Morgunblaðið - 22.12.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ef þú ert í M12 og bætir við rás
færðu einnig Thomson Videosendi
með 50% afslætti!
Landsins mesta úr
val
Sparaðu
og verslaðu
jólatónlistina
í BT
áritar í
BT skeifunni
kl.15 í dag
1.599 2.799
**
Við verðum að spara, karlinn minn, það er orðið svo dýrt að fljúga.
Hérna hefurðu sjókort og kompás, svo syndir þú bara.
Jólaföt íslenskra karla
Hátíðleikinn
verður alltaf
til staðar
NÚ ER Gunna ánýja kjólnum, núeru að koma jól,
Siggi er á síðum buxum,
Solla á bláum kjól …
o.s.frv. Jólin eru hátíðis-
dagar í hæsta flokki og all-
ur þorri landsmanna telur
það sjálfsagt að draga
fram og draga á sig spari-
klæðnaðinn. En hverjar
eru venjur Íslendinga í
þessum efnum og er til
eitthvað sem heitir jóla-
tíska í fatnaði? Meðal fróð-
ustu manna hérlendis um
klæðaburð Íslendinga er
Sævar Karl Ólason, klæð-
skeri og kaupmaður.
Morgunblaðið ræddi við
hann um föt og fatavenjur
Íslendinga á jólum.
– Heldur þú að Íslend-
ingar hafi dregið úr hátíðleika í
klæðaburði á jólum hin síðari ár?
„Vissulega hefur fatatíska
breyst ekki síður en allt annað
undanfarin ár, ekki síst hér á
landi þar sem allt hefur umhverfst
á liðnum 10-15 árum. En jólin eru
hátíð okkar allra og allir sem ég
þekki gera sér dagamun á jólun-
um. Hluti af því að gera sér þann-
ig dagamun er að fara í öðru vísi
föt heldur en maður vinnur í eða
stundar sportið sitt eða notar í
sumarfríinu. Margir átta sig ekki
á því að það er munur á sumar- og
vetrarfatnaði. Sumarföt eru að
jafnaði úr þunnum efnum og
snöggum í skærum litum og henta
varla á jólunum. Vetrarfatnaður
er þykkari, gjarnan í náttúrulit-
um, mjúkum efnum og hlýjum.“
– Virðist þér menn vera fast-
heldnir á gömlu gildin í fatavali á
jólum?
„Já, mér finnst það, en mér
finnst þó að menn gætu og ættu
að leyfa sér meira. Það er hallær-
islegt að fara út frakkalaus í
sparifötum og sumir draga ennþá
einu sinni fram gömlu góðu spari-
fötin sín sem passa ekki lengur á
þá. Núna eru jólin 2001 og örugg-
lega komin ný öld og nýr tíðar-
andi, tími til að skipta um stíl.“
– Hvað er algengt í klæðnaði
karla á jólum?
„Dökk föt með ljósari skyrtu,
þeir sem nota bindi fá sér skært
bindi. Í dökkum fötum eru karlar
hátíðlegar klæddir heldur en í
ljósum fötum. Þeir sem vinna í
dökkum fötum nota smókinginn
sinn á jólum og hvers vegna ekki
að fara í kjólfötin? Það gerir jóla-
borðhaldið ennþá hátíðlegra.“
– En hvað er algengt í klæðnaði
kvenna á jólum?
„Það er fyrst og fremst jóla-
kjóllinn, ekki danskjóll.“
Hvað finnst þér helst vanta upp
á í jólaklæðaburði fólks?
„Mér finnst helst vanta á
klæðaburð fólks vandaðan fatnað,
þegar talað er um vandað þarf að
fara saman efni, vinna,
snið og heildarútlit.
Sumir eru að neyða sig
í ópassleg föt sem þeir
eru vaxnir frá. Þeir
ætla að grennast.
Nokkrir aka um á fornbílum og
nota þess vegna föt af sömu ár-
gerð og bíllinn, en mjög margir
aka um á glæsibílum af nýjustu
gerð en huga ekki að sjálfum sér
og hverju þeir klæðast.“
– Sagt er að mörgum líði illa í
betri fötum. Hvað getur valdið því
og hvað er til úrbóta?
„Ef einhverjum líður illa í
sparifötunum þá er ekki ósenni-
legt að þeim hafi verið seld ópass-
leg föt úr lélegu efni. Eða að ein-
hver hafi keypt á þá föt ómátuð.
Betri föt eiga að vera betri föt. Ef
átt er við fatnað sem nota á við há-
tíðleg tækifæri þá verða menn að
þekkja muninn á peysu og smók-
ing.“
– Er mikið um að fólk kaupi sér
betri föt rétt fyrir jólin?
„Margir hafa það fyrir sið að
kaupa sér nýja skyrtu og bindi á
Þorláksmessu og eru í henni glæ-
nýrri á aðfangadagskvöld til há-
tíðarbrigða. Þeir fá vonandi mjúk-
an pakka með mjúkri peysu til að
nota við annað tækifæri. Sama á
við um konur þær fá sér margar
nýjan kjól fyrir jólin og vonandi fá
þær vetrarkápu í jólagjöf.“
– En hvað heldurðu með form-
legheitin og íhaldssemina í jóla-
fatnaði þegar yngri kynslóðirnar
marka sér eigin spor?
„Ég er þess fullviss að hátíð-
leiki mun halda sínum sessi, en
það er rétt, unga fólkið er miklu
sjálfstæðara í dag en áður í smekk
og stíl. Það eru ekki lengur allir
eins líkt og var fyrir aðeins tíu ár-
um síðan. En hátíðleikinn verður
alltaf til staðar, þetta er hátíð
ljóssins, stystu dagar ársins eru
um þessar mundir og nú snýst allt
við, dag tekur að lengja á ný. Jóla-
haldið er viss hápunktur.“
– En jólafatnaður
gæti breyst eða hvað?
„Já, hann gæti gert
það og gerir það ef-
laust. Það koma inn
aðrar gerðir af fötum.
Yngra fólkið vill meira frelsi. Það
vilja ekki allir ganga með háls-
bindi eða slaufur, en eftirsóknin
verður þó í alvöru efni, ekki gervi-
efni. Menn munu áfram vilja nátt-
úruleg og vönduð efni og er það í
samræmi við lifnaðarhætti. Sem
betur fer búa flestir við allsnægtir
í landinu, mikið er lagt upp úr um-
gjörð, heimili, bíll og fötin fylgja
með.“
Sævar Karl Ólason
Sævar Karl Ólason fæddist í
Reykjavík 14. ágúst 1947. Nam
fyrst loftskeytamennsku, en síð-
an klæðskurð árið 1974 og hefur
rekið fyrirtæki sitt sem kaup-
maður og klæðskeri í miðborg
Reykjavíkur allar götur síðan.
Eiginkona Sævars og samstarfs-
maður er Erla Þórarinsdóttir og
eiga þau tvo uppkomna syni,
Þórarin Örn háls-, nef og eyrna-
lækni í Noregi, og Atla Frey upp-
eldisfræðing og heimspeking í
Þýskalandi. Sævar Karl er með-
limur að International Mens
Wear Group.
… en huga
ekki að
sjálfum sér