Morgunblaðið - 22.12.2001, Síða 66

Morgunblaðið - 22.12.2001, Síða 66
DAGBÓK 66 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Detti- foss kemur og fer í dag. Hákon og Freri koma í dag. Vædderen fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sonar, Lómur og Siku komu í gær. Venus og Helga María koma í dag. Fréttir Bókatíðindi 2001. Núm- er laugardagsins 22. desember er 36241. Mannamót Aflagrandi 40 Fé- lagsmiðstöðin verður lokuð mánudaginn 24. desember. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum verður lokað til 8. janúar. Ósk- um öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Áramótadansleikurinn verður laugardaginn 29. des. kl. 20:30. Caprí Tríó leikur fyrir dansi. Ása- dans og happdrætti. Dagskrá í Hraunseli hefst aftur af fullum krafti mánudaginn 7. jan. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofa fé- lagsins verður lokuð milli jóla og nýárs. Opn- að aftur 2. janúar. Félagsstarfið fellur nið- ur milli jóla og nýárs. Hefst aftur með dans- leik 6. janúar. Skrifstofa félagsins verður lokuð milli jóla og nýárs. FEB óskar öllum eldri borg- urum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Í kvöld kl. 19 kemur Álafosskórinn í heimsókn og syngur nokkur lög. Allir vel- komnir. Starfsfólkið í Fururgerði 1 óskar íbú- um hússins og öllum gestum stöðvarinnar gleðilegra jóla, friðar og farsældar á nýju ári. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Lokað verð- ur sunnudaginn 23. des. næst verður opið sunnu- daginn 6. janúar, ekki verður spiluð vist mánu- daginn 24. des. en spilað verður mánudaginn 7. janúar. Gerðuberg, félagsstarf. Opið milli jóla og nýárs 27. og 28. des. Fimmtu- daginn 3. janúar verður áramótaguðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 14 á vegum Ellimálaráðs Reykjavíkurprófasts- dæma og Bústaðasókn- ar, mæting í Gerðubergi kl. 13.15, að messu lok- inni verður ekið um borgina ljósum prýdda, skráning hafin. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Óskum öllum gleðilegra jóla og far- sældar á nýju ári. Gjábakki, Fannborg 8. Lokað verður í Gjá- bakka frá 22.–26. des. að báðum dögum með- töldum. Gjábakki verður opinn eins og venjulega 27. og 28. des. Lokað verður frá 29. des.–1. janúar að báðum dögum meðtöldum. Starfsmenn Gjábakka óska gestum sínum gleðilegrar hátíð- ar og gæfu og gleði á nýju ári. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5 og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis Fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða um- slagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUM&K, Holtavegi 28, Rvík og hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds- syni, Glerárgötu 1, Ak- ureyri. Minningarkort Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588 7555 og 588 7559 á skrifstofu- tíma. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrifstofu félagsins á Suðurgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552 2154. Skrifstofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16–18 en utan skrifstofutíma er sím- svari. Einnig er hægt að hringja í síma 861 6880 og 586 1088. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Minningarkort MS fé- lags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán.–fim. kl. 10–15. Sími 568 8620. Bréfs. 568 8621. Tölvupóstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda alzheim- ersjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533 1088 eða í bréfs. 533 1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eftirtöldum stöðum: í síma 588 9220 (gíró) Holtsapóteki, Vesturbæjarapóteki, Hafnarfjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdótt- ur, Ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552 4440 frá kl 13–17. Eftir kl. 17 s. 698 4426 Jón, 552 2862 Óskar eða 563 5304 Nína. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562 5605, bréfsími 562 5715. Minningarkort Krabba- meinsfélags Hafn- arfjarðar (KH), er hægt að fá í Bókabúð Böðv- ars, Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafnarfirði s. 565 1630 og á skrifstofu K.H., Suðurgötu 44, II. hæð, sími á skrifstofu 544 5959. