Morgunblaðið - 22.12.2001, Síða 12
FRAMSALSBEIÐNI yfir
Lettanum sem handtekinn var
á Dalvík fyrir skömmu hefur
borist til alþjóðadeildar ríkis-
lögreglustjóra og er hún til
meðferðar hjá dómsmálaráðu-
neytinu og ríkissaksóknara.
Gæsluvarðhald sem hann hef-
ur sætt frá 24. nóvember hef-
ur verið framlengt til 2. janúar
nk.
Í framsalsbeiðninni kemur
fram að hann er grunaður um
að hafa farið eða átt aðild að
þremur morðum í Lettlandi en
í þeim gögnum sem bárust
ríkislögreglustjóra í nóvember
var á hinn bóginn greint frá
því að hann væri grunaður um
tvo morð. Samkvæmt upplýs-
ingum frá ríkislögreglustjóra
var einn mannanna myrtur
með exi árið 1997. Hin morðin
voru framin árið 2000 og árið
2001 og voru bæði fórnarlömb-
in skotin til bana. Allir voru
myrtir eftir að hafa komið að
þjófum við innbrot.
Framsals-
beiðni hef-
ur borist
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STÝRIMANNASKÓLINN í Reykja-
vík útskrifaði á fimmtudag sex nem-
endur sem lokið hafa skipstjórn-
arprófi 3. stigs. Þetta eru fyrstu
nemendurnir sem ljúka þessum
áfanga eftir nýrri skipan skipstjórn-
arnámsins sem tekið var upp árið
1998.
Með 3. stigs skipstjórnarprófi og
fullnægjandi siglingartíma hafa
nemendurnir réttindi sem skip-
stjórnarmenn, yfirstýrimenn og
skipstjórar á flutninga- og farþega-
skipum af hvaða stærð sem er og
hvar sem er í heiminum. Meðal nem-
endanna sem útskrifuðust var 19
ára gömul stúlka, Ragnheiður
Sveinþórsdóttir, en hún er fjórða
konan sem útskrifast með 3. stigs
skipstjórnarréttindi frá Stýri-
mannaskólanum frá upphafi. Ein
kona hefur lokið 4. stigs skipstjórn-
arnámi eða svokölluðu skipherra-
stigi.
Aðrir sem útskrifuðust á 3. skip-
stjórnarstigi voru Bergur Páll Krist-
insson, Guðmundur Páll Guðmunds-
son, Helgi Aage Torfason, Jóhannes
Haraldsson og Valgeir Theódór
Helgason. Við Stýrimannaskólann í
Reykjavík voru á sl. haustönn sam-
tals 77 nemendur við nám, þegar
flest var. Í dagskólanum voru 57
nemendur, í fjarnámi eru 12 nem-
endur og 8 nemendur voru í kvöld-
skóla í 30 rúmlesta réttindanámi.
Fjórða konan fær
3. stigs réttindi
Morgunblaðið/Þorkell
Ragnheiður Sveinþórsdóttir tekur við viðurkenningu úr hendi Guðjóns
Ármanns Eyjólfssonar fyrir framúrskarandi árangur í siglingafræði.
Útskrift Stýrimannaskólans í Reykjavík
LÖGREGLAN í Kópavogi og
Reykjavík tóku höndum saman
í fyrrinótt og stöðvuðu alla öku-
menn sem voru á leið suður
Kringlumýrarbrautina við
Nesti í Fossvogi.
Aðgerðin hófst nokkru eftir
miðnætti og stóð í ríflega
klukkustund.
Allir stöðvaðir
og fimm ölvaðir
AUÐUNN Atlason, sendi-
ráðsritari í utanríkisráðu-
neytinu, segir að ef beiðni
berist til utanríkisráðuneytis-
ins um að Ísland sendi fólk til
friðargæslustarfa í Afganist-
an muni ráðuneytið taka það
til skoðunar. Engin slík
beiðni hefur enn borist ráðu-
neytinu.
Á vegum Sameinuðu þjóð-
anna er nú í undirbúningi að
senda friðargæslulið til Afg-
anistans. Liðið verður að
stærstum hluta skipað her-
mönnum, en einnig eru uppi
hugmyndir um að það verði
skipað borgaralegum friðar-
gæsluliðum.
