Morgunblaðið - 22.12.2001, Side 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Knattspyrnufélag Akureyrar
sendir
stuðningsaðilum, velunnurum, KA-klúbbnum í Reykjavík,
sjálfboðaliðum, þjálfurum, iðkendum og foreldrum þeirra
og dyggum stuðningsmönnum um land allt,
bestu jóla- og nýárskveðjur.
Sjáumst gul og glöð á nýju ári.
Knattspyrnufélag Akureyrar
Handmálaðir
englar
sími 462 2900
Blómin
í bænum
FERÐAFÉLAG Akureyrar
efnir til almenns félagsfundar á
Strandgötu 23 fimmtudags-
kvöldið 27. desember kl. 20. Þar
verður m.a. rætt um
framtíðaráform félagsins. Fé-
lagsmenn eru hvattir til að
mæta og viðra hugmyndir sínar.
Framtíðar-
áform rædd
Ferðafélag
Akureyrar
ALLS var 41 nemandi braut-
skráður frá Verkmenntaskólanum
á Akureyri í gær. Í hópnum voru
29 stúdentar, 6 sjúkraliðar, fjórir
iðnaðarmenn og tveir iðnmeist-
arar.
Elísabet Sigurðardóttir hlaut
verðlaun fyrir besta samanlagðan
árangur á stúdentsprófi sem og
einnig fyrir framúrskarandi ár-
angur í dönsku. Elísabet lauk
stúdentsprófi á sjö önnum. Það
gerðu einnig tveir aðrir nemendur
sem brautskráðust í gær, Katla
Þorsteinsdóttir og Guðlaugur
Bragi Magnússon. Þá hlaut Mar-
grét Ágústsdóttir verðlaun fyrir
góðan árangur í íslensku sem og
samfélagsgreinum. Eygló Arn-
ardóttir sjúkraliði fékk verðlaun
sem kölluð hafa verið „hlýjar
hendur“ frá Rótarýklúbbi Ak-
ureyrar.
Nemendagarðar táknrænir
fyrir samstarf skólanna
Hjalti Jón Sveinsson skólameist-
ari ræddi m.a. um sameiginlegt
átak framhaldsskólanna, VMA,
Menntaskólans á Akureyri og Há-
skólans á Akureyri, en skólarnir
þrír munu efna til sameiginlegs
kynningardags í febrúar næst-
komandi. Fagnaði skólameistari
því að skrifað hefur verið undir
samninga um byggingu nem-
endagarða við MA, en þeir eru
einnig ætlaðir nemendum VMA.
Því verður unnt að bjóða verkið út
í vetur og framkvæmdir hefjast
næsta vor. Standist áætlanir verð-
ur unnt að bjóða 150 nemendum
VMA húsnæði í nemendagörð-
unum haustið 2003. Nemenda-
garðana væntanlegu sagði Hjalti
Jón vera enn eina fjöðrina í hatt
Akureyrarbæjar sem skólabæjar.
Þeir væru einnig táknrænir fyrir
gott samstarf skólanna tveggja.
„Talsamband
við útlönd“
Verkmenntaskólinn á Akureyri
tekur við nær öllum nemendum
sem til hans leita en Hjalti Jón
sagði að um 40% þeirra nemenda
sem kæmu beint úr grunnskóla
hefðu ekki náð þeim lágmarks-
kröfum sem kveðið væri á um á
samræmdum prófum. Þetta væri
umtalsverður hópur, en reynt
hefði verið að bjóða upp á skil-
virkt nám á almennri námsbraut
fyrir þennan hóp. „Staðreyndin er
sú að fjöldi nemenda sem hingað
kemur og í aðra framhaldsskóla á
haustin er algjörlega áhugalaus,
sumir hafa jafnvel orðað það svo
kaldhæðnislega að tala um að þeir
séu eins og útbrunnin gamalmenni
á stofnun sem horfa í gaupnir sér
eða stara út í loftið án lífslöng-
unar,“ var lýsing Hjalta Jóns.
Margir unglinganna hefðu gefist
upp, en ástæðan væri ef til vill sú
að ekki hefði tekist að koma nægi-
lega til móts við þá á þeim nótum
sem þeir skilja. Hann sagði mun
fleiri pilta í þessum hópi en stúlk-
ur.
Á næsta ári verður tekinn upp
áfangi sem eingöngu er ætlaður
til vakningar, til að vekja áhuga á
frekara námi yfirleitt. Þessa við-
leitni skólans kallaði skólameistari
„talsamband við útlönd“.