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félagsins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551 7868 á skrifstofu- tíma og í öllum helstu apótekum. Gíró- og kreditkortagreiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endurhæfing- ardeildar Landspítalans Kópavogi (fyrrverandi Kópavogshæli), síma 560 2700 og skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna, s. 551 5941 gegn heimsendingu gíróseð- ils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565 5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroska- hjálp. Minningarsjóður Jóhanns Guðmunds- sonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588 9390. Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minning- argjöfum á skrifst. hjúkrunarforstjóra í síma 560 1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minning- argjöfum á deild 11-E í síma 560 1225. Hranfkelssjóður (stofn- að 1931) minningarkort afgreidd í símum 551 4156 og 864 0427. Í dag er laugardagur 22. desem- ber, 356. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja. (Orðskv. 13, 20.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 hjúskapur, 8 drekkur, 9 dylja, 10 reyfi, 11 skyld- mennið, 13 flýtinn, 15 húsgagns, 18 óhamingja, 21 fúsk, 22 veika, 23 stefnan, 24 tíminn um kl. 18. LÓÐRÉTT: 2 margtyggja, 3 líffærin, 4 blaðra, 5 þvinga, 6 fugl, 7 forboð, 12 óhróður, 14 mergð, 15 tuddi, 16 drasli, 17 fiskur, 18 dap- urt, 19 reiðan, 20 heimsk- ingi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 firra, 4 gisin, 7 Jónas, 8 uggur, 9 ann, 11 taða, 13 bráð, 14 gabbi, 15 farg, 17 ljót, 20 hik, 22 lyfta, 23 rætin, 24 remma, 25 síðla. Lóðrétt: 1 fljót, 2 ránið, 3 ansa, 4 grun, 5 sigur, 6 nýrað, 10 nebbi, 12 agg, 13 bil, 15 fálur, 16 rófum, 18 játað, 19 tinda, 20 hata, 21 krús. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI hafði vit á því aðskella sér á tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur í Laugardalshöll- inni á miðvikudag og sér ekki eftir því. Vissulega er þetta farið að hljóma eins og gömul tugga en stúlk- an sú er hreinn og beinn snillingur. Það sannaði hún þessa eftirminni- legu kvöldstund í félagsskap einvala tónlistarmanna, sem studdu hana af alúð. Einkum þótti Víkverja mikið til grænlenska kvennakórsins koma. Víkverji hefur heldur aldrei heyrt samvinnu „dægurtónlistarmanna“ og „sígildra“ lánast eins vel. x x x EN ÞAR kemur einmitt að van-kanti annars vel heppnaðra tón- leika. Vankanti sem langt því frá var listamönnum sjálfum að kenna. Svo vandaður en þó kannski sérstaklega viðkvæmum tónlistarflutningi í þessu blessaða íþróttahúsi Laugar- dalshöllinni afhjúpar nefnilega al- gjörlega hversu vitavonlaust það er til tónleikahalds. Þetta kemur síður fram á rokktónleikum þegar einfald- lega er hægt að hækka upp í ellefu í hljóðkerfinu og æra gesti svo þeir fái hellur og heyri nú alveg örugglega ekki óhljóðin sem húsið býr til úr- ónunum sem koma frá sviðinu. En þegar svo nákvæmur tónlist- arflutningur er annars vegar, þar sem galdurinn liggur oft og tíðum í smáatriðunum og ofurpersónulegum flutningi listamanna, þá er Höllin al- veg vonlaus og til helberrar skamm- ar. Að þessu komst Víkverji á annars mögnuðum tónleikum Buena Vista Social Club fyrr á árinu og nú aftur á tónleikum Bjarkar. Í báðum tilfellum má segja að húsið hafi drepið hljóm- inn í fæðingu, kæft hann svo þeir sem aftarlega sátu fengu ekki nándar nærri eins mikið út úr tónlistinni og hinir sem framar voru. Ekki bætir úr skák að gestir sem sitja á stólum í sal sjá lítið sem ekk- ert á sviðið sem er náttúrlega óeðli- lega lágt. Þetta sást glögglega á Bjarkar-tónleikunum því alla lið- langa tónleikana voru gestir teygj- andi og beygjandi höfuð í allar áttir til að reyna að koma auga á söngkon- una „okkar“, greinilega með litlum árangri. x x x EITTHVAÐ skárri er aðstaðan íHáskólabíói þar sem Björk hélt aukatónleika í gær. Þessu 40 ára gamla húsi sem á sínum tíma var hannað sérstaklega til að geta hýst með góðu móti tónleikahald. Til þess að hljómur yrði sem bestur var meira að segja leitað til danska verkfræð- ingsins dr. Vilhelms Lassens Jord- ans, sem var