Morgunblaðið - 22.12.2001, Side 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 51
HINN árlegi jólastyrkur ISAL hef-
ur verið afhentur og skiptist hann að
þessu sinni milli þriggja aðila.
Barnaspítali Hringsins fékk 400
þúsund krónur í sinn hlut, Krossgöt-
ur, sem reka áfangaheimili fyrir fólk
í vímuefnavanda, fengu 300 þúsund
krónur og Klúbburinn Geysir fékk
300 þúsund. Klúbburinn Geysir er
félag, sem hefur að markmiði að
veita geðsjúkum þann stuðning,
hjálp og leiðsögn sem nauðsynleg er
til að taka þátt í samfélaginu eftir út-
skrift af geðdeildum.
Jólastyrkur ISAL afhentur
Ragnheiður Sigurðardóttir, frá Barnaspítala Hringsins, Rannveig Rist,
forstjóri ISAL, Anna Valdemarsdóttir, framkvæmdastjóri Klúbbsins
Geysis, og Kolbeinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Krossgatna.
GÁMAÞJÓNUSTAN ákvað að
senda viðskiptavinum sínum ekki
jólakort um þessi jól heldur láta
andvirði þeirra renna til LAUFS
sem eru landssamtök áhugafólks
um flogaveiki. Samtökin vinna að
margvíslegum málum sem tengjast
þessum sjúkdómi og vill stjórn
Gámaþjónustunnar hf. með þessu
móti styrkja það starf, segir í
fréttatilkynningu.
Gáma-
þjónustan
styrkir
LAUF
Á myndinni sést Benóný Ólafsson,
framkvæmdastjóri Gámaþjónust-
unnar hf., afhenda Kolbeini Páls-
syni, formanni LAUFS, og Jóni
Guðnasyni framkvæmdastjóra
LAUFS, styrkinn.
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að tjóni sem unnið var á
rauðri Toyotu á bílastæði við Nettó í
Mjódd 19. desember.
Bifreiðin er rauð, með númerinu
BZ-040 og var kyrrstæð og mann-
laus er á hana var ekið. Tjónvaldur
fór hins vegar af vettvangi án þess að
tilkynna um tjónið til hlutaðeiganda
eða lögreglu. Er hann og/eða aðrir
sem geta gefið frekari upplýsingar
beðnir að snúa sér til umferðardeild-
ar lögreglunnar í Reykjavík.
Lögreglan í Reykjavík lýsir einnig
eftir vitnum að tjóni sem unnið var á
grárri Daewoo-fólksbifreið með
númerinu BA-973 hinn 19. desem-
ber. Ekið var á bifreiðina með þeim
afleiðingum að hún skemmdist á
vinstra afturhorni. Talið er að þetta
hafi gerst við Skeiðarvog 79 aðfara-
nótt 19. des. eða við Hörgshlíð 12 frá
kl. 9–12 sama dag. Sá sem ók á bif-
reiðina fór af vettvangi án þess að til-
kynna tjónið. Er hann eða aðrir sem
geta gefið frekari upplýsingar beðn-
ir að snúa sér til umferðardeildar
lögreglunnar í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum
♦ ♦ ♦
AÐALFUNDUR
Skólastjóra-
félags Íslands
var haldinn í
Borgartúni 6 í
Reykjavík 3. nóv-
ember sl. Í Skóla-
stjórafélaginu
eru skólastjórar,
aðstoðarskóla-
stjórar og deild-
arstjórar grunn-
skóla og kennsluráðgjafar á
skólaskrifstofum. Félagið er eitt af
aðildarfélögum Kennarasambands
Íslands og í því eru rúmlega 500 fé-
lagsmenn. Aðalfundurinn var fjöl-
sóttur.
Félaginu var kjörin ný stjórn.
Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Ár-
bæjarskóla, sem verið hafði í
stjórninni í 7 ár og þar af formaður
í 4 ár, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Formaður var kjörinn Hanna
Hjartardóttir, skólastjóri Snæ-
landsskóla í Kópavogi. Varafor-
maður er Sigfús Grétarsson,Val-
húsaskóla á Seltjarnarnesi. Aðrir í
stjórn eru: Auður Árný Stef-
ánsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Korpuskóla í Reykjavík, Kristinn
Breiðfjörð Guðmundsson, skóla-
stjóri Grunnskóla Ísafjarðar, og
Unnar Þór Böðvarsson, skólastjóri
Hvolsskóla á Hvolsvelli.
Ný stjórn
Skólastjóra-
félagsins
Hanna
Hjartardóttir
11.00 Hátí›leg tónlistaruppákoma Fríkirkjunnar.
13.00 Syngjandi jólasveinar á fer› um Kringluna.
15.00 Ólafur Jóhann áritar bók sína vi› Pennann.
16.00 Sönghópurinn Smaladrengirnir.
17.00 Jólasveinn dagsins mætir á svi›i› á 1. hæ›.
17.45 Solla stirða úr Latabæ tekur nokkur lög.
18.00 Jazzbandið Rúdolf spilar jólajazz.
19.00 Syngjandi jólasveinar á fer› og flugi.
20.00 Gleðisveitin Jagúar tekur lagi› vi› Skífuna.
Ottó íslistamaður
sker út íslistaverk úti við Nýkaup
frá kl. 12.00-22.00.
Opið á Þorláksmessu frá kl. 10.00-23.00
– Spennandi dagskrá og sannkölluð jólastemmning.
www.kringlan.is uppl‡singasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
R
I
16
33
8
1
2/
20
01
Brot af dagskránni í dag:
Opið til 22.00