Morgunblaðið - 22.12.2001, Page 27

Morgunblaðið - 22.12.2001, Page 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 27 Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is w w w .d es ig n. is © 20 01 Heilsunnar vegna „Við meðhöndlun hálsvandamála er einn mikilvægasti þátturinn að gefa réttan stuðning við hálssvæðið þegar legið er í hvíldarstellingum, til að ná náttúrulegri stöðu hryggjarsúlunnar. Hið erfiða í þessari meðhöndlun er að ná þrýstingslétti á hálssvæðið og ná um leið fram slökun í hinum margvíslegu svefnstellingum. TEMPUR heilsukoddinn er eini koddinn að mínu viti sem uppfyllir allar þessar kröfur.“ Röng höfuðlega er erfið fyrir háls, herðar og bak og leiðir til meiðsla og verkja. Góður koddi veitir stuðning og þægindi þannig að þú getur sofnað án allrar spennu. James H. Wheeler, M.D. Dr. Wheeler er stjórnar- formaður félags bæklunar- skurðlækna í USA, og aðili að Amerísku Bæklunar- læknaakademíunni Jólagjöf sem lætur þér og þínum líða betur Yfir 32.000 sjúkraþjálfarar, kírópraktorar og læknar um heim allan mæla með Tempur Pedic, þ.á.m. á Íslandi. VARISTeftirlíkingar!!! I i lí i !!! AUGLJÓSAR gloppur eru í opin- berri þýðingu myndbands, sem bandarísk yfirvöld birtu í síðustu viku þar sem Osama bin Laden ræðir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin. Þar kemur t.d. ekki fram að bin Laden nafngreindi marga flugræningjanna, sem stóðu að hryðjuverkunum í Bandaríkj- unum. Einnig hefur nú verið greint frá því að á myndbandinu væri að finna upplýsingar sem gætu komið stjórnvöldum í Sádí-Arabíu heldur illa. George Michael, annar tveggja þýðenda sem Bandaríkjastjórn réð til að snara myndbandinu yfir á ensku, sagði í gær að þegar betur væri að gáð væri „heill hópur“ af mönnum nafngreindur á myndband- inu. Hann vildi þó aðeins upplýsa um þrjú þeirra, Nawaq Alhamzi, Salem Alhamzi og Wail Alshehri. „Þú verður að spyrja þá í Pentagon [bandaríska varnarmálaráðuneyt- inu] um afganginn,“ sagði Michael við fréttamann AP. Áður hafði aðeins komið fram að bin Laden hefði nafngreint Mo- hammed Atta, meintan höfuðpaur flugræningjanna. Óháður sádí-arabískur þýðandi, sem AP ræddi við, sagði bin Laden jafnframt taka sér nafnið Alghamdi oft í munn í myndbandinu en þrír menn, sem grunaðir eru um að hafa verið í hópi flugræningja þann ör- lagaríka dag 11. september sl., bera einmitt þetta eftirnafn. Þykir það gefa til kynna að tengsl bin Ladens við flugræningjana hafi verið jafnvel enn nánari en ráða mátti af upp- haflegri þýðingu myndbandsins. Styrkir það um leið þann grun manna að bin Laden hafi fyrirskip- að hryðjuverkin. Fengu nauman tíma til að þýða myndbandið Fulltrúar Bandaríkjastjórnar telja að Wail Alshehri hafi verið um borð í fyrri flugvélinni sem flaug á World Trade Center í New York og að Nawaq Alhamzi og Salem Alh- amzi hafi verið í vélinni sem brot- lenti á Pentagon-byggingunni. Ahmed og Hamza Alghamdi voru hins vegar um borð í seinni vélinni sem flaug á World Trade Center og Saeed Alghamdi var um borð í flug- vélinni sem brotlenti í Pennsylvan- íu-ríki eftir að farþegar réðust til at- lögu gegn flugræningjum sínum. George Michael sagði að þessi vitneskja kæmi einungis fram í dagsljósið núna þar sem menn hefðu ekki gefið sér nægan tíma til að þýða myndbandið í upphafi. Hann sagði að hann hefði aðeins fengið tólf klukkustundir í fyrri þýð- inguna en að fjóra daga hefði tekið að þýða myndbandið að fullu, með þeim afrakstri sem nú er kynntur til sögunnar. Talsmaður Pentagon, Torie Clarke, sagðist ekki hafa vitneskju um að ný þýðing hefði