Morgunblaðið - 22.12.2001, Side 71

Morgunblaðið - 22.12.2001, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 71 MAGNAÐ BÍÓ Aðdáendur Coen bræðra verða ekki sviknir af þessari frábæru mynd sem minnir á fyrstu mynd þeirra bræðra, Blood Simple. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 14. 1/2 Mbl  ÓHT Rás 2 DV Þau veittu henni öruggt heimili... en henni var ekki ætlað að komast burt! Æsispennandi sálfræðitryllir með Leelee Sobieski (Joyride) í aðalhlutverki. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Sparisjóðurinn í Keflavík býður í bíó kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 5 og 8. Vit 307 Sýnd kl. 8 og 11. Vit 299 1/2 Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is strik.is  MBL Sýnd kl. 5. Ísl tal. Vit 320 FORSÝNING Frábært ævintýri og grín fyrir alla aldurshópa! Frá framleiðendum Fríða og dýrið og Hringjarans frá Notre Dame kemur þessi einstaka ævintýramynd sem gerist við strendur Íslands. f l i í i i j f i i i i i Í l . www.lordoftherings.net Stórskemmtileg gamanmynd sem svíkur engann þar sem Charlie Sheen (Hot Shots) og Jon Lovitz (Rat Race) fara á kostum. Charlie Sheen Jon Lovitz Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4. Ísl tal. 3% LÍKAMSFITA. 1% HEILASTARFSEMI Hinn nautheimski Derek Zoolander fær ekki borgað fyrir að hugsa! Nýjasta mynd Ben Stiller´s sem fór á kostum í hinum frábæru grínsmellum Meet The Parents og There´s Something About Mary. betra en nýtt Sýnd kl. 10. Síðasta sýningSýnd kl. 4, 6, 8 og 10. 3% LÍKAMSFITA. 1% HEILASTARFSEMI Hinn nautheimski Derek Zoolander fær ekki borgað fyrir að hugsa! Nýjasta mynd Ben Stiller´s sem fór á kostum í hinum frábæru grínsmellum Meet The Parents og There´s Something About Mary. Sýnd kl. 4, 6 og 8. Síðasta sýning MUNIÐ FORSÖLU MIÐA Á HRINGADRÓTTINSSÖGU – KOMDU sæll, minn kæri herra Sverrir Stormsker. – Já, komdu sæll og blessaður. – Þú ert með þennan disk, seg- irðu… – Jú, jú. Hann átti reyndar að koma út í fyrra en plötunni var óvart dreift á Græn- höfðaeyjum og í Ástralíu. Svo átti hún að koma núna í september en upplagið lenti á World Trade Center en núna er hún loks komin. – Jæja… – Þannig að ég ætti að geta losað mig við bæði eintökin fyrir jól. – Eru þetta lög af öllum plötunum þínum þá? – Ja… svei mér þá. Þeim flestum að minnsta kosti. Slatti af Guðspjöll- unum… ég held í það minnsta að fólk kannist við þetta flestallt. – Hvað með þessar ofurdónalegu plötur, Tekið stórt upp í sig og Tekið stærra upp í sig? – Nei, ég lét þær nú eiga sig. Þær standa alveg einar og sér. Það væri eins og að blanda brennivíni út í súr- mjólk. Þær eru áfengar einar og sér en fólk kúgast ef það heyrir þessi lög innan um fallegar ballöður. – Nú hefurðu löngum verið hálf- gerður útlagi í íslensku poppi… – Er það? – Stýrirðu inn á þetta? – Það er þá eitthvað sem ég hef ekki kosið mér. Kannski er það út af tveimur síðustu plötum, ég veit það ekki... – Fólk kannski höndlar það ekki að einn maður hafi margþætta sýn á líf- ið? – Já, ég hef tekið rækilega eftir þessu. Ég setti upp málverkasýningu ’93 og það var ekki tekið alvarlega því hér á landi eiga menn bara að ein- beita sér að einu sviði, virðist vera. – En hvað er annars framundan? – Söngleikur