Morgunblaðið - 22.12.2001, Page 42
LISTIR
42 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
N
úna loksins eru jól-
in að koma. Allir
eru farnir að eyða
á síðasta snúningi,
klára að koma sér
fyrir eftir flutningana, setja upp
gardínur, búnir að kaupa sér
nýjan bíl fyrir jólin, baka sörur,
búa til konfekt og síðast en ekki
síst elta Harry Potter-legókast-
ala án árangurs út um alla
Reykjavík, Reykjanes, austur
fyrir fjall og m.a.s. til Danmerk-
ur, lands legókubbanna. En tali
hver fyrir sig.
Það sann-
aðist sem
sagt var um
ungbarnið
Harry Potter
í galdraheim-
inum, að allir
myndu
þekkja hann, sérstöðu hans og
sögu. En nú eru það muggarnir
allir sem einn sem þekkja hann
og taka þátt í æðinu. Aumingja
Harry. Allir kastalarnir á Ís-
landi eru uppseldir, lestirnar og
leyniklefarnir líka og meirihluti
íslenskra barna fær eitthvað af
þessu dóti í jólagjöf.
Undarlegt þetta æði sem
rennur á mannfólkið þegar nálg-
ast jól. Ein jólabókin verður
langvinsælust og allir verða óðir
í aðalleikfangið. Heldur einsleit-
ir jólapakkar það. En það er líka
svo erfitt að velja. Það er of
mikið framboð, bæði af bílum og
jólagjöfum. Eins og sannir Ís-
lendingar bíðum við með hlutina
fram á síðustu stundu, hvort
sem það er að kaupa jólagjafir,
gera jólahreingerninguna eða
leiðinlega verkefnið í vinnunni.
En tali aftur hver fyrir sig.
Allar hefðirnar og markmiðin
sem verður að ná fyrir jól. En
ekki til að hægt sé að njóta af-
rakstursins á náttsloppnum
heima með aðaljólabókina í
hendinni því allir eru út um
hvippinn og hvappinn í jólaboð-
um og teljast heppnir ef þeir ná
öllu saman áður en þeir þurfa að
mæta í vinnuna aftur.
Aumingja Harry Potter að
þurfa að vera utan á öllu mögu-
legu, pennaveskjum, legókubb-
um, blýöntum, boltum, bolum,
sokkum, peysum, diskum, göffl-
um … eins og svo sem Bangsím-
on áður eða Andrés önd. Hvern-
ig gerist það að fjögurra ára
börn og jafnvel yngri vilja fá
Harry Potter kastala í jólagjöf?
Þau vita ekki hver Harry er,
kannski að hann er galdrastrák-
ur en varla þó.
Þarna er máttur markaðs-
setningarinnar lifandi kominn.
Harry er á hvers manns vörum,
gamlingja sem leikskólabarna,
og fiskisagan flýgur sem fyrr.
En það er nú gott og blessað ef
börnin fá Harry-lego ef það er
það sem þau vilja og geta notið.
Enginn vill a.m.k. fá fiskhausa í
loftþéttum umbúðum eða tvö
kíló af fitu í jólagjöf, en þetta
var meðal gjafa sem kjörnar
voru þær verstu af lesendum
norska Dagblaðsins á Netinu.
Ég er að hugsa um að gera
janúar að jólamánuði sem verð-
ur mánuður afslöppunar (og út-
sölu). Engar gjafapælingar eða
bakstursskipulag, jóla-
hreingerning eða próflestur.
Bara fagurbókmenntalestur,
smákökuát (og leikfimi), veit-
ingahúsaheimsóknir og tón-
leikar. Væri ekki hægt að flytja
eins og nokkur jólahlaðborð og
nokkra aðventutónleika fram í
janúar, enginn myndi tapa á því.
Við getum nefnilega lítið notið
aðventunnar vegna þessarar
jólastreitu sem hellist yfir okkur
síðustu dagana fyrir jól. Og tali í
þriðja sinn hver fyrir sig.
Það er kannski vegna bíla-
kaupa sem jólastreitan er svo
mikil sem raun ber vitni. Bíla-
kaup undir lok ársins eru eitt-
hvað það vitlausasta sem nokkur
maður tekur sér fyrir hendur,
en það er þessi brýna bílaþörf
sem rekur mann áfram. Á þess-
um vettvangi var áður rekinn
áróður fyrir bílleysi og ágæti
þess að fara ferða sinna fót-
gangandi. Það er allt gott og
blessað en bara ekki mögulegt!
Ekki fyrr en óuppgötvaður vís-
indamaður sem ég þekki hefur
komið á markað færiböndum
fyrir fótgangandi.