Ekki verið ósk-
að eftir friðar-
gæsluliðum
SAMÞYKKT var einróma á
fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur á fimmtudag að lækka
afltaxta Orkuveitu Reykjavík-
ur. Tekur lækkunin gildi frá
næstu áramótum.
Afltaxtar rafmagns eru eink-
um notaðir af fyrirtækjum og
verða þeir lækkaðir um 10%.
Samþykkt var á síðasta ári að
lækka taxta til almennings um
10% og jafnframt boðað að
sams konar lækkun yrði í ár á
taxta til fyrirtækja.
Alfreð Þorsteinsson, formað-
ur stjórnar OR, tjáði Morgun-
blaðinu að þetta myndi þýða
um 100 milljóna króna lækkun
á taxta fyrirtækja á svæði
Orkuveitunnar, þ.e. í Reykjavík
og á Akranesi.
OR lækkar
afltaxta til
fyrirtækja
ÞINGFLOKKUR Vinstri hreyfing-
arinnar – græns framboðs, VG, kom
saman til fundar í gær vegna úr-
skurðar Sivjar Friðleifsdóttur um-
hverfisráðherra um Kárahnjúka-
virkjun. Samþykkt var yfirlýsing
þar sem úrskurðinum er mótmælt
harðlega, hann gangi þvert gegn
faglegri niðurstöðu Skipulagsstofn-
unar sem hafi gefið virkjuninni al-
gjöra falleinkunn. Þar segir einnig
að Siv hafi brugðist þeim málaflokki
sem hún beri ábyrgð á, hún hafi
verið vanhæf til að úrskurða í mál-
inu sem hlutlaus aðili og hefði borið
að víkja sæti.
Þingflokkurinn boðar harða and-
stöðu við málið á Alþingi eftir jólafrí
og á blaðamannafundi í gær sagði
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, að óskað verði eftir því að þing-
umræðunni verði útvarpað sérstak-
lega, samkvæmt þingsköpum, þar
sem um stórt mál sé að ræða. Skor-
ar þingflokkurinn á almenning og
alla náttúruunnendur að halda vöku
sinni gagnvart „þeirri grímulausu
pólitísku valdbeitingu sem umhverf-
isráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar-
innar beitir í þessu máli“, eins og
segir í yfirlýsingunni.
Hrein pólitísk
valdbeiting
Þingmenn VG segja ljóst að virkj-
unin ein og sér hefði í för með sér
meiri umhverfisspjöll og óaftur-
kræfar breytingar á landslagi og
náttúrufari en nokkru sinni hafi ver-
ið efnt til hér á landi og þótt víðar
væri leitað.
„Úrskurður umhverfisráðherra er
hrein pólitísk valdbeiting. Sá tími
sem liðinn er síðan Skipulagsstofn-
un kvað upp sinn úrskurð 1. ágúst
sl. virðist fyrst og fremst hafa farið í
að leita leiða til að láta fyrirfram
ákveðna niðurstöðu líta skár út. Nýr
farvegur var búinn til fyrir málið
utan laga, einhvers konar mála-
mynda-viðbótarmat á vegum ráðu-
neytisins, og er það eitt út af fyrir
sig dæmafár gjörningur. Þrátt fyrir
þetta tekst ekki að sýna fram á neitt
nýtt sem réttlæti úrskurð umhverf-
isráðherra,“ segir ennfremur í yf-
irlýsingu VG.
Steingrímur sagði á fundi með
blaðamönnum að margt athyglisvert
væri í úrskurði umhverfisráðherra
og þeim viðbrögðum við honum sem
fram hefðu komið. Vísaði hann þar
m.a. til ummæla Friðriks Sophus-
sonar, forstjóra Landsvirkjunar, í
Morgunblaðinu í gær þess efnis að
skilyrði ráðherra fyrir framkvæmd-
inni væru það kostnaðarsöm að þeir
peningar yrðu ekki sóttir til orku-
kaupandans þar sem þegar lægju
fyrir samningsdrög um sölu orkunn-
ar. Steingrímur sagði þetta vekja
ýmsar spurningar, m.a. þá hvernig
hægt hefði verið að semja um orku-
verð vegna framkvæmdar sem búið
hefði verið að hafna með úrskurði
Skipulagsstofnunar. Ummælin
væru einnig vísbending um að sam-
ið hefði verið um svo lágt verð að
forstjóri Landsvirkjunar færi strax
á taugum þegar kostnaðurinn færi
upp um einhverjar upphæðir.
