Morgunblaðið - 22.12.2001, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
)
FIÐLULEIKARINN og tónlistar-
kennarinn Ewa Tosik trúði varla
sínum eigin eyrum þegar lög-
reglan tilkynnti henni að tvær fiðl-
ur, sem stolið var af heimili hennar
fyrir um mánuði, hefðu komið í
leitirnar.
Fiðlurnar bárust til lögreglu fyr-
ir milligöngu manns sem er kunn-
ugur innbrotsþjófnum en hann
hafði samband við Breiðholtsstöð
lögreglunnar í kjölfar umfjöllunar
fjölmiðla um innbrotið.
„Þetta er kraftaverk og stór-
kostlegt mál,“ sagði Ewa í gær eft-
ir að hún veitti fiðlunum viðtöku.
Sonur hennar á aðra fiðluna en
Ewa hina. Sú fiðla er talsvert verð-
mæt en Ewa segir að verðmætin
felist þó fyrst og fremst í því að
hún hefur spilað á fiðluna í áratug
og hljóðfærið er því eiginlega hluti
af henni sjálfri.
Ewa var stödd hjá móður sinni í
Póllandi þegar hún frétti af inn-
brotinu. Áður en hún sneri til Ís-
lands leitaði hún til fiðlusmiðsins
Jan Pawlikowski í Kraká sem
hafði smíðað fiðluna hennar og
fékk aðra lánaða. Hún gaf þó aldr-
ei upp vonina um að fiðlurnar
kæmu í leitirnar en hún renndi
ekki grun í að það myndi gerast
svona fljótt. Auk þess kom það
henni þægilega á óvart að jafnt
fiðlurnar sem fiðlubogar voru al-
gjörlega óskemmd.
Óvenjuleg aðferð
Það var hinn 14. desember sem
maður hafði samband við Breið-
holtsstöð lögreglunnar í Reykjavík
og sagðist þekkja til þess sem stal
fiðlunum. Hann gæti jafnframt séð
til þess að fiðlunum yrði komið til
skila gegn því að hvorki hans eigið
nafn né innbrotsþjófsins myndi
koma fram. Á þetta var fallist gegn
því að fiðlurnar væru óskemmdar
sem þær reyndust vera. „Í þessu
tilviki er ljóst að þjófurinn hefur
uppgötvað að hann gæti ekki selt
þetta hér á landi. Þá er þetta
einskis virði fyrir hann,“ segir
Bjarnþór Aðalsteinsson lögreglu-
fulltrúi. Erfitt hefði verið að koma
fiðlunum í verð og því er líklegast
að hefði þeim ekki verið skilað
hefði þjófurinn séð sér þann kost
vænstan að farga þeim.
Bjarnþór segir þetta óvenjulegt
mál og að e.t.v. sé þetta ekki rétta
leiðin til þess að nálgast þýfi. Hafi
lögregla á hinn bóginn ekki aðra
möguleika sé þessi leið notuð en
mat sé þó lagt á hvert mál fyrir sig.
Morgunblaðið/Júlíus
Þórður Hilmarsson, Bjarnþór Aðalsteinsson og Jóhann Viggósson lögreglumenn afhenda Ewu Tosik stolnu fiðlurnar.
Fagnaðarfundir þeg-
ar fiðlum var skilað
Atlanta
bætir við
sig fjórum
breiðþotum
SKRÁÐAR voru í gær hjá íslensk-
um loftferðayfirvöldum þrjár Bo-
eing 747-breiðþotur sem Flugfélag-
ið Atlanta hefur tekið á leigu vegna
pílagrímaflugs og áætlunarflugs.
Fjórða viðbótarþotan verður skráð
í janúar. Flugfloti Atlanta frá ára-
mótum mun þá samanstanda af 18
Boeing 747-þotum, þar af tveimur
fraktvélum og þremur 767-þotum,
alls 21 breiðþotu.
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri
Atlanta, tjáði Morgunblaðinu að
þrjár af viðbótarþotunum yrðu not-
aðar í pílagrímaflug félagsins sem
hefst fljótlega í janúar. Tvær verða
í ferðum fyrir Garuda-flugfélagið í
Indónesíu, ein fyrir Air Algerie og
fjórða þotan í áætlunarflugi fyrir
Nigeria Airways.
Þoturnar eru leigðar af Virgin-
flugfélaginu.