41 nemandi brautskráður frá VMA
Dúxinn lauk
námi á sjö önnum
Útskriftarnemar VMA í hátíðar-
skapi í gær. Í þeim hópi er El-
ísabet Sigurðardóttir, önnur frá
hægri, sem hlaut viðurkenningu
fyrir bestan árangur á stúdents-
prófi, framúrskarandi árangur í
dönsku og fyrir að ljúka námi á
sjö önnum.
Morgunblaðið/Kristján
Systurnar Guðrún María og Dýrleif Þórunn Jóhannsdætur frá Stóra-
Dal í Eyjafjarðarsveit voru á meðal útskriftarnema og færði Hjalti Jón
Sveinsson, skólameistari VMA, þeim blómvönd af því tilefni.
FRIÐRIK Ómar Hjörleifsson
heldur tónleika í Ungó, leikhús-
inu á Dalvík, næstkomandi
fimmtudag, 27. desember, og
hefjast þeir kl. 20:30. Á efnis-
skránni eru jólalög og dægur-
lög. Undirleik annast Magnús
Ólafsson gítarleikari. Friðrik
heitir notalegri kvöldstund í
Ungó.
Tónleikar
í Ungó
VILHELM Þorsteinsson EA, fjölveiðiskip Sam-
herja hf., fiskaði um 46.000 tonn á þessu ári og
er aflaverðmæti skipsins 1.340 milljónir króna.
Það verður því að telja líklegt að skipið verði í
efsta sæti yfir aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa
á árinu.
Vilhelm Þorsteinsson EA hefur stundað veiðar
á síld, loðnu og kolmunna á árinu en uppistaðan
er síld, sem hefur verið unnin um borð til mann-
eldis.
Heildaraflaverðmæti þeirra 11 skipa sem Sam-
herji gerði út á árinu nam rúmlega 6,5 millj-
örðum króna og heildarafli þeirra um 140.000
tonn. Framleiðsluverðmæti hjá landvinnslu fé-
lagsins nam samtals um 5,5 milljörðum króna.
Nótaskipið Oddeyrin
með 24 þúsund tonn
Baldvin Þorsteinsson EA, frystitogari Sam-
herja, er með 970 milljónir króna í aflaverðmæti
á árinu og er aflinn 6.400 tonn. Víðir EA er með
820 milljónir króna í aflaverðmæti og 5.800 tonna
afla, Akureyrin EA með 790 milljónir króna í
aflaverðmæti 5.200 tonna afla og Björgvin EA
með 770 milljónir króna í aflaverðmæti og 3.500
tonna afla.
Aflaverðmæti frystitogarans Margrétar EA
var 547 milljónir króna og aflinn 2.500 tonn en
skipið stundaði ísfiskveiðar hluta af árinu. Fjöl-
veiðiskipið Þorsteinn EA fiskaði fyrir 363 millj-
ónir króna og var aflinn rúm 38.000 tonn.
Kambaröst SU fiskaði 350 milljónir króna,
Björgúlfur EA fyrir 306 milljónir króna og
Hjalteyrin fyrir 115 milljónir króna. Þá var afla-
verðmæti nótaskipsins Oddeyrarinnar EA 174
milljónir króna og aflinn tæp 24.000 tonn.
Aflaverðmæti skipa Samherja á árinu 6,5 milljarðar króna
Vilhelm Þorsteinsson EA með
1.340 milljónir í aflaverðmæti
GRÍMSEY er óðum að klæðast
glitrandi ljósprýddum jólakjól.
Þrátt fyrir snjóleysi og dimmu
skammdegisins er bjart um að litast
í eynni, en jólaljós loga nú í glugg-
um, á þökum, sólpöllum og í görð-
um Grímseyinga. Hugvit Gríms-
eyinga í þessum efnum er mikið;
upplýst jólamylla snýst í einum
garð, logandi jólatré og jólakarlar
og -kerlingar í ýmsum stærðum
lýsa upp vetrarmyrkrið.
Við Miðgarðakirkju sem byggð
var árið 1867 ljóma krossar á leið-
um og jólatré stendur við kirkju-
dyrnar ljósum prýtt.
Nú í vikunni var einn af hápunkt-
um ársstarfsins, litlu jólin í grunn-
skólanum. Jólasveinar komu í heim-
sókn, þrátt fyrir að leiðin hafi ekki
verið auðveld, en fara þurfti 40 sjó-
mílur norður fyrir Ísland og þurfa
jólasveinar að treysta á flugvélar
eða önnur undratæki til að komast
til Grímseyjar. Litlu jólin voru með
hefðbundnu sniði, jólaguðspjallið
var lesið, jólalögin sungin, dansað
kringum jólatré, börnin skiptust á
jólapökkum og fengu jólanesti.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Jólasveinar heimsækja grunnskólabörn í Grímsey á litlu jólunum.
Grímsey
klæðist
glitrandi
jólakjól