þá mjög frægur á því sviði og hafði hannað mörg tónlistar- hús og var m.a. ráðgjafi við byggingu óperuhússins fræga í Sydney. Ráð hans gerðu að verkum að bygging salarins stóra varð mun kostnaðar- samari en á horfðist í fyrstu en Há- skólamenn töldu fénu vel varið því þar væri líka risið tónlistarhús boð- legt Sinfóníuhljómsveit Íslands. En síðan kom á daginn að tónlistarmenn voru alls ekkert sáttir við hljómburð- inn í húsinu og hafa ekki verið, flestir hverjir. Þær raddir hafa og orðið æ háværari að salurinn henti hreint illa til tónlistarflutnings og sinfónían „okkar“ og annað tónlistarfólk, inn- lent sem það erlenda er sækir landið heim, eigi miklu betra skilið. Víkverji er röddunum sammála og undrar sig á að enn sé ekki hafin bygging á hinu eina sanna tónlistar- húsi í höfuðborginni, þessu sem svo lengi hefur verið beðið eftir. Sjaldan eða aldrei hefur Víkverji þó þráð það eins heitt og þegar hann hlýddi á Bjarkarsönginn. Klassískar perl- ur í dægurlög? ÉG var að hlusta á Mósaík og í þættinum var flutt lag- ið Ave María eftir Kalda- lóns. Þetta er mjög fallegt lag og það er oftast nær flutt af góðum söngvurum og kórum. Í þættinum var lagið flutt í nýrri útsetningu og fannst mér hún satt best að segja hundleiðinleg. Þessi útsetning hefur víst átt að höfða til unga fólksins. Það er ekki hægt að breyta klassískum lögum eins og Ave María í dæg- urlög, ekki það að ég hafi ekki gaman af dægurlög- um, ég er einungis á móti því að breyta klassískum perlum í dægurlög. Kristín. Tapað/fundið Svart hliðarveski týndist LÍTIÐ svart hliðarveski týndist við Sólheima 7. des- ember. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553 2258. Dýrahald Dúlla er týnd DÚLLA er svartur skógar- köttur, loðin og með hvítt í skottinu. Hún týndist frá Flyðrugranda 18 um síð- ustu helgi. Hún er merkt og með bleika ól. Þeir sem hafa orðið hennar varir vin- samlega hafi samband í síma 561 4001 og 897 2338. Zara er týnd KISAN okkar, hún Zara, hvarf að heiman frá sér úr Setbergshverfinu þriðju- dagskvöldið 18. desember sl. Hún er 6 mánaða, hálf persnesk og því mjög loðin. Zara er tvílit, steingrá og hvít með gráa grímu kring- um augun. Grái liturinn er dálítið bröndóttur. Hún er með gula hálsól sem í hang- ir tunna, en nafnið Zorro stendur á miðanum innan í. Við viljum fá Zöru heim aft- ur og þeir sem kynnu að finna hana eru beðnir að láta okkur vita í s: 565 3690, 896 3568 eða 691 5634. Fundarlaun eru í boði fyrir kisuna okkar. Pjakkur enn týndur HANN Pjakkur er enn týndur og fjölskylda hans þráir að fá hann heim fyrir jólin. Pjakkur er grábrönd- óttur með hvíta sokka og hvíta bringu. Hann er með rauða endurskinsól með bjöllum, hjartalaga síma- númeramerki og segullykli. Hann er stór, mjög lítill í sér, mjúkur og mjög gæfur. Hans er sárt saknað og all- ar upplýsingar um hann vel þegnar í síma 551 1176, 848 2797 eða 698 3607. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is ÉG ER mikill aðdáandi og stór neytandi rauðs greip- aldins (grapefruit), enda er það sérstaklega hollur sítrusávöxtur. Því miður er það stundum þrauta- ganga að finna þá tegund ávaxtarins, sem fellur að mínum smekk og bragð- laukum. Mér finnst hann beztur svolítið sætur. Allra bezta tegundin er frá Flórída og því næst frá Kaliforníu. Af einhverjum ástæðum eru þessir ávext- ir ekki góðir frá Evrópu- löndum eins og Spáni og Ísrael – og reyndar fleiri löndum. Rautt greipaldin frá Flórída hefur ekki fengizt hér í búðum, þ.m.t. stór- mörkuðum, allt frá því í byrjun sumars. Þrátt fyrir víðtæka leit hefur mér ekki tekizt að finna nema súra og harða greipávexti mánuðum saman og oftast er sama tegundin á boð- stólum í stórmörkuðunum, þótt þeir reyni að telja fólki trú um, að samkeppni um neytendur sé hörð milli þeirra. Það gladdi mig því ósegjanlega, þegar ég kom í Nóatúnsverzlun sl. fimmtudag að fá þar loks- ins rautt greip frá Flórída. Ég vona að Flórídaávext- irnir verði sem lengst á boðstólum og á meðan munu Nóatúnsverzl- anirnar njóta viðskipta minna og það ekki aðeins í ávaxtaborðinu. Ávaxtaunnandi. Rautt greipaldin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.