Morgunblaðið - 22.12.2001, Page 22
LANDIÐ
22 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ⓦ
vantar í Ytri-Njarðvík
í Hólagötuhverfi
Upplýsingar veitir
umboðsmaður,
Eva Gunnþórsdóttir,
í síma 421 3475 og
868 3281.
Á FIMMTUDAG, 20. desember,
kom nokkur hópur fólks saman við
Hrepphólakirkju þegar þeim áfanga
var náð að búið var að leggja heitt
vatn frá Flúðum til 22 notenda í
sunnanverðum Hrunamannahreppi.
Stjórnarformaður Hitaveitu Flúða
og hitaveitustjóri opnuðu krana í
safnaðarheimilinu þar sem fram
streymdi hið dýrmæta heita vatn.
Hitaveitulögnin er um 9,5 km að
bænum Hólakoti sem er skammt of-
an við brúna yfir Stóru-Laxá. Verkið
er alfarið unnið af veitustjórn Hita-
veitu Flúða undir forustu Hannibals
Kjartanssonar hitaveitustjóra. Jarð-
vinna var unnin af Gröfutækni ehf. á
Flúðum en verktakafyrirtækið Suða
ehf. sá um sjóða rörin saman.
Verkið hófst í byrjun september
en gallar komu upp í rörum og tafði
það verkið um mánuð. Eigi að síður
tókst að ljúka framkvæmdum fyrir
jól og þakka verktakar það hinu góða
tíðarfari sem verið hefur að undan-
förnu. Kostnaður við lagningu hita-
veitunnar að húsum notenda er um
40 milljónir króna.
Hjá þremur notendum er eftir að
koma vatninu inn fyrir vegg en sum-
staðar á eftir að setja upp vatns-
rennslisofna í stað rafmagnsofna,
þar á meðal í hinni nær aldargömlu
en fögru Hrepphólakirkju. Verður
hafist handa við það verkefni upp úr
áramótum að koma heita vatninu í
full not.
Þegar þessum hitaveitufram-
kvæmdum er lokið eru einungis 10
heimili sem ekki njóta þess að hafa
heitt vatn til notkunar úr iðrum jarð-
ar hér í sveitinni sem í búa um 730
manns. Á þessari ómetanlegu auð-
lind sem heita vatnið er og fjölþættri
notkun þess, byggist sterkara og
blómlegra mannlíf jafnt í sveitum
sem bæjum, svo er einnig hér.
Hitaveita tekin
formlega í notkun
Hrunamannahreppur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Formaður veitustjórnar, Sigurður H. Jónsson, og hitaveitustjórinn,
Hannibal Kjartansson, skrúfa frá heita vatninu í safnaðarheimilinu.
NEMENDUR tónlistarskólans á
Þórshöfn stóðu sig með prýði á
jólatónleikum í Þórshafnar-
kirkju þrátt fyrir langt verkfall
tónlistarkennara á önninni.
Nemendur komu þar fram og
léku á píanó, blokkflautu, þver-
flautu, klarinett og gítar. Kirkj-
an er afar vel fallin til tónleika-
halds því hljómburður í henni er
mjög góður.
Lauri Toom frá Eistlandi er
skólastjóri tónlistarskólans og
hefur náð góðu valdi á íslenskri
tungu en þetta er annað árið
hans á Íslandi.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Tvær stúlkur leika á þverflautu; Karítas Agnarsdóttir
og Sólrún Siggeirsdóttir.
Jólatónleikar tónlistarskólans
Þórshöfn
GUÐMUNDUR Ólafsson á Grund í
Reykhólasveit hefur keypt Hótel
Bjarkalund af Kaupfélagi Króks-
fjarðar. Í sumar verður þar rekin
alhliða ferðaþjónusta eins og und-
anfarin ár.
„Það voru umræður hjá kaup-
félaginu um að selja og mér datt
það í hug í haust að reyna að kaupa
þetta sjálfur. Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á Bjarkalundi. Er
þarna mikið á sumrin, það er oft
hringt í mig til að redda hlutum
þegar eitthvað bilar. Ég vildi alls
ekki að þetta færi undir einhverja
aðra starfsemi,“ segir Guðmundur
um áhuga sinn á staðnum. Þá seg-
ist hann hafa verið í stjórn fyr-
irtækisins í mörg ár og viðloðandi
reksturinn þegar hreppurinn átti
stóran hlut í honum.
Byrjaður að slétta tjaldsvæði
Fyrirtæki Guðmundar, Bjarka-
lundur ehf., mun væntanlega verða
opnað um hvítasunnuna og starf-
semin verða rekin í sumar. Hót-
elstjóri verður sá sami og í fyrra,
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir. Guð-
mundur segir að þarna verði áfram
rekin alhliða ferðaþjónusta með
hóteli, veitingastað og tjaldsvæði.