sem verður kominn á fjalir eftir 2 ár. Allt fyrir ofan mitti þar. Safnplata með Sverri Stormsker Stormskerið talar Sverrir Stormsker arnart@mbl.is MICHAEL Pollock hefur fengist við tónlist og skáldskap í fjölmörg ár og hefur ásamt Daniel bróður sín- um verið áberandi í íslenskum tón- listarheimi. Í föðurættina eiga þeir bræður ættir að rekja til Louisville í Kentucky-fylki í Bandaríkjunum og þangað héldu þeir Michael og Bragi Ólafsson skáld fyrr á þessu ári til þess að taka upp tónlist og ljóðalestur með heimamönnum. Af- raksturinn er hljómdiskurinn From Iceland to Kentucky and Beyond, sem kom út á dögunum á Íslandi og í Bandaríkjunum. „Þetta er nokk- urs konar sambræðingur banda- rískrar sveitatónlistar, ljóðlistar og íslenskra áhrifa sem ég kann ekki að nefna. Þjóðsagan og hrynjandin í skáldskapnum og tónlistinni er kannski kjarninn í þessu,“ segir Michael um efni disksins, en þar er m.a. sótt í hefð samlesturs ljóða og djasstónlistar sem fram kom með Beat-skáldunum í Bandaríkjunum á 6. áratugnum. Hugmyndin að þessu óvenjulega tónlistarverkefni kom fram í gegn- um samstarf og vináttu þeirra Michaels og skáldsins Ron White- head. Þeir hittust í New York fyrir rúmum þremur árum á hátíð til- einkaðri Allen Ginsberg og smullu saman eins og bræður. Skáldskap- aráhugann eiga þeir sameiginlega og báðir eiga rætur að rekja til Kentucky og ólust upp við að hlýða á sveitatónlist svæðisins. „Þetta var mjög óundirbúið allt saman. Við Bragi fórum til Kentucky og þar hóaði Ron saman hóp af hæfi- leikafólki. Í hljóðverið fórum við eftir mjög stuttan undirbúning, enda byggist tónlistin fyrst og fremst á samspili og tengslum á milli flytjendanna. Það skapaðist líka mjög magnað andrúmsloft og tókum við diskinn upp á mjög stutt- um tíma,“ segir Michael. Höfundar og flytjendur ásamt þeim Braga, Ron og Michael eru söngkonan Susi Wood, ljóðskáldið W. Loran Smith, skáldið og tónlist- armaðurinn Danny O’Bryan, rithöf- undurinn Mickey Hess og Jim James, sem er meðlimur í hljóm- sveitinni My Morning Jacket. Efni disksins spannar þannig allt frá ljóðlestri Braga Ólafssonar með léttum saxófónundirleik, Kentucky- blúslaga, ljóðum í anda Beat- hefðarinnar til þétts gítarleiks Michaels og Daniels Pollock. Þáttur í því að rækta tengslin við heimahaga föðurættarinnar í Ken- tucky var útgáfa nýjustu ljóða- bókar Michaels, sem ber titilinn No Short Cut To Paradise, en hún kom út í Kentucky á þesu ári. Þar er að finna ljóð frá 10 ára tímabili og seg- ir Michael bókina því vera uppgjör við langt tímabil. Á næstunni hefur hann hug á að halda áfram þeirri samvinnu sem hófst í Kentucky. „Mér finnst mjög áhugavert að vinna með samspil ólíkra miðla og munum við líklega halda áfram að stíga yfir landa- mæri í framhaldinu. Næstu tvo mánuði verðum við hins vegar á ferð og flugi að kynna plötuna, en við höfum þegar spilað í Kentucky, Reyjavík og London. Nú liggur leið- in bara „beyond“,“ segir Michael og vísar þar í titil hljómdisksins. Michael Pollock sótti á heimaslóð- ir föðurætt- arinnar í Kentucky í Bandaríkj- unum til að vinna plöt- una From Iceland to Kentucky and Beyond. Aftur til upprunans…í Kentucky heida@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.