Morgunblaðið - 22.12.2001, Síða 64

Morgunblaðið - 22.12.2001, Síða 64
64 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                          !    "     " #     $   % & % BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is UM ÁRAMÓTIN hækkar heildsölu- verð á mjólk og mjólkurvörum um 6–7%. Þegar þessi ákvörðun var tilkynnt í lok október varð nokkur umræða í kjölfarið og sýndist sitt hverjum. Kjarni málsins er sá að ef skoðuð er þró- un verðlags frá janúar 2000 til desember 2001 hafa mjólk og mjólkurvörur hækkað mun minna en vísitala neysluverðs – að ekki sé talað um aðrar drykkjar- vörur. Samkvæmt vísitölu neyslu- verðs hefur safi á þessum tíma hækkað um 16,2%, gosdrykkir um 11,5% og vatn um 11,3% meðan mjólk hefur hækkað um 3,3% og létt- mjólk, undanrenna o.fl. um 4,4%. Mjólkurdrykkir og sykraðir drykkir eiga varla annað sameiginlegt en að vera flokkaðir undir samheitið „drykkir“. Næringargildi mjólkur er óumdeilt en sykurdrykkirnir gera líkamanum fátt gott – og tönnunum ekkert. Á því leikur enginn vafi að hvítur sykur er óheppilegur frá manneldissjónarmiðum. Auk þess að vera hollari er mjólkin ódýrari en aðrir drykkir – nema ef vera skyldi kranavatnið. Þetta var staðfest í búð- arferð í Hagkaup á Eiðistorgi mánu- daginn 17. desember sl. Meðfylgj- andi mynd sýnir verð á nokkrum drykkjum sem fáanlegir voru í lítra- umbúðum þennan dag. Auðvitað var úr mörgu að moða en þótt bein- greiðslu til bóndans sé bætt ofan á lítraverð mjólkur er mjólkin ódýrust. ERNA BJARNADÓTTIR, forstöðumaður félagssviðs Bændasamtaka Íslands. Hefur þú efni á að drekka ekki mjólk? Frá Ernu Bjarnadóttur: MARGIR hafa spurt mig hvaða áhrif hlýindin und- anfarna daga myndu hafa á trjágróður. Þess vegna dettur mér í hug að birta hér upplýs- ingar úr rannsóknum mín- um, sem ég gerði á því hvernig runnategundir hegðuðu sér yfir vetrar- mánuðina gagnvart hita- stigi. Rannsóknin fór fram í Norður- New York veturinn 1950 til 1951. Á línuritinu má sjá hitastig og hegðan fjögurra trjákenndra runna gagn- vart þeim. Óbrotnu línurnar þrjár í línuritunum sýna hámarks-, meðal- og lágmarkshitastig. Hámarks- og lágmarkslínurnar sýna hæsta og lægsta hitastig á sjö daga tímabili. Meðalhitinn er meðaltal sjö daga tímabils. Brotnu línurnar fjórar sýna frostþol plantnanna á tveggja vikna fresti. Á línuritinu má sjá að plönturnar auka frostþol sitt mjög hratt að haustinu þegar kólna tekur í veðri. Þar sem lína lægsta hitastigs og lína plöntu snertast verður frostskaði. Til dæmis 15. október og að und- angengnu hlýindatímabili þ. 4. febr- úar þar sem tvær plöntur verða fyr- ir frostskemmdum. Niðurstaða rannsóknarinnar leiddi í ljós að óvenju hlýtt tímabil að vetri geti dregið úr frostþoli plantna og að þær geti jafnvel skað- ast við minna frost en ella. Eftir að hafa náð verulegu frostþoli að hausti virðist frostþol plantna geta minnk- að auðveldar við hlýindatímabil en það ávinnst við kuldatímabil. Þessi rannsókn var gerð til und- irbúnings þess að geta kannað frost- þol trjáplantna sem fluttar yrðu til landsins. Höfundur fór í söfnunar- ferð til Alaska haustið 1951 og til Eldlands vorið 1991. Engar vísinda- legar rannsóknir hafa verið gerðar hér á frostþoli plantna og telur höf- undur það mjög miður, sérstaklega þar sem nú orðið má velja úr mörg- um kvæmum og klónum plantna hæfari plöntur til framtíðarræktun- ar. JÓN H. BJÖRNSSON, landslagsarkitekt, Ásgarði 125, Reykjavík. Áhrif hlýindanna á trjágróður Frá Jóni H. Björnssyni: "6,! 1 2 86,! 1 2 1  *  :  ;   <  3  1 2, = 9  #9 # # # # @A ! 29 #  !! $2$ Erna Bjarnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.