Áleitnar spurn-
ingar vakna
Steingrímur sagði ennfremur að
tímamótaafstöðu væri að finna í úr-
skurði umhverfisráðherra, þ.e. að
ekki bæri að fjalla um þjóðhagsleg
áhrif virkjunarinnar við mat á um-
hverfisáhrifum. Í sinni skýrslu hefði
Landsvirkjun viðurkennt að fram-
kvæmdinni fylgdu umtalsverð um-
hverfisáhrif sem væru réttlætanleg
með vísan til þjóðhagslegrar arð-
semi. Steingrímur sagði að í þessu
ljósi væri úrskurður ráðherra þeim
mun grófari, að snúa samt sem áður
við úrskurði Skipulagsstjóra. Úr-
skurðurinn ætti framvegis eftir að
hafa áhrif á sambærileg mál.
„Ferlið í heild sinni, og lögform-
lega staða þess, hlýtur að koma til
skoðunar. Mjög áleitnar spurningar
vakna um hvort ekki séu meira en
nægar efnislegar ástæður þegar
fyrir hendi til að vísa þessu öllu
saman heim í hérað og byrja upp á
nýtt,“ sagði Steingrímur.
Þingflokkur VG mótmælir úrskurði umhverfisráðherra harðlega
Nýr farvegur búinn til utan laga
VIÐ útskriftarathöfn í Vélskóla
Íslands hinn 20. desember síðast-
liðinn voru brautskráðir tíu vél-
stjórar og vélfræðingar.
Sjö voru brautskráðir af 1. stigi
og þrír af 4.stigi, sem er grunn-
urinn undir hæstu starfsréttindi.
Fleiri en hér koma fram hafa öðl-
ast réttindi á önninni af ýmsum
stigum en hafa ekki farið fram á
formlega brautskráningu.
Að lokinni útskriftarathöfn
fengu eftirtaldir 4. stigs útskrift-
arnemar verðlaun: Gunnar Freyr
Þrastarson fyrir góðan náms-
árangur í raf- og vélfræðigreinum
og verðlaun fyrir góða ástundun.
Þórunn Þórsdóttir fyrir góðan
námsárangur í raf- og vélfræði-
greinum og verðlaun fyrir góðan
námsárangur í raungreinum.
Bókaútgáfan Skerpla gaf öllum
útskriftarnemum áritað eintak af
nýja sjómannaalmanakinu.
Það þykir tíðindum sæta að í
þessum fremur litla útskrift-
arhópi voru tvær stúlkur sem
tóku við skírteinum en auk Þór-
unnar Þórsdóttur sem áður er
nefnd tók Jónína Þórunn Hansen
við 1. stigs skírteini en hún
áformar að halda áfram námi á
komandi vorönn. Það er einnig at-
hyglisvert að tveir synir Jónínu
innrituðust í Vélskólann nú fyrir
áramót og hefja nám við skólann
á komandi vorönn.
Þórunn Þórsdóttir er þriðja
stúlkan sem útskrifast með 4. stig
Vélskólans frá því að skólinn var
stofnaður 1915. Hinar tvær eru
Guðný Lára Pedersen sem út-
skrifaðist 1978 og Rannveig Rist
sem útskrifaðist 1983.
Að lokinni ræðu Björgvins Þórs
Jóhannssonar skólameistara og
afhendingu verðlauna var boðið
til kaffisamsætis.
Þórunn Þórsdóttir, sem er þriðja stúlkan sem útskrifast með 4. stig frá
Vélskóla Íslands frá upphafi, hlaut verðlaun fyrir námsárangur.
Hluti hópsins sem útskrifaðist frá Vélskólanum á fimmtudag ásamt
Björgvini Þór Jóhannssyni skólameistara.
Konur áberandi
við útskrift í
Vélskóla Íslands
STUTT