að sögn Kenn-
eths Keiths, fyrrverandi sendiherra
Bandaríkjanna í Qatar, á frétta-
mannafundi í Pakistan.
Stjórn Karzais
tekur við í dag
Bandaríkjamenn
sagðir hafa fellt
ættarhöfðingja
vegna mistaka
Kabúl, Washington, Islamabad, AP, AFP.
Hellarnir/26
PERONISTINN Ramon Puerta tók í
gær við forsetaembætti í Argentínu
af Fernando de la Rua sem sagði af
sér á fimmtudag eftir tveggja daga
blóðugar óeirðir sem kostuðu alls 27
manns lífið. Efnahagsöngþveiti er í
landinu og erlendar skuldir að sliga
það. Puerta sagðist aðeins myndu
gegna embættinu í tvo sólarhringa en
þá myndi þingið kjósa mann til að
gegna því út kjörtímabilið, tvö ár eru
eftir af því. Er búist við að héraðs-
stjórinn Adolfo Rodriguez Saa nái
kjöri í embættið.
Um 500 manns hafa verið hand-
teknir vegna óeirðanna. Stjórnvöld
hafa gripið til harkalegra aðhaldsað-
gerða til að koma í veg fyrir algert
hrun í efnahagnum en erlendar skuld-
ir ríkisins eru um 132 milljarðar doll-
ara, um 13.500 milljarðar króna. Arg-
entínumenn eru um 36 milljónir.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
og leiðtogar Mexíkó og Kanada létu í
gær í ljós áhyggjur af stöðu mála en
sögðu jafnframt í sameiginlegri yfir-
lýsingu að lýðræði Argentínumanna
væri svo öflugt að stofnanir þess
myndu ráða fram úr vandanum. Ari
Fleischer, talsmaður Bush, sagði að
svo virtist sem vandinn myndi ekki
breiðast út til grannlanda Argentínu
og það væri nokkur huggun. Banda-
rískir ríkisborgarar voru í gær var-
aðir við því að fara til Argentínu
vegna ástandsins.
Ekki kom til alvarlegra átaka í gær
en áfram bárust fréttir af gripdeild-
um. Puerta sagðist ætla að íhuga að
setja aftur neyðarlög að hluta en de la
Rua setti slík lög á fimmtudag. Hann
nam þau hins vegar úr gildi áður en
hann fór frá. Stjórnarandstaða Per-
onista hafnaði ósk de la Rua um að
mynduð yrði þjóðstjórn.
Puerta sagði að héraðsleiðtogar í
Peronistaflokknum vildu að efnt yrði
til forsetakjörs innan 60 daga. Fjöl-
miðlar sögðu að íhugað væri að af-
nema tengingu pesoans við Banda-
ríkjadollara. La Nacion sagði að
þingmenn ræddu einnig hugmyndir
um að fella gengi pesoans um 50% og
seðlabankinn hætti í gær viðskiptum
með gjaldeyri til að koma í veg fyrir
spákaupmennsku. Stærsta verka-
lýðssambandið boðaði í gær allsherj-
arverkfall en ekki hlýddu allir kallinu.
Reuters
Aldraðir viðskiptavinir banka í Buenos Aires í biðröð í gær en þak var
sett á fjárhæðir sem taka mátti út af reikningum.
Puerta forseti
til bráðabirgða
Buenos Aires, Washington. AP, AFP.
De la Rua /28
TIL stimpinga kom í gær þegar ung-
lingar í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu,
reyndu að komast inn á diskóstaðinn
Indigo í miðborginni og fór svo að
átta tróðust undir. Fimm að auki
slösuðust illa.
Að sögn lögreglu runnu hundruð
unglinga á ísi lögðum stigaþrepum
við húsið og í fátinu tróðust fórnar-
lömbin undir. Síðasti skóladagur á
misserinu var í gær og hugðust
margir nemendur fagna af því til-
efni. Um 1.500 manns voru við inn-
ganginn.
Átta tróðust undir
Sofiu. AP.