Því var keypt gljáandi sjálf-
rennireið mitt í öllu talinu um
mikilvægi þess að böndum verði
komið á einkaneysluna og al-
menningur átti sig á því að hann
verði að spara. Já, nauðsyn
brýtur lög. Líka í jólainnkaup-
unum, því þar viljum við ekki
gera síður við okkur og gesti
okkar en önnur og áður liðin jól.
En væntingavísitalan er líka að
hækka af því að forystumenn
eru svo jákvæðir og aðilar
vinnumarkaðarins búnir að gera
með sér heiðursmanna-
samkomulag. Svo hlýtur bensín-
ið nú að lækka þegar búið verð-
ur að koma upp um
verðsamráðið.
Þetta er náttúrulega sjálfs-
blekking. Aldrei áður hafa svo
margir leitað til mæðrastyrks-
nefndar og Dómkirkjuprestur
finnur fyrir meiri neyð meðal al-
mennings en áður. Enda getur
ekki annað verið eftir þetta ár
sem tekur enda eftir tíu daga.
Íslenska krónan hefur verið í
frjálsu falli og margir hafa misst
vinnuna.
En þrátt fyrir allt tal um
sparnað og samdrátt notum við
greiðslukortin okkar 10% meira
í desember í ár en í desember í
fyrra.
Svo virðist sem aðhaldshvatn-
ing og varnaðarorð hafi bara
engin áhrif á okkur Íslend-
ingana. Við höldum yfirdrætt-
inum á tékkheftinu og borgum
tugi þúsunda í vexti á ári. Tök-
um svo bílalán sem ná fram yfir
miðjan þennan áratug og borg-
um á annan tug prósenta í vexti
á mánuði. Og tali nú í fjórða
sinn hver fyrir sig.
Gleðileg jól.
Aðventa
í janúar
VIÐHORF
eftir Steingerði
Ólafsdóttur
steingerdur-
@mbl.is
En það er nú gott og blessað ef börnin fá
Harry-lego ef það er það sem þau vilja
og geta notið. Enginn vill a.m.k. fá fisk-
hausa í loftþéttum umbúðum eða tvö
kíló af fitu í jólagjöf, en þetta var meðal
gjafa sem kjörnar voru þær verstu af les-
endum norska Dagblaðsins á Netinu.
ÞETTA er skrýtin bók. Hundur
spjallar við kind sem spjallar við
hænu sem spjallar við mús. Og lamb-
ið grípur inn í með hreinskilnar at-
hugasemdir sínar.
Þetta eru engin venjuleg dýr með
mannlega eiginleika, eins og Mikki
mús, Dúmbó eða skógardýrið Húgó.
Nei, Þessi dýr spjalla saman á heim-
spekilegum nótum um mannlegt/
dýrslegt eðli. Stundum er misjafn-
lega gáfulegt það sem af munni dýr-
anna fellur, en þau eru orðheppin,
skemmtileg og hafa oftast nokkuð til
síns máls.
Þannig er að hundi einum á bæ
finnst hann skyndilega mjög svo
merkilegur þar sem fluga velur að
setjast á trýnið á honum. Hann
ákveður því að verða vinsælasti
hundurinn í sveitinni, en smjaðurs-
lætin gera hann óþolandi. Hann fær
þá hugmynd að fá sér
lambsgrímu, þar sem
lömbin virðast mun vin-
sælli en hann.
Dýrin eru engan veg-
inn einhliða persónur,
heldur fulltrúar kar-
aktera sem við þekkj-
um vel úr mannlegu
samfélagi. Hversu
ótrúlega margir þrá
ekki að verða frægir og
reyna næstum hvað
sem er, og leggjast
jafnvel lágt, til að ná
því takmarki? Alltof fá-
ir sætta sig við að vera
„bara þeir sjálfir“ og
lifa sig frekar inn í hlut-
verk sem þeir hafa búið sér til. Fólk
setur upp grímur í stað þess að
kunna að meta að vera einstakt.
Þetta endurspegla dýrin með hegð-
an sinni, og blessaðar skepnurnar
gera meira, þær ræða þessi tilvist-
arvandamál sín.
Halldór Baldursson myndskreytir
bókina, og ef mig minnir rétt er hann
skop- og teiknimyndateiknari. Stíll
hans er lifandi og örlít-
ið tragikómískur, sem
hentar efni bókarinnar
einstaklega vel. Á köfl-
um fannst mér bókin
einmitt farsakennd og
sá atriði fyrir mér ljós-
lifandi sem skemmti-
lega teiknimynd.
Þótt persónur bók-
arinnar séu dýr finnst
mér hún ekki endilega
vera barnabók. Börn
eru reyndar miklir
heimspekingar í hjarta
sínu og, eins og litla
lambið í bókinni, ekki
búin að læra að langa
að vera einhver annar.