verið gerð en bætti því við að engan þyrfti að undra þó að sitthvað hefði farið fram hjá mönnum í upphafi enda hljóðið á myndbandinu afar slæmt og samtöl manna ógreinileg. Michael sagði enn margt á mynd- bandinu sem erfitt væri að átta sig á. Til að mynda nafngreindi gestur bin Ladens í myndbandinu, sem tal- ar þar mest, þá menn sem hjálpuðu honum að komast frá Sádí-Arabíu til Afganistans. Sagði Michael að honum og Kassem Wahba, Egypt- anum sem einnig kom að þýðingu myndbandsins, hefði ekki tekist að greina nafnið en lét þess getið að Sádí-Araba myndi hugsanlega tak- ast það. Fréttastofan AP bar þetta undir Sádí-Arabann Ali Al-Ahmed, sem fer fyrir samtökum sem berjast fyr- ir mannréttindum í Sádi-Arabíu, og sagði hann gestinn, sem sagður er heita Khalid al-Harbi, bæta setning- unni „jalad alhayaa“ við nafn þess, sem smyglaði honum inn í Afganist- an. Nota menn gjarnan þetta orða- tiltæki í Sádí-Arabíu er þeir ræða um trúarlögregluna þar í landi. Sagði Al-Ahmed einnig að gest- urinn nafngreindi þrjá sádí-arabíska kennimenn á myndbandinu sem lýst hefðu yfir stuðningi við árásirnar einmitt í þann mund sem þær áttu sér stað og að bin Laden léti þau orð falla að þeir eigi skilið þakkir fyrir það. Er einn kennimannanna, sem hér um ræðir, sjeikinn Abdulah al-Baraak en hann kennir við há- skóla í Sádí-Arabíu og starfar jafn- framt sem ráðgjafi stjórnar Sádí- Arabíu í trúarlegum málum. Þessar fréttir, ef réttar eru, þykja koma stjórnvöldum í Sádí-Arabíu heldur illa en þau hafa opinberlega lýst yfir stuðningi við baráttuna gegn hryðjuverkum. Sagði Al- Ahmed að þessar síðustu upplýs- ingar hefðu átt að koma fram í þýð- ingu Michael og Wahba og gat hann sér þess til að Bandaríkjastjórn hefði kosið að hafa þær ekki með í þeirri útgáfu þýðingarinnar, sem þau gerðu opinbera, þar sem þau vildu ekki styggja bandamenn sína í Sádí-Arabíu. Reuters Íbúi New York fylgist með því í síðustu viku þegar myndbandið með Osama bin Laden var spilað opinberlega. Augljósar gloppur í mynd- bandinu Washington. AP, AFP. Bin Laden nafngreinir mun fleiri flugræningjanna en fyrst var talið SEGJA má að viðskiptagrundvell- inum hafi verið kippt undan stétt búrku-klæðskera eftir að taliban- ar voru hraktir frá völdum í Afg- anistan. Talibanar skylduðu konur sem kunnugt er til að klæðast svo- nefndum búrkum, eða kuflum sem hylja þær frá hvirfli til ilja. Fimm ára valdaskeið þeirra var því gósentíð fyrir klæðskera sem sérhæfðu sig í saumi slíkra flíka, þar á meðal Mohammed Isaq, sem rekur búrkusaumastofu í borginni Mazar-e-Sharif. Þrátt fyrir að mánuður sé nú liðinn síðan talibanar voru hrakt- ir frá Mazar-e-Sharif hafa marg- ar konur í borginni enn ekki þor- að að kasta búrkunum. En Isaq segir að það sé einungis tíma- spursmál hvenær flestar eða allar konur fari að ganga um berhöfð- aðar og hann muni því ekki leng- ur geta haft lífsviðurværi af búrkusaumi. „Ég verð víst að fara að finna mér eitthvað annað að gera,“ sagði hann við blaða- mann Los Angeles Times. Isaq fagnaði þó falli talibana heilshugar og sýndi hug sinn í verki með því að raka strax af sér skeggið, sem þeir skylduðu hann til að bera. „Ég naut ekki góðs af stjórn talibana. Þeir tryggðu mér reyndar næga vinnu en allar vörur voru svo dýrar að ég gat ekki rakað saman neinum auði.“ Reuters Konur í búrkum á mótmælafundi í Brussel. Konum var gert að klæðast búrkum, sem hylja þær frá hvirfli til ilja, á valdatíma talibana. Gósentíð búrku-klæðskeranna í Afganistan lokið Gjaldþrot yfirvofandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.