Vegna þess hversu gott veður
hefur verið að undanförnu er Guð-
mundur byrjaður á endurbótum
fyrir sumarið. Hann hefur slétt
1.500 fermetra tjaldsvæði við
Bjarkalund.
Guðmundur lítur björtum aug-
um á framtíðina, segir að ferða-
þjónusta í Bjarkalundi og á Vest-
fjörðum almennt eigi góða
vaxtarmöguleika. Nefnir hann að
vegurinn um Bröttubrekku verði
tilbúinn eftir þrjú ár. Þá verði veg-
urinn úr Reykjavík í Bjarkalund
kominn með bundið slitlag, fyrir
utan nokkra kílómetra í Svínadal.
Hann bætir því við að búið sé að
bjóða út lagningu nýs vegar um
Klettsháls, á leiðinni til Patreks-
fjarðar, og telur hann að umferðin
vestur muni smám saman aukast.
Loks nefnir hann að leiðin um
Þorskafjarðarheiði sé sú stysta
milli Reykjavíkur og Ísafjarðar og
liggi hún um hlaðið í Bjarkalundi.
Bjarkalundur er í landi Beru-
fjarðar. Barðstrendingafélagið í
Reykjavík lét reisa gisti- og veit-
ingastaðinn á árunum 1945 til
1947.
Morgunblaðið/svennikr.
Íbúar Reykhólasveitar halda upp á þjóðhátíðardaginn í Bjarkalundi.
Í sumar var þar vélasýning, auk annarra atriða.
Kaupir Bjarkalund
af kaupfélaginu
Reykhólasveit
ÍBÚAR Árneshrepps hugsa
mikið um það þessa dagana
hvað vakir fyrir veðurguðunum,
en síðan níunda þessa mánaðar
hefur verið hér veðurblíða og
hiti allt að 14 gráður.
Nýlega kom aðaljólapóstur-
inn og flestallir sem koma heim
um jólin, skólabörn í framhalds-
skólum og aðrir, eru komnir
með flugi Íslandsflugs til Gjög-
urs. Aukaflug verður frá
Reykjavík til Gjögurs á Þorláks-
messumorgun ef veður leyfir.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Sumarhiti
og flestir
komnir heim
Árneshreppur
NÚ er ekki langt til jólanna og á
flestum barnaheimilunum er til-
hlökkunin orðin mikil. Í Stykk-
ishólmi er undirbúningur jólanna
með hefðbundnu sniði. Það sem
mest ber á eru skreytingarnar á
húsum og í görðum sem aukast með
hverju árinu.
Annar undirbúningur sem fer
fram á heimilum og í skólum er
ekki eins augljós. Það er árlegur
viðburður að nemendur 1.–4. bekkj-
ar Grunnskólans og nemendur leik-
skólans hittist í kirkjunni einn dag
fyrir jól og flytji dagskrá sem tengd
er jólunum. Það er mikill hátíðleiki
sem þar ríkir. Þar voru fluttir
helgileikir sem búið var að æfa og
gera búninga í jólaföndrinu. Litlu
jólin voru svo haldin hátíðleg 20.
des. og eftir það tók jólaleyfið við.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Sylvía Ösp, Berglind, Elín Inga, Ragnheiður Erla, Patrekur Árni, Kar-
en, Magnús Ingi og Alfreð Ragnar.
Unga kyn-
slóðin býr sig
undir jólin
Stykkishólmur
KÓR yngsta stigs grunnskólans
hér í bæ setti upp leikritið Jóla-
gleði, sem er söngleikur með leik-
rænu ívafi. Höfundur tónlistar er
Daninn Niels Bystrup en textann
samdi Esther Traneberg. Þýð-
endur eru hins vegar tveir starfs-
manna skólans, þær Anna Jór-
unn Stefánsdóttir og Hlíf Arndal.
Leikritið fjallar um fjölskyldu
sem er að undirbúa jólin. Á háa-
loftinu hjá þeim eru búálfar, sem
koma heilmikið við sögu. Boð-
skapurinn er sá að við ættum
kannski að huga meira hvert að
öðru en ekki kaupa bara alltaf
nýtt og nýtt og henda svo bara
heilum helling, eins og sonurinn á
heimilinu kemst svo skemmtilega
að orði. Kórinn söng fyrir for-
eldra sína og ættingja á sérstök-
um sýningum og einnig sungu
krakkarnir lög úr leiknum á litlu
jólum yngsta stigs.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Jólagleði
Hveragerði