Hins vegar eru börn dagsins í dag
vön hraðri framvindu mála, sem lítið
fer fyrir hér. Eflaust munu þó marg-
ir krakkar hafa gaman af þessum
húmorísku samræðum, og ekki
spurning um að foreldrar þeirra
munu hafa það. Svei mér ef þetta er
ekki tilvalin möndlugjöf!
Dýr í tilvistarkreppu
BÆKUR
Barnabók
eftir Guðberg Bergsson. Teikningar: Hall-
dór Baldursson.
JPV-útgáfa 2001. 92 bls.
HUNDURINN SEM ÞRÁÐI AÐ VERÐA
FRÆGUR
Hildur Loftsdóttir
Guðbergur
Bergsson
ÞAÐ hefur vantað bækur fyrir
stráka á aldrinum sextán til tuttugu
ára. Hér sýnist mér vera ágætt les-
efni fyrir þennan hóp en líka fyrir
foreldra sem oft ímynda sér að vandi
barna þeirra sé svo afmarkaður og
einstakur að aðrir geti ekki skilið
hann. Það er vandlifað þegar strákur
er hættur að vera unglingur en er
alls ekki orðinn fullorðinn. Hann má
sumt sem fullorðnir mega en annað
alls ekki. Hann skilur margt og get-
ur margt sem fullorðnir gera en
saknar bernskunnar og langar í hlýj-
an foreldrafaðm. Svo eiga foreldr-
arnir oft í mesta basli með að botna í
barninu sínu, gera miklar kröfur um
ábyrgð en treysta því ekki þegar til
kemur. Það kemur heim og saman
við þennan vandræðagang og tog-
streitu að John-John skuli vera
flokkuð sem barna- og unglingasaga
í Bókatíðindunum en það er hún alls
ekki. Hún er fullorðinsbók um tví-
tugan mann.
John-John er þriðja bókin um þel-
dökka, sænsk-ameríska strákinn
John-John Sundberg. Fyrsta bókin,
Vetrarvík, hefst þegar hann er sex-
tán ára; sú næsta, Glötuð, hefst þeg-
ar hann er nítján og hér er hann orð-
inn tvítugur. Það er ekki nauð-
synlegt að hafa lesið fyrri bækurnar
til þess að njóta þessarar. Ég mæli
samt með því þar sem bækurnar
þrjár eru þroskasaga Johns-Johns.
Sú fyrsta kynnir aðstæður sem leiða
til mikilla átaka; í miðsögunni verða
þessi átök, sannarlega mögnuð, og í
þriðju bókinni er úrvinnslan eftir
átökin. Sögurnar gerast að mestu í
Stokkhólmi en gætu allt eins gerst í
Reykjavík eða öðrum norrænum
borgum. Bækur Mats Wahl um
æskufólk hafa verið vinsælar og er
hægt að skýra það að hluta til með
því að í sögunum er blanda af ást,
kynlífi, ofbeldi, spennu, gagnrýni á
heim hinna fullorðnu, húmor og til-
vistarkreppu.
Sagan John-John er sögð í fyrstu
persónu og nútíð. Það er John-John
sem segir frá en vel smíðaður stíllinn
einkennist af stuttum setningum og
tilsvörum, hlutlausu, tómlætislegu
yfirbragði og fjarlægð frá því sem
lýst er. John-John fer um borgina og
hittir marga. Öllum er lýst frekar ná-
kvæmlega; útliti, fatnaði, kækjum og
hreyfingum þannig að úr verða lif-
andi og trúverðugar persónur þar
sem hver einasta manneskja hefur
sinn djöful að draga þegar að er gáð.
Samlíkingar eru oft skondnar og
stundum ljóðrænar og samtölin ná-
kvæm og hnitmiðuð. Úr öllu saman
verður til gagnrýnin samfélagslýs-
ing.
John-John, sem er greindur og at-
hugull, virðir fyrir sér mannfélag
sem hefur gert hann að leiksoppi en
engir dómar eru felldir beint,
ábyrgðin er ekki tekin af honum með
því að gera hann að píslarvotti. Í
þessu birtist þó öflugur boðskapur,
fínlega ofinn: Spurt er í hvernig sam-
félagi við lifum og ölum upp börnin
okkar. John-John hefur orðið fyrir
mjög erfiðri reynslu sem ýjað er að
en aldrei lýst nákvæmlega, hann hef-
ur dregist inn í stórglæp og bíður
dóms. Reynslan hefur þroskað hann
fyrir aldur fram en eins og er al-
gengt með fólk á þessum aldri setur
hann sjálfan sig utan við atburðina
og hefur tilhneigingu til að ganga
burt frá óþægilegri umhyggju sinna
nánustu. Það sem er einna best gert
er hvernig angistin og óttinn eru yfir
og undir og allt um kring og koma
stundum beint fram í tárum sem
renna fyrirvaralaust.