Þá hefur Atlanta nýverið hafið
flug fyrir Ethiopian Airlines á Bo-
eing 767-þotu. Er flogið milli Addis
Ababa og borga í Afríku og til
Rómar. Samið hefur verið um verk-
efnið til eins mánaðar og telur for-
stjórinn hugsanlegt að það verði
framlengt.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA,
Árni M. Mathiesen, ákvað í gær að
auka leyfilegan heildarafla fiskveiði-
ársins á ýsu, ufsa, skarkola og stein-
bít. Aflaheimildir á ýsu hækka um 11
þúsund tonn eða í 41 þúsund tonn,
ufsa um 7 þúsund tonn eða í 37 þús-
und tonn, skarkola um þúsund tonn
eða í 5 þúsund tonn og steinbít um
3.100 tonn eða í 16.100 tonn. Þessar
breytingar eru meiri í þorskígildum
talið en samdráttur í leyfilegum
heildarafla þorsks sem kynntur var í
júní sl., eða 33.000 þorskígildistonn,
að meðtalinni aukningu á úthafs-
rækjukvóta, á móti 30.000 tonnum.
Útflutningstekjur sjávarafurða
hækka um þrjá milljarða auk
þriggja milljarða hækkunar tekn-
anna vegna aukningar á leyfilegum
heildarafla rækju. Þetta felur í sér
að útflutningstekjur sjávarafurða
hækka um 5% frá endurskoðaðri
þjóðhagsspá sem birt var í byrjun
desember. Áætlað er að útflutnings-
tekjur sjávarafurða hækki um 13%
frá árinu 2001 og 33% frá árinu 2000.
Að sögn ráðherrans er leyfilegur
heildarafli í umræddum tegundum
aukinn m.a. vegna laga um stjórn
fiskveiða sem tóku gildi í gær og
fjalla um aukningu á heildarafla
krókaaflamarksbáta. Eins ákvað
hann að hækka leyfilegan heildar-
afla í umræddum tegundum vegna
mikillar umræðu um stjórn fiskveiða
undanfarin misseri. Þar koma helst
til skýrslur Hafrannsóknastofnunar-
innar fyrr á árinu sem ollu töluverð-
um vonbrigðum, sem og mikil um-
ræða um brottkast, en við hvoru
tveggja hefur verið brugðist á ýms-
an hátt. Hinsvegar sé ljóst að með
minni kvóta en óbreyttri sókn verð-
ur til þrýstingur á brottkast.
Ætla má að með aukningu á veiði-
heimildum í ýsu upp í 41 þúsund
tonn sé heildarkvóti krókaafla-
marksbáta í ýsu að nálgast sjö þús-
und tonn.
Sjávarútvegsráðherra hefur falið
Hafrannsóknastofnuninni að koma
með tillögur að friðun hrygningar-
þorsks á vetrarvertíð, svo og friðun
hrygningarsvæða steinbíts og skar-
kola, í kjölfar umræðna um verndun
hrygningarsvæða mikilvægra nytja-
fiska að undanförnu.
Aflaheimildir auknar um 33 þúsund þorskígildistonn
Útflutningsverðmæti
eykst um 6 milljarða
Ýsukvótinn/25
SÖLU á hlut ríkisins í Lands-
banka Íslands til kjölfestufjárfest-
is hefur verið frestað um óákveð-
inn tíma vegna slæmra markaðs-
skilyrða. Stefnt hafði verið að því
að selja a.m.k. þriðjung hlutafjár í
félaginu fyrir lok ársins.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir
nokkra banka hafa sýnt áhuga á
kaupum en vill ekki gefa upp
hverjir þeir eru.
„Viðræður við þá gengu ekki
það langt að fram kæmi tilboð.
Þetta leit allvel út í upphafi en
markaðsaðstæður erlendis versn-
uðu mjög á miðju ferlinu þegar
ósköpin gengu yfir Bandaríkin.
Við urðum mjög vör við það. Þetta
er ein helsta ástæðan fyrir því að
þetta tókst ekki, í þessari lotu alla-
vega.“
Um framhaldið segir Valgerður
að enn sé stefnt á að selja Lands-
bankann á kjörtímabilinu.
„Við fylgjumst grannt með að-
stæðum á markaði og seljum þeg-
ar tækifæri gefst og tilboð berast.
Landsbanki Íslands er góður fjár-
festingarkostur og við munum
ekki selja hann nema gott verð fá-
ist.“
Einkavæðingu
Landsbanka frestað