Raunsæisleg mynd úr lífi tvítugs
stráks í kreppu, þar sem fara saman
hrár veruleiki, mannskilningur og
hlýja, ætti að höfða til ungs fólks í
leit að samhljómi. Auk þess er bókin
holl lesning fyrir foreldra og aðra
sem láta sig þennan aldurshóp
varða.
,,Ég fæ
kannski
náðun“
BÆKUR
Skáldsaga
eftir Mats Wahl í þýðingu Hilmars Hilm-
arssonar. Mál og menning 2001, 223
bls.
JOHN-JOHN
Hrund Ólafsdóttir
FYRIR réttu ári kom út fyrra
bindið af þessum endurminningum
Torfa Guðbrandssonar, skólastjóra á
Finnbogastöðum í Trékyllisvík á
Ströndum. Þar sagði frá bernsku- og
unglingsárum höfundar og bar þar
hátt langvarandi veikindi hans og
sjúkrahúslegu. Af sjúkleika hans
leiddi fötlun, sem fylgdi honum alla
tíð.
Í þessu síðara bindi er nú komið að
fullorðinsárunum. Margvíslegri vinnu
á æskuheimili hans Heydalsá, ást-
vinamissi, farkennslu, námi í Kenn-
araskólaum og síðar kennslu- og
skólastjórn á Finnbogastöðum, þar
sem hann starfaði í nálega þrjá ára-
tugi. Þá segir frá hjúskap, búskap og
fjölmörgu öðru varðandi einkalíf höf-
undar. Og að lokum koma árin eftir
sextugt, þegar þau hjón eru komin til
Reykjavíkur. Þetta er vissulega fróð-
leg frásögn og gefur lesandanum inn-
sýn í líf þarna norður frá, sem ég býst
við að mörgum sé nokkuð framandi.
Í höndum sumra ævisagnaritara
yrði þó ævifrásögn þessi líklega frem-
ur litlaus og lítt spennandi lestur. Það
er svo sem ekki hægt að segja, að
stórir hlutir hafi gerst. Ævi höfundar
og konu hans hefur vissulega verið
erfið á köflum og þau mætt ýmiss
konar andstreymi. En farsælt hefur
líf þeirra engu að síður verið, einfalt
og hóglátt.
En þessi höfundur getur gert sögu
sína þannig úr garði, að hún verður
áhugaverður lestur. Því veldur
margt. Eitt er að hann er góður stíl-
isti og kann að segja sögu, svo að
hlustað verður á. Tungutak hans er
með ágætum. En þó að mikilvægt sé,
skiptir það ekki sköpum. Mikilvægast
er, að yfir allri frásögninni er heið-
ríkja, andblær frá góðum manni.
Manni líður vel í návist hans. Hann er
yfirlætislaus og hógvær, hrósar ekki
sjálfum sér. Treystir forsjóninni og
almættinu, sem lætur allt snúast til
betri vegar, þó að skugga beri fyrir
sól á stundum. Hann er að þessu leyt-
inu gæfumaður og ég trúi ekki öðru
en að hann hafi stuðlað að gæfu
þeirra, sem samskipti hafa átt við
hann.
Það er því rétt, sem segir í auglýs-
ingu útgefanda, að þessar endur-
minningar eru mannbætandi. Þær
eru vissulega hollur lestur.
Einhvers staðar segir höfundur í
bókinni, að margir hafi undrast það
ráðleysi er hann sagði lausri kennara-
stöðu í Hafnarfirði og sótti um kenn-
arastöðu norður á Ströndum. Hvað
vakti fyrir honum? Sumir töldu óskilj-
anlegt að nokkur vildi setjast að á svo
afskekktum stað, sem varla var unnt
að nálgast nema lítinn hluta ársins.
Við lestur bókarinnar skilur maður
þessa ákvörðun hans. Þarna nyrðra
voru rætur hans. Og ef ræturnar eru
traustar er aldrei afskekkt í þeim
garði. Þar er alltaf nafli heimsins,
hvort sem það heitir Trékyllisvík eða
Reykjavík. Og kannski er það gæfan
mesta að hlúa að rótunum í stað þess
að slíta þær upp.
Þetta ágæta tveggja binda ritverk
er prýðilega útgefið. Því fylgja all-
margar myndir og í bókarlok er
nafnaskrá fyrir bæði bindin.
Hugþekkur Strandamaður
BÆKUR
Endurminningar
Endurminningar II. Torfi Guðbrandsson.
Vestfirska forlagið, Hrafnseyri, 2001,
336 bls.
STRANDAMAÐUR SEGIR FRÁ
Sigurjón Björnsson